Fréttablaðið - 10.08.2019, Blaðsíða 16
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Kannski er
vandi Sjálf-
stæðisflokks-
ins sá að
hann hefur
leitast við að
þóknast
öllum. Sigla
lygnan sjó. Úr
verða hvorki
né stjórnmál.
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Sjálfstæðisflokkurinn á undir högg að sækja í skoðanakönnunum. Flokkurinn sem lengi vel gat gengið að þriðja hverju atkvæði vísu, mælist nú með tæplega tuttugu prósenta fylgi.Þessi staða kemur ekki á óvart. Þróunin
alþjóðlega hefur verið sú að hefðbundnir kjölfestu
flokkar geta ekki lengur gengið að fylgi sínu vísu. Efna
hagshrunið 2008 kom flokknum illa, og hefur hann æ
síðan verið í tilvistarkreppu.
Strax í kjölfarið vildi ný kynslóð forystumanna í
flokknum halla sér að Evrópusambandinu og taka upp
evruna. Núverandi formaður skrifaði blaðagreinar
þeirri skoðun til stuðnings. En harðlínuöfl í flokknum
hleyptu loftinu fljótlega úr þeirri blöðru. Hópur
flokksmanna taldi sig í framhaldinu ekki eiga samleið
með flokknum og stofnaði Viðreisn, sveit frjálslyndra
og alþjóðasinnaðra fyrrverandi Sjálfstæðismanna.
Nú er staðan sú að Sjálfstæðisflokkurinn virðist
vera milli steins og sleggju. Skynsamlega þenkjandi
hægri fólk á kost í Viðreisn. Íhaldssamari og þjóðernis
sinnaðri kjósendur hafa Miðflokkinn. Andlegur leið
togi og klappstýra síðarnefnda hópsins er fyrrverandi
formaðurinn og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins.
Hann spýr nú eldi og brennisteini á síðum blaðsins.
Kannski er vandi Sjálfstæðisflokksins sá að hann
hefur leitast við að þóknast öllum. Sigla lygnan sjó.
Úr verða hvorki né stjórnmál. Sjaldgæft er að heyra
flokksmenn eða kjörna fulltrúa færa hugmyndafræði
leg rök fyrir máli sínu. Að nálgast mál frá markaðs
legum forsendum eða hægri stefnu á ekki að vera
feimnismál. Þvert á móti.
Sjálfstæðisflokkurinn stendur á krossgötum. Valið
virðist standa milli þess að halla sér í átt til íhaldssam
ari gilda, og sækja á mið Miðflokksins og Framsóknar,
eða að tala fyrir alþjóðlegum gildum og frelsi í við
skiptum. Umræðan um Orkupakkamálið gæti markað
tímamót. Forysta flokksins hefur almennt staðið vörð
um Evrópusamstarfið og staðið uppi í hárinu á íhalds
samari og popúlískari flokkssystkinum.
Mögulega er þetta leiðarljós um hvernig Sjálf
stæðisflokkurinn geti markað sér sérstöðu í breyttu
pólitísku umhverfi. Látið popúlíska einangrunarsinna
lönd og leið, en sótt á hinn vænginn. Talað af sann
færingu um frelsi í viðskiptum og alþjóðahyggju. Með
því má kannski ná Viðreisnarkjósendum aftur heim.
Nú er reynt að láta sverfa til stáls með undirskrifta
söfnun innan Sjálfstæðisflokksins þar sem krafist er
almennrar kosningar um afstöðu flokksmanna til
þriðja Orkupakkans.
Miðflokksmenn hafa af listfengi áróðursmannsins
náð því að slá sig til riddara í Klaustursfárinu. Þeir
kunna að tala til síns hóps. En erindi þeirra í pólitík er
óskiljanlegt, annað en að skapa persónu Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar vettvang á stjórnmálasviðinu.
Saga sérframboða á óskýrri vegferð bendir til þess að
ævintýrið verði skammlíft.
Sjálfstæðisflokkurinn ætti að hugsa til lengri tíma
og hætta eltingaleik við mestu popúlistana hverju
sinni.
Hvorki né
Sumarið líður senn undir lok. Haustið gengur í garð sem óskrifað blað og angan af nýydduðum blýöntum. Ný árstíð, nýtt upphaf, fögur fyrirheit;
tékklisti yfir skref í átt að hamingju og heilbrigði.
En hvar skal byrja? Ekki vandamál. Samtíminn er
með hamingjuna á heilanum, velferð sálar og líkama.
Svörin láta ekki á sér standa.
