Fréttablaðið - 29.07.2019, Qupperneq 30
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigríður Ólína Marinósdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu
Fossheimum þriðjudaginn 23. júlí.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju
fimmtudaginn 1. ágúst kl. 14.00.
Marinó F. Einarsson Valgerður Jakobsdóttir
Hansína Ásta Jóhannsdóttir
Guðbjörg Jóhannsdóttir Sigdór Vilhjálmsson
Guðmundur Rúnar Jóhannsson Sigrún Þórðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Lifandi listaverk á
Amtsbókasafninu
á Akureyri sem ber
yfirskriftina „Áður
en ég dey veggur“.
Á A m t s b ó k a -s a f n i n u á A k u rey r i er á h u g a v e r t listaverk sem k ref st þát t-
töku gesta í opinberu rými.
Þar koma fram vonir, ótti,
gleði og hugur þátttakend-
anna. Listaverkið, sem er
lifandi og ber yfirskriftina
„Áður en ég dey veggur“, er
2,5 metrar á hæð og 4,8 metr-
ar á lengd. Veggurinn hefur
120 línur þar sem gestir rita
þau atriði sem þeim eru efst
í huga eða þeir forgangsraða
hverju sinni.
Berg lind Mar i Valde-
marsdóttir, verkefnisstjóri
v iðbu rða og sý ninga á
Amtsbókasafninu, segir við-
tökurnar hafa verið gríðar-
lega góðar. Allir staldri við
áberandi vegginn. Ritaðar
athugasemdir hafa f lestar
verið jákvæðar. „Það hefur
verið gaman að sjá virkni
ólík ra a ldu rshópa . Þau
yngstu hafa gjarnan notið
aðstoðar eldri systkina. Vel
fullorðið fólk hefur líka tekið
þátt og allir aldurshópar þar
á milli,“ segir hún.
Berglind segir áherslur
eða væntingar ólíkar eftir
aldurshópum. „Yngra fólk
og börn skrifa oftast fram-
tíðardrauma sína. Gæludýr
á borð við hunda og ketti eru
gjarnan á óskalistanum. Þeir
fullorðnu vilja meira njóta
þess sem er, njóta tímans og
vilja vera í sátt við sjálfa sig
og sína.“
Einn fimm þúsund veggja
Veggurinn er hluti af alþjóð-
lega listaverkinu „Before I
Die“ sem listakonan Candy
Chang er höfundur að og
hóf með því að setja verkið
upp á yfirgefið hús í New
Orleans í Bandaríkjunum
árið 2011. Síðan þá hafa að
minnsta kosti 5.000 hlið-
stæðir veggir verið settir upp
í f jölmörgum borgum og
bæjum í meira en 75 ríkjum
allt frá Kína, Írak, Nígeríu, og
Kasakstan.
Berglind segir systur sína,
Bryndísi Elfu Valdemars-
dóttur, verkefnastjóra hjá
Akureyrarbæ, hafa verið í
sambandi við Candy Chang.
Þær systur hafi síðan í sam-
einingu fundið verkefninu
Deila draumum, óskum og löngunum
„Listaverkið vekur fólk til umhugsunar um tilveruna, um stöðu sína, um eigin getu og vilja til að vera þátttakandi í lífinu.“ Þetta er fallegur vettvangur sem gefur
fólki færi á að horfa yfir farinn veg, líta til framtíðar og deila framtíðardraumum, óskum og löngunum í opinberu rými. MYND/BERGLIND MARI VALDEMARSDÓTTIR
farveg á Amtsbókasafninu.
Listaverkið hefur verið opið
til þátttöku á safninu frá
því í júní en áætlað er að því
ljúki 15. ágúst næstkomandi.
Notið á marga vegu
Berglind segir að hægt sé að
njóta listaverksins á ýmsan
hátt. „Það er hægt að skrifa
á vegginn, lesa það sem
aðrir hafa skrifað, mynda
vegginn og mannlífið sem
myndast í kringum hann eða
taka þátt í samræðum sem
myndast í tengslum við það
sem skrifað er á vegginn. Þar
sem veggurinn er í opinberu
rými geta allir sem leið eiga
um tekið þátt í sköpun hans,
hvort sem er með því að deila
draumum sínum með öðrum
eða skrá hugsanir sínar án
þess að vitni séu að því,“
segir hún.
„Listaverkið vekur fólk til
umhugsunar um tilveruna,
um stöðu sína, um eigin
getu og vilja til að vera þátt-
takandi í lífinu.“ Þetta er fal-
legur vettvangur sem gefur
fólki færi á að horfa yf ir
farinn veg, líta til framtíðar
og deila framtíðardraumum,
óskum og löngunum í opin-
beru rými. Veggurinn er
áminning um að við erum
ekki ein, hvatning um mikil-
vægi þess að eiga sér draum
og gera það besta úr lífinu,
óháð stétt og stöðu. Það er
almenningur sem skapar
listaverkið sem til verður.
david@frettabladid.is
Ást er hinn rauði þráður
óháð aldri eða kyni.
Það að elska og vera
elskaður er undirtónn
flestra þátttakenda.
Berglind Mari Valdemarsdóttir, verkefnastjóri á Amtsbókasafninu á Akureyri.
„Áður en ég dey veggurinn“ er opinn til þátttöku til 15. ágúst.
2 9 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
2
9
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
7
C
-E
8
8
C
2
3
7
C
-E
7
5
0
2
3
7
C
-E
6
1
4
2
3
7
C
-E
4
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
0
s
_
2
8
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K