Fréttablaðið - 10.08.2019, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 10.08.2019, Blaðsíða 18
Nú er það bara hennar að standa sig. Hún er ekki að fara á þessar æfingar bara til að vera með, svo mikið er víst. Það myndi koma mér mjög á óvart. Rúnar Haraldsson, faðir Cecilíu Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is 1 0 . Á G Ú S T 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð FÓTBOLTI „Ég var glaður og stoltur og allt það en ég get alveg viður- kennt að þetta er aðeins á undan áætlun,“ segir Rúnar Haraldsson, faðir Cecilíu Ránar sem fagnaði 16 ára afmæli sínu ekki alls fyrir löngu. Cecilía var valin í A-landslið kvenna á fimmtudag. Aðalmarkvörður landsliðsins, Guðbjörg Gunnarsdóttir, er ólétt og verður því ekki með í komandi verkefnum en Cecilía mun berjast um stöðuna við þær Söndru Sig- urðardóttur, markvörð Vals, og Sonný Láru Þráinsdóttur, mark- vörð Breiðabliks. „Nú er það bara hennar að standa sig. Hún er ekki að fara á þessar æfingar bara til að vera með, svo mikið er víst. Það myndi koma mér mjög á óvart og væri alveg nýtt því þannig er ekki hennar karakter. Ég veit alveg hver hennar takmörk eru og þetta er vonandi bara fyrsta skrefið, en ég er kannski ekki alveg hlutlaus,“ segir Rúnar. Móðir Cecilíu, Hrund Guð- mundsdóttir, var stödd erlendis þegar kallið kom. „Það er leiðin- legt að vera í burtu á svona stórum degi. Hún er ótrúlega f lott og hefur rosalega mikinn metnað og f lott í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur. Ég varð ótrúlega glöð fyrir hennar hönd,“ náði hún að segja við Fréttablaðið rétt áður en hún þurfti að fara um borð í f lugvélina til Íslands. Stærri en Renard Knattspyrnuáhugamenn heyrðu trúlega nafn Cecilíu fyrst fyrir um tveimur árum þegar hún var þá rétt við fermingaraldurinn og spilaði f imm leiki fyrir Aftureldingu/ Fram í 2. deildinni. Liðið f laug upp í Inkasso deildina þar sem hún var hún komin í rammann sem aðal- markvörður. „Júlíus Ármann Júlíusson, sem þjálfaði liðið, sá hana á æfingum og tók hana upp í meistaraf lokk- inn. Gefur henni séns og hún er komin í byrjunarliðið nánast fyrir fermingu,“ segir Rúnar og bætir við að aldur sé bara einhver tala. Ef maður er nógu góður sé maður nógu gamall. „Hún er stór og ég held að hún sé orðin 188 sentimetrar sem gerir hana einum sentimetra stærri en Wendie Renard, sem er leikmaður Frakka og var hæsta konan á HM kvenna. Hún hefði sem sagt verið hæsti leikmaðurinn á HM sem við sáum og hlógum mikið að. Hún er allavega hærri en ég,“ segir hann og hlær. Cecilía byrjaði snemma að æfa fótbolta. