Fréttablaðið - 29.07.2019, Side 9
Guðmundur
Steingrímsson
Í DAG
HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is
Hlustaðu
á hjartað þitt
Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði
– sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan
okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu.
Beltone Trust™
Ég bý við fjölfarna útivistargötu. Fólk hleypur framhjá húsinu ótt og títt og hjólar í stríðum
straumum. Ef ég sæi aðeins þennan
hluta heimsins og færi aldrei neitt
annað, yrði ákaf lega rökrétt af mér
að álykta að allt fólk væri almennt
alla daga klætt í sokkabuxur, þrönga
litríka boli og gul vesti. Þegar ég sit á
svölunum heyri ég örsögur. Útivistar-
fólk talar hátt saman. Ég næ yfirleitt
að heyra tvær til þrjár setningar
úr samtölum hlaupafólks. Skokk-
hraðinn býður ekki upp á meira. Frá
hjólafólki næ ég ekki nema einni
setningu, eða hluta úr setningu, eins
og t.d.: „Já, rosalegt þarna á fund-
inum um daginn maður …“ og svo er
fólkið þotið hjá. Ég skemmti mér við
að ímynda mér restina, samhengið,
sögurnar. Lífið.
Mér finnst þetta fallegt. Stundum
slæst ég í hópinn og smeygi mér í
hlaupafötin og tek sprett meðfram
sjónum með vinum. Fátt lætur manni
líða betur en stundaráreynsla í brak-
andi fersku lofti. Það sem ég hugsa
stundum, þegar ég sé allt þetta fólk
á degi hverjum hlaupa, hjóla, ganga
— að huga að heilbrigði sínu — er
þetta: Svona gerast byltingar. Svona
breytast þjóðfélög. Fólk ákveður. Fólk
gerir.
Í gamla daga
Í huganum er fortíðin þannig, að
aðeins Árni Bergmann hjólaði í
Reykjavík. Og Siggi P. var hlauparinn.
Vann allar keppnir. Pétur Blöndal
heitinn, alþingismaður, mun víst hafa
skokkað líka. Byrjaði á því í Þýska-
landi. Göslaðist svo hér um í slydd-
unni um árabil. Þetta þótti auðvitað
undarlegt fólk. Ólafur Ragnar mun
víst hafa hlaupið Neshringinn.
Vitneskjan um að hreyfing gerði
fólki gott varð smám saman útbreidd-
ari. Hún var ekki sérstaklega viður-
kennd eða í hávegum höfð þegar
ég var í menntaskóla fyrir 27 árum.
Líklega hef ég aldrei verið í jafnvondu
formi og þá. Ég gat ekki hlaupið frá
Iðnó að Skothúsvegi án þess að lenda
í andnauð. Fékk sjóntruf lanir og lá
við yfirliði. Við tuttuguogfimm ára
aldur fór ég í ógleymanlega heim-
sókn til heimilislæknisins. Ég hélt ég
væri með gallað hjarta, sem gæfi sig
á hverri stundu. Sár verkur í brjóst-
holinu ágerðist eftir því sem ég gekk
meira. Ég hafði miklar áhyggjur.
Læknirinn horfði yfir gleraugun
sín og muldraði með brosvipru út í
annað: „Þetta, Guðmundur minn, er
hlaupastingur.“
Því samtali var þar með lokið.
Mig skorti orð. Skömmu síðar hóf
ég að hreyfa mig meira. Síðan hef
ég semsagt áttað mig á því, sitjandi
á svölunum, að á undanförnum
áratugum hafa sífellt f leiri farið að
hreyfa sig líka. Hreyfingarvakning
mín hefur reynst vera í nokkuð góðu
samræmi við einhvers konar hæga
en markvissa sprengingu í hreyfingu
almennt. Um allar koppagrundir
hefur fólk gert sömu uppgötvunina,
orðið fyrir sömu vitruninni: Maður
verður að hugsa vel um sig. Maður
verður að standa upp úr sófanum.
Vellíðan manns er undir manni
sjálfum komin.
Önnur framtíð
Gamla djammhunda sé ég núna sigra
þolraunir, í betra formi á fimmtugs-
aldri heldur en þeir voru nokkurn
tímann í á Kaffibarnum. Ásókn í alls
kyns keppnir eykst ár frá ári. Fólk
heldur til útlanda í alls kyns útivist-
arferðir. Fólk gerist Landvættir. Golf-
vellir eru smekkfullir af fólki. Sund-
laugarnar líka. Áttatíu ára gamalt
fólk hleypur maraþon. Gönguhópar
þræða hálendið. Afar stunda crossfit
með barnabörnum sínum.
Ekki er hægt að benda á neinn einn
og segja að sá eða sú hafi byrjað þetta.
Ekki er heldur hægt að finna einn
atburð sem halda mætti fram að hefði
hafið þessa byltingu. Engin fyrirmæli
voru heldur gefin. Engin lög sett.
Heilsuvakningin, útivistarbyltingin,
er dæmi um seigf ljótandi en mark-
vissa ákvörðun massans. Hún er
dæmi um það hvernig frjálst mannlíf
með aðgang að upplýsingum getur
þróast í áttir sem enginn gat nokkurn
tímann spáð fyrir eða vonað. Gamla
framtíðarmyndin Blade Runner
gerist 2019. Hún lýsir ágætlega þeirri
framtíð sem fólk þá bjóst við. Í henni
er enginn að hlaupa Reykjavíkur-
maraþon eða hjóla meðfram sjó, ótil-
neyddur, í sokkabuxum og gulu vesti.
Sjálfsagt fer þetta allt saman í
taugarnar á einhverjum. Það er
allt í lagi. Stundum fær maður
alveg nóg af færslum á Facebook af
afrekunum. Getur þetta fólk ekki
slakað á? Fara allir Íslendingar á
Öræfajökul á hverju ári nema ég?
Smá alvörulaust nöldur manns og
annarra bliknar þó hjá hinu: Í þessari
þróun felst gríðarleg von, líklega sú
stærsta sem hægt er að binda sig við
á þessum miklu örlagatímum sem
við nú lifum. Ef eitthvað mun bjarga
jörðinni frá of hitnun og mannkyni
frá glötun væri það svona ámóta
vakning massans. Að fjöldinn taki
völdin. Ef eitthvað aftrar brjáluðum
stjórnmálamönnum frá því að æða
með veröldina út í átök og glapræði er
það sá hinn sami upplýsti massi. Allt
ber að sama brunni. Stærsta vonin í
viðsjárverðum heimi er þessi:
Fólk.
Von
Ef eitthvað mun bjarga jörðinni
frá ofhitnun og mannkyni frá
glötun væri það svona ámóta
vakning massans. Að fjöldinn
taki völdin. Ef eitthvað aftrar
brjáluðum stjórnmálamönnum
frá því að æða með veröldina
út í átök og glapræði er það sá
hinn sami upplýsti massi. Allt
ber að sama brunni. Stærsta
vonin í viðsjárverðum heimi er
þessi: Fólk.
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 2 9 . J Ú L Í 2 0 1 9
2
9
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
7
C
-F
7
5
C
2
3
7
C
-F
6
2
0
2
3
7
C
-F
4
E
4
2
3
7
C
-F
3
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
2
8
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K