Fréttablaðið - 29.07.2019, Síða 4
jeep.is
JEEP ® RENEGADE
SUMARTILBOÐ
JEEP® RENEGADE LIMITED MEÐ TILBOÐSPAKKA - LISTAVERÐ: 5.702.000 KR. - TILBOÐSVERÐ: 5.390.000 KR.
JEEP® RENEGADE TRAILHAWK MEÐ TILBOÐSPAKKA - LISTAVERÐ: 6.202.000 KR. - TILBOÐSVERÐ: 5.690.000 KR.
Bjóðum nokkra Jeep® Renegade Limited og Trailhawk
með tilboðspakka. 2.0 lítra dísel vél 140 hö. Limited - 170 hö. Trailhawk
9 gíra sjálfskipting, hátt og lágt drif, álfelgur, 7” upplýsinga- og
snertiskjár og Bluetooth til að streyma síma og tónlist.
Tilboðspakki: Þægindapakki, LED ljósapakki, svart þak og
8,4” upplýsinga- og snertiskjár (aðeins í Trailhawk.)*
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
*Aukahlutir ekki í tilboði: kajak og kajak festingar
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18
LOKAÐ LAUGARDAGA FRÁ 8. JÚNÍ TIL OG MEÐ 3. ÁGÚST
STJÓRNMÁL Sjálfstæðisf lokkurinn
mælist enn stærsti f lokkur lands-
ins þrátt fyrir að fylgi hans dragist
saman. Þetta sýna niðurstöður
nýrrar könnunar sem Zenter rann-
sóknir gerðu fyrir Fréttablaðið.
Flokkurinn mælist nú með 20,5
prósent en var með 22,6 prósent
í könnun í síðasta mánuði og 25,3
prósent í kosningunum 2017.
Miðf lokkurinn er sá f lokkur
sem bætir mestu við sig frá könn-
un síðasta mánaðar. Alls bætir
f lokkurinn við sig 3,6 prósentum
og mælist nú með 13,4 prósent. Í
kosningunum 2017 fékk f lokkur-
inn 10,9 prósent.
Samfylkingin er næst stærsti
f lok k u r landsins samk væmt
könnuninni með 14,4 prósenta
fylgi sem er nánast það sama og
f lokkurinn mældist með í júní.
Píratar sem voru næst stærsti
f lokkurinn í júní með 15,2 prósent
missa nokkurt fylgi og fá nú 12,3
prósent. Það er þó meira en f lokk-
urinn fékk í síðustu kosningum
þegar hann fékk 9,2 prósent.
Samkvæmt könnuninni myndu
aðeins 52,6 prósent þeirra sem
kusu Vinstri græn 2017 kjósa
f lokkinn nú. Tæp 17 prósent
þeirra sem kusu Vinstri græn
síðast styðja nú Pírata og 16 pró-
sent Samfylkinguna. Flokkurinn
mælist nú með 12,9 prósent.
Fylgi annarra f lokka breytist
minna en Viðreisn mælist nú með
10,6 prósent og bætir 0,7 prósentu-
stigum við sig milli kannana. Þá
bætir Framsóknarf lokkurinn við
sig 1,1 prósentustigi og er nú með
8,2 prósent.
Flokkur fólksins missir áfram
fylgi og mælist nú með 3,2 prósent
en fékk 4,3 prósent í júní. Aðrir
f lokkar fá 4,6 prósent og þar af fær
Sósíalistaf lokkurinn 2,7 prósent.
Stuðningur við f lokka er í
sumum tilvikum afar mismun-
andi þegar kemur að ólíkum ald-
urshópum. Sjálfstæðisf lokkurinn
nýtur aðeins stuðnings 7,2 pró-
senta hjá yngsta aldurshópnum,
sem er 18-24 ára. Í öðrum aldurs-
hópum er stuðningur við f lokkinn
á bilinu 19,3 til 24,1 prósent.
Svipaða sögu er að segja af Mið-
f lokknum. Stuðningur við hann
er um 4-5 prósent í yngstu aldurs-
hópunum en 21,5 prósent hjá
45-54 ára. Vinstri græn, Píratar og
Viðreisn njóta hins vegar mests
stuðnings meðal yngstu kjósend-
anna. Rúm 22 prósent í yngsta ald-
urshópnum styðja Vinstri græn og
rúm 19 prósent Pírata. Fylgi Pírata
er raunar svipað í aldurshópunum
25-34 ára og 35-44 ára en minnkar
nokkuð hjá þeim sem eldri eru.
Fylgi Vinstri grænna í öðrum
aldurshópum er á bilinu 9-14 pró-
sent. Viðreisn mælist með 14 pró-
sent hjá 25-34 ára en á bilinu 6-10
prósent hjá öðrum aldurshópum.
Könnunin var f ramk væmd
24.- 26. júlí síðastliðinn og var
send á tvö þúsund einstaklinga í
könnunarhóp Zenter rannsókna.
Svarhlutfallið var 45 prósent en
gögnin voru vigtuð eftir kyni,
aldri og bústu.
sighvatur@frettabladid.is
Miðflokkurinn upp fyrir VG og Pírata
Þrátt fyrir minnkandi fylgi er Sjálfstæðisflokkurinn enn stærsti flokkur landsins. Miðflokkurinn sækir í sig veðrið og er nú þriðji
stærsti flokkurinn en Píratar missa fylgi frá því í síðasta mánuði. Framsókn og Viðreisn bæta lítillega við sig fylgi milli kannana.
Ánægja með forystuna
Í könnuninni var einnig spurt
um ánægju kjósenda með
formann þess flokks sem
það styður. Hægt var að gefa
formönnunum einkunn á
bilinu 1-5 þar sem 5 er hæsta
einkunn.
Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Mið-
flokksins, fékk hæstu
meðaleinkunn meðal sinna
stuðningsmanna eða 4,3.
Raunar mælast allir formenn-
irnir með 4 eða hærra.
Þau Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, og Katrín Jakobsdóttir,
formaður Vinstri grænna, eru
bæði með 4,2 og Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, for-
maður Viðreisnar, er með 4,1.
Bæði Logi Már Einarsson,
formaður Samfylkingarinnar,
og Sigurður Ingi Jóhannsson,
formaður Framsóknarflokks-
ins, fengu 4,0. Marktækt meiri
ánægja mældist hjá Sigmundi
Davíð en Loga og Sigurði Inga.
Inga Sæland, formaður
Flokks fólksins, fékk einnig
4,0 en hafa ber í huga að fá
svör voru þar að baki. Þar sem
Píratar hafa ekki formann voru
stuðningsmenn flokksins ekki
spurðir þessarar spurningar.
Konur styðja VG en
karlar Miðflokkinn
Aðeins reyndist marktækur
munur á stuðningi kynjanna
við tvo af flokkunum. Þann-
ig styðja 17,8 prósent karla
Miðflokkinn en aðeins 7,7
prósent kvenna. Dæmið snýst
nánast alveg við hjá Vinstri
grænum. Þar er stuðningur
meðal kvenna 18,6 prósent en
einungis 8,3 prósent meðal
karla.
Vinstri græn njóta mests
stuðnings meðal kvenna
ásamt Sjálfstæðisflokknum
sem er með 18,7 prósenta
fylgi hjá konum. Sjálfstæðis-
flokkurinn er einnig stærstur
meðal karla með 21,9 pró-
senta fylgi en Miðflokkurinn
kemur næstur.
Miðflokkurinn hefur verið í sókn í könnunum að undanförnu og er nú þriðji stærsti flokkurinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
30%
25
20
15
10
5
✿ Hvaða lista myndir þú kjósa ef kosið yrði nú?
n Kosningar 2017 n 27. júní n 26. júlí
ANNAÐ
n 2017 n 27.jún n 26.júl
Sjálfstæðisflokkur 25,3% 22,6% 20,5%
Samfylkingin 12,1% 14,1% 14,4%
Miðflokkurinn 10,9% 9,8% 13,4%
Vinstri græn 16,9% 13,1% 12,9%
Píratar 9,2% 15,2% 12,3%
Viðreisn 6,7% 9,9% 10,6%
Framsóknarflokkur 10,7% 7,1% 8,2%
Flokkur fólksins 6,9% 4,3% 3,2%
Aðrir 1,5% 3,8% 4,6%
13,4%
mælist fylgi Miðflokksins
í könnuninni. Flokkurinn
fékk 10,9 prósent í kosning-
unum 2017 en mældist með
9,8 prósent í síðasta mánuði.
2 9 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
C
-F
7
5
C
2
3
7
C
-F
6
2
0
2
3
7
C
-F
4
E
4
2
3
7
C
-F
3
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
2
8
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K