Fréttablaðið - 29.07.2019, Side 6
Fáðu fréttablað dagsins í
tölvupósti kl. 3.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista blaðsins á
www.frettabladid.is#nyskraning
Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Enn mótmælt í Hong Kong
Hjálmum var dreift til mótmælenda í Hong Kong í gær en vikuleg mótmæli hafa verið á götum ríkisins frá því 9. júní þar sem umdeildu fram-
salsfrumvarpi er mótmælt. Leiðtogi Hong Kong, Carrie Lam, hefur beðist afsökunar á frumvarpinu og sagt það „dautt“ en þrátt fyrir orð hennar
hefur fjöldi fólks haldið mótmælunum áfram og farið fram á afsögn Lam, ásamt því að hún afturkalli frumvarpið. NORDICPHOTOS/GETTY
BANGLADESS Embættismenn frá
Mjanmar heimsóttu um helgina
f lóttamannabúðir í borginni Cox
Bazar í Bangladess þar sem um
730.000 Róhingjar hafa verið á
f lótta frá árinu 2017. Tilgangur
heimsóknarinnar var að hef ja
f lutning f lóttamannanna aftur til
Mjanmar.
Þetta er í annað sinn sem mjan-
marskir embættismenn heimsækja
f lóttamannabúðirnar en í október
síðastliðnum höfnuðu leiðtogar
Róhingja tilboði sendinefndar
Mjanmar um að snúa aftur til lands-
ins.
Róhingjar f lúðu ofsóknir og
of beldi í heimalandinu Mjanmar
árið 2017 og hefur hátt í milljón
Róhingja gist f lóttamannabúðirnar
í Cox Bazar síðan. Búðirnar eru með
þeim stærstu í heiminum og erfitt er
að sjá fyrir þörfum þess fjölda sem
þar dvelur ásamt því að of beldi og
glæpir eiga sér þar stað daglega.
Ríkjandi hugmyndafræði í Mjan-
mar er sú að þar skuli einungis
iðkuð búddatrú en meiri hluti Róh-
ingja eru múslimar. Aðgerðir hers-
ins gagnvart þeim voru ofbeldisfull-
ar og hafa æðstu ráðamenn landsins
verið sakaðir um þjóðarmorð, glæpi
gegn mannkyninu og stríðsglæpi.
Róhingj ar voru ekki viðurkenndir
sem þjóðernishópur í landinu og
fengu ekki ríkisborgararétt.
Sendinefnd Mjanmar, með utan-
ríkisráðherrann Myinth Thu í farar-
broddi, ræddi á laugardag og sunnu-
dag við þrjátíu og fimm leiðtoga
Róhingja í f lóttamannabúðunum
um aðgerðir til að Róhingjar gætu
snúið aftur til Mjanmar.
Niðurstöður viðræðnanna voru
þær að Róhingjar hyggjast ekki
snúa aftur til Mjanmar verði þeir
ekki viðurkenndir sem þjóðernis-
hópur í landinu og hljóti þar ríkis-
borgararétt.
Dil Mohammed, einn þeirra
sem þátt tóku í viðræðunum fyrir
hönd Róhingja, sagði í samtali við
Reuters að enginn myndi snúa til
baka nema kröfum um réttlæti og
alþjóðlega vernd væri sinnt.
„Við sögðum þeim að við mynd-
um ekki snúa aftur nema við yrðum
viðurkennd sem Róhingjar í Mjan-
mar,“ sagði Mohammed.
„Við viljum ríkisborgararétt, við
viljum öll réttindi okkar. Við treyst-
um þeim ekki. Við munum ekki
snúa aftur nema alþjóðleg vernd sé
til staðar,“ sagði hann og bætti við
að Róhingjar vilji snúa aftur til síns
lands en ekki enda í búðum hinum
megin við landamærin.
Róhingjar eru ekki þeir einu sem
eru áhyggjufullir yfir því sem bíður
þeirra í Mjanmar snúi þeir til baka
en f lóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna og aðrar hjálparstofnanir
óttast einnig um öryggi þeirra.
„Við erum tilbúin að hefja brott-
flutning héðan hvenær sem er. Það
er undir Mjanmar komið að búa
til stuðningsumhverfi sem gerir
Róhingjum kleift að snúa aftur til
heimalandsins,“ sagði Abul Kalam
sem fer fyrir f lóttamannahjálp í
Bangladess.
birnadrofn@frettabladid.is
Róhingjar snúa ekki heim
fái þeir ekki viðurkenningu
Róhingjar sem hafast við í flóttamannabúðum í Cox Bazar í Bangladess neita að snúa aftur til Mjanmar
fái þeir ekki viðurkenningu sem þjóðernishópur í heimalandi sínu. Enn eru rúmlega 730.000 Róhingjar í
búðunum þar sem ofbeldi er daglegt brauð og erfitt er að sinna þörfum þeirra sem þar dvelja.
Mikill fjöldi Róhingja hefst við í flóttamannabúðunum í Cox Bazar, en talið er að um 730.000 manns búi í búð-
unum. Þrátt fyrir ofbeldi og glæpi reynir fólkið að lifa eðlilegu lífi líkt og að fara á markaðinn. NORDICPHOTOS/GETTY
RÚSSLAND Rússneski stjórnarand-
stæðingurinn Alexei Navalny, sem
handtekinn var eftir að vera sak-
aður um að hafa skipulagt ólögleg
mótmæli í Moskvu á laugardag, var
f luttur á sjúkrahús vegna ofnæmis-
viðbragða í gær.
Navalny hlaut þrjátíu daga fang-
elsisdóm fyrir skipulagningu mót-
mæla í tengslum við kosningar sem
fram fara í Rússlandi í september.
Yfir 1.000 manns voru handtekin
á mótmælunum þar sem krafist var
frjálsra kosninga í landinu. Boðað
var til mótmælanna eftir að stjórn-
völd neituðu bæði óf lokksbundn-
um frambjóðendum og stjórnar-
andstæðingum að gefa kost á sér í
kosningunum og sögðu þá óhæfa
vegna þess að þeir hefðu ekki af lað
nægilegs fjölda gildra undirskrifta
fyrir framboð sitt. – bdj
Úr fangelsi á
sjúkrahús
Alexei Navalny var fluttur á sjúkra-
hús með ofnæmisviðbrögð í gær.
NORDICPHOTOS/GETTY
BRETLAND Nágrönnum Harrys
Bretaprins og Meghan Markle
voru settar reglur um það hvernig
skuli umgangast hjónin umhverf-
is heimili þeirra. Reglurnar voru
settar fram á fundi íbúa sem búa
á Windsor-eigninni og fólu meðal
annars í sér bann við að klappa
hundum hjónanna.
Íbúar staðarins starfa allir í hirð
drottningar og segjast vita mæta
vel hvernig umgangast skuli kónga-
fólk, en aðrar reglur á listanum
settu bann við því að heilsa hjón-
unum að fyrra bragði, óska eftir því
að sjá Archie son þeirra, bjóðast til
þess að passa hann eða fara út með
hundana.
Harry og Meghan segjast ekki
hafa vitað af fundinum og að þau
hafi ekkert með málið að gera
heldur sé um reglur frá höllinni að
ræða. – bdj
Bannað
að klappa
hundunum
Meghan Markle ásamt hundi þeirra
hjóna. NORDICPHOTOS/GETTY
2 9 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
D
-0
B
1
C
2
3
7
D
-0
9
E
0
2
3
7
D
-0
8
A
4
2
3
7
D
-0
7
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
2
8
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K