Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.07.2019, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 29.07.2019, Qupperneq 4
jeep.is JEEP ® RENEGADE SUMARTILBOÐ JEEP® RENEGADE LIMITED MEÐ TILBOÐSPAKKA - LISTAVERÐ: 5.702.000 KR. - TILBOÐSVERÐ: 5.390.000 KR. JEEP® RENEGADE TRAILHAWK MEÐ TILBOÐSPAKKA - LISTAVERÐ: 6.202.000 KR. - TILBOÐSVERÐ: 5.690.000 KR. Bjóðum nokkra Jeep® Renegade Limited og Trailhawk með tilboðspakka. 2.0 lítra dísel vél 140 hö. Limited - 170 hö. Trailhawk 9 gíra sjálfskipting, hátt og lágt drif, álfelgur, 7” upplýsinga- og snertiskjár og Bluetooth til að streyma síma og tónlist. Tilboðspakki: Þægindapakki, LED ljósapakki, svart þak og 8,4” upplýsinga- og snertiskjár (aðeins í Trailhawk.)* ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF *Aukahlutir ekki í tilboði: kajak og kajak festingar UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 LOKAÐ LAUGARDAGA FRÁ 8. JÚNÍ TIL OG MEÐ 3. ÁGÚST STJÓRNMÁL Sjálfstæðisf lokkurinn mælist enn stærsti f lokkur lands- ins þrátt fyrir að fylgi hans dragist saman. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar sem Zenter rann- sóknir gerðu fyrir Fréttablaðið. Flokkurinn mælist nú með 20,5 prósent en var með 22,6 prósent í könnun í síðasta mánuði og 25,3 prósent í kosningunum 2017. Miðf lokkurinn er sá f lokkur sem bætir mestu við sig frá könn- un síðasta mánaðar. Alls bætir f lokkurinn við sig 3,6 prósentum og mælist nú með 13,4 prósent. Í kosningunum 2017 fékk f lokkur- inn 10,9 prósent. Samfylkingin er næst stærsti f lok k u r landsins samk væmt könnuninni með 14,4 prósenta fylgi sem er nánast það sama og f lokkurinn mældist með í júní. Píratar sem voru næst stærsti f lokkurinn í júní með 15,2 prósent missa nokkurt fylgi og fá nú 12,3 prósent. Það er þó meira en f lokk- urinn fékk í síðustu kosningum þegar hann fékk 9,2 prósent. Samkvæmt könnuninni myndu aðeins 52,6 prósent þeirra sem kusu Vinstri græn 2017 kjósa f lokkinn nú. Tæp 17 prósent þeirra sem kusu Vinstri græn síðast styðja nú Pírata og 16 pró- sent Samfylkinguna. Flokkurinn mælist nú með 12,9 prósent. Fylgi annarra f lokka breytist minna en Viðreisn mælist nú með 10,6 prósent og bætir 0,7 prósentu- stigum við sig milli kannana. Þá bætir Framsóknarf lokkurinn við sig 1,1 prósentustigi og er nú með 8,2 prósent. Flokkur fólksins missir áfram fylgi og mælist nú með 3,2 prósent en fékk 4,3 prósent í júní. Aðrir f lokkar fá 4,6 prósent og þar af fær Sósíalistaf lokkurinn 2,7 prósent. Stuðningur við f lokka er í sumum tilvikum afar mismun- andi þegar kemur að ólíkum ald- urshópum. Sjálfstæðisf lokkurinn nýtur aðeins stuðnings 7,2 pró- senta hjá yngsta aldurshópnum, sem er 18-24 ára. Í öðrum aldurs- hópum er stuðningur við f lokkinn á bilinu 19,3 til 24,1 prósent. Svipaða sögu er að segja af Mið- f lokknum. Stuðningur við hann er um 4-5 prósent í yngstu aldurs- hópunum en 21,5 prósent hjá 45-54 ára. Vinstri græn, Píratar og Viðreisn njóta hins vegar mests stuðnings meðal yngstu kjósend- anna. Rúm 22 prósent í yngsta ald- urshópnum styðja Vinstri græn og rúm 19 prósent Pírata. Fylgi Pírata er raunar svipað í aldurshópunum 25-34 ára og 35-44 ára en minnkar nokkuð hjá þeim sem eldri eru. Fylgi Vinstri grænna í öðrum aldurshópum er á bilinu 9-14 pró- sent. Viðreisn mælist með 14 pró- sent hjá 25-34 ára en á bilinu 6-10 prósent hjá öðrum aldurshópum. Könnunin var f ramk væmd 24.- 26. júlí síðastliðinn og var send á tvö þúsund einstaklinga í könnunarhóp Zenter rannsókna. Svarhlutfallið var 45 prósent en gögnin voru vigtuð eftir kyni, aldri og bústu. sighvatur@frettabladid.is Miðflokkurinn upp fyrir VG og Pírata Þrátt fyrir minnkandi fylgi er Sjálfstæðisflokkurinn enn stærsti flokkur landsins. Miðflokkurinn sækir í sig veðrið og er nú þriðji stærsti flokkurinn en Píratar missa fylgi frá því í síðasta mánuði. Framsókn og Viðreisn bæta lítillega við sig fylgi milli kannana. Ánægja með forystuna Í könnuninni var einnig spurt um ánægju kjósenda með formann þess flokks sem það styður. Hægt var að gefa formönnunum einkunn á bilinu 1-5 þar sem 5 er hæsta einkunn. Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, formaður Mið- flokksins, fékk hæstu meðaleinkunn meðal sinna stuðningsmanna eða 4,3. Raunar mælast allir formenn- irnir með 4 eða hærra. Þau Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokks- ins, og Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, eru bæði með 4,2 og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, for- maður Viðreisnar, er með 4,1. Bæði Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokks- ins, fengu 4,0. Marktækt meiri ánægja mældist hjá Sigmundi Davíð en Loga og Sigurði Inga. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, fékk einnig 4,0 en hafa ber í huga að fá svör voru þar að baki. Þar sem Píratar hafa ekki formann voru stuðningsmenn flokksins ekki spurðir þessarar spurningar. Konur styðja VG en karlar Miðflokkinn Aðeins reyndist marktækur munur á stuðningi kynjanna við tvo af flokkunum. Þann- ig styðja 17,8 prósent karla Miðflokkinn en aðeins 7,7 prósent kvenna. Dæmið snýst nánast alveg við hjá Vinstri grænum. Þar er stuðningur meðal kvenna 18,6 prósent en einungis 8,3 prósent meðal karla. Vinstri græn njóta mests stuðnings meðal kvenna ásamt Sjálfstæðisflokknum sem er með 18,7 prósenta fylgi hjá konum. Sjálfstæðis- flokkurinn er einnig stærstur meðal karla með 21,9 pró- senta fylgi en Miðflokkurinn kemur næstur. Miðflokkurinn hefur verið í sókn í könnunum að undanförnu og er nú þriðji stærsti flokkurinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 30% 25 20 15 10 5 ✿ Hvaða lista myndir þú kjósa ef kosið yrði nú? n Kosningar 2017 n 27. júní n 26. júlí ANNAÐ n 2017 n 27.jún n 26.júl Sjálfstæðisflokkur 25,3% 22,6% 20,5% Samfylkingin 12,1% 14,1% 14,4% Miðflokkurinn 10,9% 9,8% 13,4% Vinstri græn 16,9% 13,1% 12,9% Píratar 9,2% 15,2% 12,3% Viðreisn 6,7% 9,9% 10,6% Framsóknarflokkur 10,7% 7,1% 8,2% Flokkur fólksins 6,9% 4,3% 3,2% Aðrir 1,5% 3,8% 4,6% 13,4% mælist fylgi Miðflokksins í könnuninni. Flokkurinn fékk 10,9 prósent í kosning- unum 2017 en mældist með 9,8 prósent í síðasta mánuði. 2 9 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 9 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 C -F 7 5 C 2 3 7 C -F 6 2 0 2 3 7 C -F 4 E 4 2 3 7 C -F 3 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 2 8 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.