Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.07.2019, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 29.07.2019, Qupperneq 14
til að vinna verkefni sem fólk hefur ekki pláss til að vinna heima hjá sér. „Það er nefnilega oft þannig að fólk er með einhverja hugmynd en enga aðstöðu til að láta hana verða að veruleika. Fólk getur þá komið til okkar og fengið lánuð verkfæri og fengið aðstöðu hjá okkur til að nota þau. Þetta gæti til dæmis hentað ungu listafólki, frum­ kvöðlum og handverksfólki ýmiss konar. Við erum núna með söfnun í gangi á Karolina Fund til að vinnuaðstaðan geti orðið að veru­ leika. Eins erum við með söfnun til að geta byggt upp deilimarkað. Þá getur fólk fengið lánaða ýmsa hluti sem það þarf á að halda í stuttan tíma eins og til dæmis tjöld, bökunarform eða teppahreinsara. Bara hitt og þetta sem fólk kannski hefur not fyrir einu sinni og getur þá fengið þessa hluti lánaða í stað þess að kaupa þá,“ útskýrir Anna. Hún leggur áherslu á að þar sem Verkfærasafnið er ekki rekið með hagnaði þá fari allur peningur sem safnast í safnið sjálft, ekk­ ert annað. Til dæmis til að bæta aðstöðuna eða kaupa verkfæri eða hluti til að setja á deilimarkaðinn. „Þann 18. ágúst verðum við með söfnun sem heitir Toolraiser. Við verðum með tónleika og aðgangs­ eyririnn er eitt verkfæri á mann. Við verðum með matardeiliborð. Fólk getur mætt með mat þangað og deilt með öðrum. Fólk getur líka komið með stuttermaboli og fengið að prenta á þá með lógóinu okkar í skiptum fyrir aðild að safninu,“ segir Anna. Fólk er kynningarblað sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson, benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen, solrunfreyja@ frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, Markmiðið með verkfæra­safninu er að veita fólki aðgang að hlutum sem það þarf kannski að nota einstöku sinnum en ekki nógu oft til að það sé að eyða miklum pening í að kaupa,“ segir Anna. Eins og er eru um 580 verkfæri til útláns á safninu og þeim fjölgar stöðugt. „Við fáum helling af verk­ færum gefins en svo kaupi ég líka eitthvað. Ég fer oft í Góða hirðinn eða hef samband við Sorpu til að finna það sem fólk biður um en ég hef það fyrir reglu að ef óskað er eftir ákveðnu verkfæri þrisvar, þá kaupi ég það. Fólk grínast stund­ um með að ég sé með mjög dýrt áhugamál. Ég er alltaf að kaupa rándýr verkfæri fyrir aðra. En ef spurt er þrisvar um einhvern hlut þá hlýtur að vera þörf fyrir hann,“ segir Anna og hlær. Verkfærasafnið virkar eins og bókasafn að því leyti að fólk borgar árgjald til að gerast með­ limur og getur þá fengið verkfæri að láni frá safninu. Anna segir að hægt sé að hafa tvenns konar aðild að safninu. „Þú getur borgað 5.000 krónur í árgjald og tekið út allt að fimm verkfæri í einu og haft þau að láni í þrjá daga sem síðan má fram­ lengja á opnunartíma safnsins. Sú aðild hentar kannski þeim sem þurfa að setja upp hillur hjá sér eða annað smálegt. Svo er hægt að borga 8.000 krónur á ári. Þá er hægt að fá ótakmarkað magn af verkfærum í láni í sjö daga og hægt að framlengja lánið á hvaða tíma sem er, með minnst sólarhrings­ fyrirvara. Dýrari aðildin hentar til dæmis þeim sem eru í stórfram­ kvæmdum eins og að endurnýja eldhúsið hjá sér.“ Anna segir að opnunartími safnsins sé á kvöldin og um helgar til að fólk sem er í vinnu eigi auð­ veldara með að nýta sér þjónustu þess. „Ég bjó í London í tíu ár og ég sakna þess helst þaðan að hafa alls kyns svona þjónustu opna á kvöldin.“ Anna sem er frá Brasilíu þekkir vel til sams konar safna erlendis. Hugmyndina að Reykjavík Tool Library fékk hún þegar hún heim­ sótti vin sinn til Toronto en hann stofnaði slíkt safn þar. „Hugsunin með þessu er ekki að græða pening heldur er þetta samfélagsverkefni. Það hafa ekki allir efni á dýrum hlutum sem þessum og þess vegna langaði mig að bjóða upp á svona safn hér á Íslandi. Ég safnaði upphaflega fyrir verkfærasafninu á Karolina Fund. Ég varð mjög veik og lá á spítala í tvo mánuði. Anna vill bjóða upp á vinnuaðstöðu fyrir fólk til að vinna að ýmsum verkefnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Á verkfæra- safninu eru um 580 verkfæri til útláns. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Erlendis eru starfrækt sambærileg verkfærasöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ Við fáum helling af verkfærum gefins og svo kaupi ég líka eitthvað. Fólk grínast með að ég sé með mjög dýrt áhugamál. Á meðan ég var þar setti ég upp vefsíðuna og hóf söfnunina. Þegar ég útskrifaðist af spítalanum þá var ég komin með nóg fjármagn og þá varð ekki aftur snúið,“ segir Anna. „Verkfærin sem við erum með eru mjög fjölbreytt. Allt frá saumavélum eða borvélum upp í verkfæri til að gera við bíla. Og við erum sífellt að bæta við. Óskalist­ inn sem við erum með er lengri en handleggurinn á mér,“ bætir hún við hlæjandi. Vinnuaðstaða og deilimarkaður Stefnan hjá Verkfærasafninu er að þar verði líka boðið upp á aðstöðu MÚR- OG STEYPUVIÐGERÐIR Hafðu samband info@husavidgerdir.is Sími 565-7070 Finndu okkur á ALHLIÐA MÚRVERK ÞAKVIÐGERÐIR GLUGGASKIPTI 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U DAG U R 2 9 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 8 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 D -0 1 3 C 2 3 7 D -0 0 0 0 2 3 7 C -F E C 4 2 3 7 C -F D 8 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 2 8 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.