Fréttablaðið - 29.07.2019, Blaðsíða 34
EKKERT
BRUDL
Hafrarvörur
Yosa Grísk Hafrajógúrt
Hrein, 500 g
kr./1 l259
Yosa Hafradrykkur Rich
Barista, 1 l
kr./500 g298
Gott í kaffið
Auðvelt að flóa
Fígúrur Steinunnar
Þórarinsdóttur
á þaki Arnarhvols
prýða miðbæinn
og vekja verð-
skuldaða athygli.
Tákn, listaverk Stein-unnar Þórarinsdóttur á þaki Arnarhvols við Ingólfsstræti, setur sannarlega skemmti-legan svip á miðbæ-
inn, en þarna er um að ræða ellefu
fígúrur úr steyptu áli.
„Þessar fígúrur voru upphaf-
lega gerðar fyrir sýningu í sögu-
safni þýska hersins í Dresden sem
er mögnuð bygging frá 18. öld með
viðbót eftir Daniel Liebeskind frá
árinu 2013. Verkin voru staðsett á
ákveðnum stöðum á þessari bygg-
ingu sem geymdi á sínum tíma
vopnabúr þýska hersins. Þar höfðu
áður verið klassískar styttur af
karlmönnum með skildi og sverð,
en þær hurfu í stríðinu 1943 og
fundust aldrei aftur. Grunnhug-
myndin var að setja á sömu staði
mínar kynlausu fígúrur og skapa
þannig andstæður við gömlu
verkin og hugmyndina um stríð
og of beldi,“ segir Steinunn.
Nú prýða þessar sömu fígúrur
Arnarhvol. Steinunn er spurð
hvað hún vilji að þær tákni. „Þær
eru eins og öll mín verk ákveðinn
óður til mennskunnar í okkur
öllum, óháð kyni og litarhætti. Þær
eru líka tilvísun í þá fornu hefð
höggmynda sem prýða gamlar
byggingar víða um heim og eru oft
staðsettar á þökum eða ofarlega á
byggingum þannig að áhorfand-
inn horfir upp til þeirra. Meðan ég
vann að verkinu þá dvaldi ég í Róm
á gestavinnustofu norrænna lista-
manna sem er nánast við hliðina á
Vatíkaninu en þar má einmitt víða
sjá dæmi um þessa fornu hefð. Hér
á Íslandi var bara ein bygging svo
vitað sé með slíkum fígúrum uppi
á þaki en það var gamla apótekið
við Austurvöll sem nú er horfið.
Á því voru tvö verk eftir Thor-
valdsen.
Það er líka áhugavert að setja
hluti í nýtt samhengi, eins og ger-
ist þegar þetta verk var sett upp á
Arnarhvol í nágrenni við Arnarhól,
þann táknræna stað. Um leið horfa
fígúrurnar yfir hinn nýja miðbæ.
Í þessari innsetningu má á vissan
hátt nema samruna hins gamla
og nýja en það er tema sem ég hef
lengi verið upptekin af.
Í heild hefur verkið í mínum
huga margar raddir, rétt eins og
margradda kór. Hver og ein fígúra
er einstök og á sitt lag en saman
mynda þær heild sem er stærri og
meiri en einstaklingarnir sjálfir.“
Eins konar kennileiti
Sýningin er hluti af dagskrá Lista-
safns Reykjavíkur á ári listar í
almannarými og til stendur að
verkin verði tekin niður í byrjun
september. Fari svo er víst að margir
munu sakna þeirra en fígúrurnar
hafa vakið gríðarlega athygli. Áhug-
inn á þeim hefur ekki farið fram hjá
Steinunni. „Ráðuneytisfólk í Arnar-
hvoli segir mér að það sé mikið
um það að fólk komi inn og spyrji
um þær og endalaust er verið að
mynda verkið. Það er orðið að eins
konar kennileiti og mér finnst frá-
bært hvað því hefur verið vel tekið.
Þessi sýning er heljarinnar inngrip
í umhverfi sem við erum vön að
sjá og upplifa á einn hátt eða erum
kannski hætt að taka eftir.“
Finnst henni nægilega mikið
hugað að list í almannarými hér
á landi? „Að mörgu leyti erum við
þokkalega stödd miðað við mörg
önnur lönd í þeim efnum ef við
eigum að nota það sem viðmið,“
segir hún. „Listin er gríðarlega
mikilvægur hluti af umhverfinu og
hún hreyfir við fólki og fær það til
að horfa á umhverfið öðruvísi en
það er vant að gera. Hver manneskja
tengist svo við verkin á sinn per-
Óður til mennskunnar
„Listin er gríðarlega mikilvægur hluti af umhverfinu og hún hreyfir við fólki,“ segir Steinunn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
sónulega hátt, sem er líka skemmti-
legt.“
Þessa dagana er Steinunn að
vinna verk fyrir svissneskan safn-
ara. „Þetta er fígúra sem er unnin
sérstaklega fyrir garðinn hjá honum
og mun horfa yfir til svissnesku
Alpanna. Ég er líka þessa dagana að
gera tillögu að verki fyrir lagadeild
Háskólans í Vancouver í Kanada.“
Verk sem heilla alla
Steinunn er eftirsóttur listamaður
og reyndar svo mjög að verkum
hennar hefur verið stolið oftar en
einu sinni, síðast í fyrra í Bandaríkj-
unum. Verk hennar heilla jafnt börn
sem fullorðna og sjálf hefur hún orð
á því með bros á vör að hundar sýni
þeim oft sérstakan og lifandi áhuga.
„Þeir eru áberandi hissa því þeir eru
vanir að sjá fólk hreyfa sig og þegar
þeir sjá þessar hreyfingarlausu
verur verða þeir bæði hræddir og
spenntir.“
Spurð hvað hún haldi að geri að
verkum að fólk tengi svo vel við
verkin segir hún: „Ég held að það sé
mennskan og að hluta til líka það
að verkin eru hlutlaus og verða eðli-
legur hluti af mannlegu umhverfi.
Þannig geta allir samsamað sig við
þær. Svo er líka mikið til í frasanum
að maður sé manns gaman. Við
erum forvitin um okkur sjálf.“
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
ÞESSI SÝNING ER
HELJARINNAR
INNGRIP Í UMHVERFI SEM VIÐ
ERUM VÖN AÐ SJÁ OG UPPLIFA Á
EINN HÁTT EÐA ERUM KANNSKI
HÆTT AÐ TAKA EFTIR.
„Í heild hefur verkið í mínum huga margar raddir, rétt eins og margradda kór.“
2 9 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R18 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
2
9
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
8
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
7
D
-0
B
1
C
2
3
7
D
-0
9
E
0
2
3
7
D
-0
8
A
4
2
3
7
D
-0
7
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
2
8
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K