Fréttablaðið - 29.07.2019, Side 12
Barcelona
Börsungar eiga ótrúlega mörg
vond félagaskipti undanfarin
ár. Úkraínumaðurinn Dmytro
Chyhrynskyi kostaði ógurlega
upphæð en spilaði aðeins 14 leiki
með félaginu. Þá ákvað félagið að
rífa upp veskið fyrir Paulinho frá
Kína, fá Kevin-Prince Boateng að
láni, kaupa Alex Song frá Arsenal
og svona mætti lengi telja. Brasil-
íska undrabarnið Keirrison toppar
þó trúlega listann. Hann kostaði
14 milljónir evra en spilaði aldrei
leik fyrir félagið. Var aldrei nálægt
því og flestir eru sammála um að
þarna hafi nokkrir milljarðar farið
í vaskinn.
Juventus
Það eru tíu ár síðan Juventus
endaði í sjöunda sæti í Seriu A,
komst ekki upp úr riðlinum í
Meistaradeildinni og Fulham vann
liðið í Evrópudeildinni. Enda var
miðjan skipuð Diego, Christian
Poulsen og Felipe Melo sem allir
voru flopp. Liðið tapaði 19 leikjum
þetta árið enda var það stokkað
upp í kjölfarið.
Real Madrid
Hér þyrfti nánast heilt blað til að
fara í gegnum félagaskiptaflopp
félagsins. Nicolas Anelka kom
2009 en stoppaði aðeins eitt tíma-
bil og var bannaður í 45 daga fyrir
að neita að æfa. Royston Drenthe,
Michael Essien, lánssamningurinn
við Julien Faubert en fáir toppa
Elvir Baljic sem kostaði 26 millj-
ónir punda 1999. Það er gríðarleg
upphæð – jafnvel í dag og hann
var dýrasti leikmaður Balkan-
skagans til ársins 2011 þegar Edin
Dzeko hirti nafnbótina af honum.
Baljic var þrjú ár hjá Real, spilaði 11
leiki, þar af þrjá í byrjunarliðinu og
skoraði eitt mark.
Denilson
Real Betis gerði hann að dýrasta
knattspyrnumanni heims eftir
HM 1998 þar sem hann þótti ansi
skemmtilegur á velli. Á sínum sjö
árum skoraði hann 13 mörk fyrir
félagið.
Winston Bogarde
Vissulega kostaði hann ekki mikið
þegar hann kom til Chelsea frá
Barcelona en hann fékk 40 þúsund
pund á viku, um sjö milljónir króna.
Hann spilaði 12 leiki með félaginu
og var látinn æfa með unglinga-
liðinu. Chelsea vildi ekkert gera
með Bogarde en honum var sama.
Hann fékk sínar milljónir í hverri
viku og hló alla leið
í bankann öll sín
fjögur samn-
ingsbundnu
ár, með um
1,2 milljarða
króna.
Massimo Taibi
Það var alltaf erfitt að reyna að
feta í fótspor Peters Schmeichel
sem hafði farið til Portúgals eftir
að hafa unnið þrennuna. En fjórir
leikir er ekkert sérstakt. Hann varð
maður leiksins gegn Liverpool í
sínum fyrsta leik en mistök hans
gerðu Liverpool kleift að skora eitt
mark. Næsti leikur var við Chelsea
þar sem United tapaði 5:0. Þriðji
leikurinn var svo frægur leikur
gegn Southampton þar sem hann
var kallaður Blindi Feneyingurinn
af einu dagblaði. Fjórði leikurinn
var svo steindautt 0:0 jafntefli. En
Ferguson var búinn að sjá nóg og
sendi hann aftur til Ítalíu. Milljón
pund á leik er helvíti dýrt – jafn-
vel fyrir Manchester United.
Mario Götze
Skoraði sigurmarkið á HM 2014 og
auðvitað kom FC Bayern bankandi
á dyrnar. En Götze var bara ekki
nógu góður til að spila fyrir stórlið
Bayern og hann var lítið áberandi.
Byrjaði líka á því að vera í Nike-bol
við kynningu sína hjá FC Bayern,
nokkuð sem fór ekki vel í neinn
hjá félaginu enda hafa Adidas og
FC Bayern haldist í hendur ansi
lengi.
Bebe
Rauðliðar í Manchester borg komu
heiminum á óvart þegar Bebe
birtist árið 2010. Sumir segja að
félagið hafi borgað 7,4 milljónir
punda fyrir kappann en aðrir segja
að það hafi verið meira. Allavega
þá var þetta mjög skrýtin kaup
sem enginn skilur.
Jo
Vissulega voru þetta kaup sem
flestir skildu en mánuði eftir að
hann kom var City keypt af for-
ríkum olíuköllum og fór að spila
einhvern annan leik. Út með hið
gamla og inn með hið nýja. Jo var
hluti af því gamla og 16 milljónir
punda fóru í vaskinn. Hann spilaði
21 leik með félaginu og skoraði
eitt mark.
Aðrir góðir flopparar
n Carlos Tevez
Boca Juniors - Shanghai Shenhua
n Christian Benteke
Aston Villa - Liverpool
n Andriy Shevchenko
AC Milan - Chelsea
n Gaizka Mendieta
Valencia - Lazio
n Asier Illarramendi
Real Sociedad - Rel Madrid
n Afonso Alves
Heerenveen – Middlesbrough
n Dani Osvaldo
Roma – Southampton
n Allir sem komu
til Fulham í fyrra
n Roberto Soldado
Valencia – Tottenham
n Alberto Aquilani
Roma – Liverpool
Furðukaup
og flopp
Leikmenn hafa gengið kaupum og sölum þetta
sumarið eins og venjan er. Ljóst er að sum munu
heppnast en önnur ekki eins og sagan hefur
sýnt. Fréttablaðið tók saman nokkur félaga-
skipti sem fá jafnvel reyndustu og fróðustu
sérfræðinga til að klóra sér í kollinum.
Robbie Keane
Það hljómar svolítið klikkað að
Inter hafi keypt 19 ára Íra frá
Coventry á fáránlega upphæð.
Marcello Lippi stýrði Inter og
vildi ólmur fá kauða. En, eins og
svo oft áður þá var Lippi rekinn
og nýi stjórinn vildi ekkert með
Keane hafa. Hann var því lánaður
til Leeds nokkrum mánuðum síðar
eftir sex leiki í Seriu A.
2 9 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
9
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
C
-E
D
7
C
2
3
7
C
-E
C
4
0
2
3
7
C
-E
B
0
4
2
3
7
C
-E
9
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
2
8
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K