Fréttablaðið - 29.07.2019, Síða 9

Fréttablaðið - 29.07.2019, Síða 9
Guðmundur Steingrímsson Í DAG HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is Hlustaðu á hjartað þitt Beltone Trust™ heyrnartækin gera þér kleift að heyra jafnvel minnstu smáatriði – sem stundum reynast þau mikilvægustu. Við hjá Heyrnarstöðinni leggjum allan okkar metnað í að veita góða þjónustu og bjóða upp á hágæða heyrnartæki. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Beltone Trust™ Ég bý við fjölfarna útivistargötu. Fólk hleypur framhjá húsinu ótt og títt og hjólar í stríðum straumum. Ef ég sæi aðeins þennan hluta heimsins og færi aldrei neitt annað, yrði ákaf lega rökrétt af mér að álykta að allt fólk væri almennt alla daga klætt í sokkabuxur, þrönga litríka boli og gul vesti. Þegar ég sit á svölunum heyri ég örsögur. Útivistar- fólk talar hátt saman. Ég næ yfirleitt að heyra tvær til þrjár setningar úr samtölum hlaupafólks. Skokk- hraðinn býður ekki upp á meira. Frá hjólafólki næ ég ekki nema einni setningu, eða hluta úr setningu, eins og t.d.: „Já, rosalegt þarna á fund- inum um daginn maður …“ og svo er fólkið þotið hjá. Ég skemmti mér við að ímynda mér restina, samhengið, sögurnar. Lífið. Mér finnst þetta fallegt. Stundum slæst ég í hópinn og smeygi mér í hlaupafötin og tek sprett meðfram sjónum með vinum. Fátt lætur manni líða betur en stundaráreynsla í brak- andi fersku lofti. Það sem ég hugsa stundum, þegar ég sé allt þetta fólk á degi hverjum hlaupa, hjóla, ganga — að huga að heilbrigði sínu — er þetta: Svona gerast byltingar. Svona breytast þjóðfélög. Fólk ákveður. Fólk gerir. Í gamla daga Í huganum er fortíðin þannig, að aðeins Árni Bergmann hjólaði í Reykjavík. Og Siggi P. var hlauparinn. Vann allar keppnir. Pétur Blöndal heitinn, alþingismaður, mun víst hafa skokkað líka. Byrjaði á því í Þýska- landi. Göslaðist svo hér um í slydd- unni um árabil. Þetta þótti auðvitað undarlegt fólk. Ólafur Ragnar mun víst hafa hlaupið Neshringinn. Vitneskjan um að hreyfing gerði fólki gott varð smám saman útbreidd- ari. Hún var ekki sérstaklega viður- kennd eða í hávegum höfð þegar ég var í menntaskóla fyrir 27 árum. Líklega hef ég aldrei verið í jafnvondu formi og þá. Ég gat ekki hlaupið frá Iðnó að Skothúsvegi án þess að lenda í andnauð. Fékk sjóntruf lanir og lá við yfirliði. Við tuttuguogfimm ára aldur fór ég í ógleymanlega heim- sókn til heimilislæknisins. Ég hélt ég væri með gallað hjarta, sem gæfi sig á hverri stundu. Sár verkur í brjóst- holinu ágerðist eftir því sem ég gekk meira. Ég hafði miklar áhyggjur. Læknirinn horfði yfir gleraugun sín og muldraði með brosvipru út í annað: „Þetta, Guðmundur minn, er hlaupastingur.“ Því samtali var þar með lokið. Mig skorti orð. Skömmu síðar hóf ég að hreyfa mig meira. Síðan hef ég semsagt áttað mig á því, sitjandi á svölunum, að á undanförnum áratugum hafa sífellt f leiri farið að hreyfa sig líka. Hreyfingarvakning mín hefur reynst vera í nokkuð góðu samræmi við einhvers konar hæga en markvissa sprengingu í hreyfingu almennt. Um allar koppagrundir hefur fólk gert sömu uppgötvunina, orðið fyrir sömu vitruninni: Maður verður að hugsa vel um sig. Maður verður að standa upp úr sófanum. Vellíðan manns er undir manni sjálfum komin. Önnur framtíð Gamla djammhunda sé ég núna sigra þolraunir, í betra formi á fimmtugs- aldri heldur en þeir voru nokkurn tímann í á Kaffibarnum. Ásókn í alls kyns keppnir eykst ár frá ári. Fólk heldur til útlanda í alls kyns útivist- arferðir. Fólk gerist Landvættir. Golf- vellir eru smekkfullir af fólki. Sund- laugarnar líka. Áttatíu ára gamalt fólk hleypur maraþon. Gönguhópar þræða hálendið. Afar stunda crossfit með barnabörnum sínum. Ekki er hægt að benda á neinn einn og segja að sá eða sú hafi byrjað þetta. Ekki er heldur hægt að finna einn atburð sem halda mætti fram að hefði hafið þessa byltingu. Engin fyrirmæli voru heldur gefin. Engin lög sett. Heilsuvakningin, útivistarbyltingin, er dæmi um seigf ljótandi en mark- vissa ákvörðun massans. Hún er dæmi um það hvernig frjálst mannlíf með aðgang að upplýsingum getur þróast í áttir sem enginn gat nokkurn tímann spáð fyrir eða vonað. Gamla framtíðarmyndin Blade Runner gerist 2019. Hún lýsir ágætlega þeirri framtíð sem fólk þá bjóst við. Í henni er enginn að hlaupa Reykjavíkur- maraþon eða hjóla meðfram sjó, ótil- neyddur, í sokkabuxum og gulu vesti. Sjálfsagt fer þetta allt saman í taugarnar á einhverjum. Það er allt í lagi. Stundum fær maður alveg nóg af færslum á Facebook af afrekunum. Getur þetta fólk ekki slakað á? Fara allir Íslendingar á Öræfajökul á hverju ári nema ég? Smá alvörulaust nöldur manns og annarra bliknar þó hjá hinu: Í þessari þróun felst gríðarleg von, líklega sú stærsta sem hægt er að binda sig við á þessum miklu örlagatímum sem við nú lifum. Ef eitthvað mun bjarga jörðinni frá of hitnun og mannkyni frá glötun væri það svona ámóta vakning massans. Að fjöldinn taki völdin. Ef eitthvað aftrar brjáluðum stjórnmálamönnum frá því að æða með veröldina út í átök og glapræði er það sá hinn sami upplýsti massi. Allt ber að sama brunni. Stærsta vonin í viðsjárverðum heimi er þessi: Fólk. Von Ef eitthvað mun bjarga jörðinni frá ofhitnun og mannkyni frá glötun væri það svona ámóta vakning massans. Að fjöldinn taki völdin. Ef eitthvað aftrar brjáluðum stjórnmálamönnum frá því að æða með veröldina út í átök og glapræði er það sá hinn sami upplýsti massi. Allt ber að sama brunni. Stærsta vonin í viðsjárverðum heimi er þessi: Fólk. S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 2 9 . J Ú L Í 2 0 1 9 2 9 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 7 C -F 7 5 C 2 3 7 C -F 6 2 0 2 3 7 C -F 4 E 4 2 3 7 C -F 3 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 2 8 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.