Lifa og njóta. Maður verður að lifa og njóta. Því ef
maður er ekki að njóta er maður ekki að lifa. Og við
lifum jú bara einu sinni. Hverjum degi skal lifað eins
og hann sé sá síðasti. Þú þarft að gera hluti. Ganga á
fjöll, lesa bók, hlaupa maraþon og skrá þig á nám
skeið. Ferðast. Helst til Balí. Eða Víetnam. Þú þarft að
gera þér glaðan dag og gera það gott. Gera, gera, gera.
Gera betur í dag en í gær.
En okkur þarf líka að leiðast. Það er gott fyrir
hugann að gera ekki neitt. Iðjuleysi er uppspretta
hugmyndanna. Það er aðeins í tóminu sem eitthvað
verður til. Maður verður að vera frjór. Og fyndinn.
Segja brandara á Facebook. Hvað gerði Sigmundur
Davíð í dag? Upp með símann.
Nei, niður með símann. Það er ekki hollt að sitja
lengi. Og ekki f lott að vera sófakartafla. Gott er að
ganga. Ganga rösklega. Ná hjartslættinum upp. Upp,
upp, upp. Upp í 150 slög á mínútu. Upp, upp mín sál og
allt mitt geð. Upp, upp mitt hjarta og –
Nei, stopp, stopp, stopp. Það þarf að staldra við
og þefa af rósunum. Fara sér hægt og dvelja í andar
takinu. Andartakið er allt. Hitt er aðeins eftirsókn
eftir vindi. Anda inn, anda út. Hvað á að hafa í kvöld
matinn? Nei! Ekki klúðra núvitundinni. Verð að fara á
námskeið í hugleiðslu. Bæti því á tékklistann á meðan
ég lifi í núinu. Því ekki má gleyma framtíðinni. Það
þarf að gera plön. Setja sér markmið. Þú nærð ekki til
tunglsins nema þú setjir markið á stjörnurnar.
Það er uppbókað til Víetnam. Ætli Richard Branson
sé farinn að bjóða upp á ferðir út í geim?
Úps, andartakið; ekki gleyma að vera, vera hér og
nú og að njóta þess smáa. Leika við börnin. Byggja úr
Legó. En ég þoli ekki Legó. Það gengur ekki. Þú verður
að njóta. Það eru forréttindi að eiga börn. Og Legó. Það
er ekki nóg að kubba heldur verður þér að finnast það
gaman. Gaman, gaman, njóta, njóta.
Og ekki gleyma sjálfri þér. Maður verður að rækta
garðinn sinn. Hamingjusöm móðir, hamingjusöm
börn. Mikilvægt er að leyfa sér að fara í ræktina,
saumaklúbbinn, hugleiðslunámskeiðið, bókaklúbb
inn, klippingu og litun, hitta vinkonurnar á „happy
hour“, brosa, taka sjálfu, setja hana á Facebook: „Sjáið,
ég er að lifa og njóta“. Gera, gera, gera. Því að gera er að
vera – vera til.
Ég er það sem ég geri. En ég er líka það sem ég borða.
Verður að vera heimalagað. Hver vill vera gangandi
jurtafita, hert, í bland við E334. Skræla, saxa, brytja,
blanda, baka, borða – en ekki of mikið. En líka leyfa
sér – en ekki of mikið. Vera góð við sjálfa sig – en ekki
of mikið.
Allt er gott í hófi – Er hóf gott í hófi?
Lifa og upplifa, gera og leiðast, berast með
straumnum, stefna til stjarnanna, lifa í núinu, setja
sér markmið, kokteill á hamingjustund, leika með
Legó, saxa lauk, hamingjutár, anda, súrefni er frum
efni lífsins. Og annað sem þarf að gera: Sofa. Við
verðum að sofa. Mikið. Rannsóknir sýna það. Sálin
hleðst í svefni.
Og þar höfum við lykilinn að hamingjunni: Gera
allt, gera ekki neitt. Fara sér hratt, fara sér hægt.
Standa kyrr, stefna til tunglsins. Standa í stað, alla leið
til stjarnanna. Sinna sér, sinna öðrum. Vera hér og
vera þar, alls staðar og hvergi, vakin og sofin, gera og
lifa og njóta.
Sagt er að lífið sé það sem hendir okkur á meðan við
erum upptekin við að gera aðrar áætlanir. Getur verið
að hamingjuna sé að finna í glufunum milli þeirra
stunda sem við erum upptekin við að leita hennar?
Lykill að hamingju
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á serlyfjaskra.is.
Haltu þínu striki!
Harpatinum við gigtar- og liðverkjum.
Bætir hreyfigetu og dregur úr stirðleika.
Fæst án lyfseðils í næsta apóteki Viðurkennt af Ly astofnun
1 0 . Á G Ú S T 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
1
0
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:0
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
9
0
-C
7
6
8
2
3
9
0
-C
6
2
C
2
3
9
0
-C
4
F
0
2
3
9
0
-C
3
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
9
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K