Fréttablaðið - 29.07.2019, Síða 30

Fréttablaðið - 29.07.2019, Síða 30
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigríður Ólína Marinósdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum þriðjudaginn 23. júlí. Útförin fer fram frá Selfosskirkju fimmtudaginn 1. ágúst kl. 14.00. Marinó F. Einarsson Valgerður Jakobsdóttir Hansína Ásta Jóhannsdóttir Guðbjörg Jóhannsdóttir Sigdór Vilhjálmsson Guðmundur Rúnar Jóhannsson Sigrún Þórðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Lifandi listaverk á Amtsbókasafninu á Akureyri sem ber yfirskriftina „Áður en ég dey veggur“. Á A m t s b ó k a -s a f n i n u á A k u rey r i er á h u g a v e r t listaverk sem k ref st þát t- töku gesta í opinberu rými. Þar koma fram vonir, ótti, gleði og hugur þátttakend- anna. Listaverkið, sem er lifandi og ber yfirskriftina „Áður en ég dey veggur“, er 2,5 metrar á hæð og 4,8 metr- ar á lengd. Veggurinn hefur 120 línur þar sem gestir rita þau atriði sem þeim eru efst í huga  eða þeir forgangsraða hverju sinni. Berg lind Mar i Valde- marsdóttir, verkefnisstjóri v iðbu rða og sý ninga á Amtsbókasafninu, segir við- tökurnar hafa verið gríðar- lega góðar. Allir staldri við áberandi vegginn. Ritaðar athugasemdir hafa f lestar verið jákvæðar. „Það hefur verið gaman að sjá virkni ólík ra a ldu rshópa . Þau yngstu hafa gjarnan notið aðstoðar eldri systkina. Vel fullorðið fólk hefur líka tekið þátt og allir aldurshópar þar á milli,“ segir hún.   Berglind segir áherslur eða væntingar ólíkar eftir aldurshópum. „Yngra fólk og börn skrifa oftast fram- tíðardrauma sína. Gæludýr á borð við hunda og ketti eru gjarnan á óskalistanum. Þeir fullorðnu vilja meira njóta þess sem er, njóta tímans og vilja vera í sátt við sjálfa sig og sína.“    Einn fimm þúsund veggja Veggurinn er hluti af alþjóð- lega listaverkinu „Before I Die“ sem listakonan Candy Chang er höfundur að og hóf með því að setja verkið upp á yfirgefið hús í New Orleans í Bandaríkjunum árið 2011. Síðan þá hafa að minnsta kosti 5.000 hlið- stæðir veggir verið settir upp í f jölmörgum borgum og bæjum í meira en 75 ríkjum allt frá Kína, Írak, Nígeríu, og Kasakstan. Berglind segir systur sína, Bryndísi Elfu Valdemars- dóttur, verkefnastjóra hjá Akureyrarbæ, hafa verið í sambandi við Candy Chang. Þær systur hafi síðan í sam- einingu fundið verkefninu Deila draumum, óskum og löngunum „Listaverkið vekur fólk til umhugsunar um tilveruna, um stöðu sína, um eigin getu og vilja til að vera þátttakandi í lífinu.“ Þetta er fallegur vettvangur sem gefur fólki færi á að horfa yfir farinn veg, líta til framtíðar og deila framtíðardraumum, óskum og löngunum í opinberu rými. MYND/BERGLIND MARI VALDEMARSDÓTTIR farveg á Amtsbókasafninu. Listaverkið hefur verið opið til þátttöku á safninu frá því í júní en áætlað er að því ljúki 15. ágúst næstkomandi. Notið á marga vegu Berglind segir að hægt sé að njóta listaverksins á ýmsan hátt. „Það er hægt að skrifa á vegginn, lesa það sem aðrir hafa skrifað, mynda vegginn og mannlífið sem myndast í kringum hann eða taka þátt í samræðum sem myndast í tengslum við það sem skrifað er á vegginn. Þar sem veggurinn er í opinberu rými geta allir sem leið eiga um tekið þátt í sköpun hans, hvort sem er með því að deila draumum sínum með öðrum eða skrá hugsanir sínar án þess að vitni séu að því,“ segir hún. „Listaverkið vekur fólk til umhugsunar um tilveruna, um stöðu sína, um eigin getu og vilja til að vera þátt- takandi í lífinu.“ Þetta er fal- legur vettvangur sem gefur fólki færi á að horfa yf ir farinn veg, líta til framtíðar og deila framtíðardraumum, óskum og löngunum í opin- beru rými. Veggurinn er áminning um að við erum ekki ein, hvatning um mikil- vægi þess að eiga sér draum og gera það besta úr lífinu, óháð stétt og stöðu. Það er almenningur sem skapar listaverkið sem til verður. david@frettabladid.is Ást er hinn rauði þráður óháð aldri eða kyni. Það að elska og vera elskaður er undirtónn flestra þátttakenda. Berglind Mari Valdemarsdóttir, verkefnastjóri á Amtsbókasafninu á Akureyri. „Áður en ég dey veggurinn“ er opinn til þátttöku til 15. ágúst. 2 9 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 2 9 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 7 C -E 8 8 C 2 3 7 C -E 7 5 0 2 3 7 C -E 6 1 4 2 3 7 C -E 4 D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 2 8 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.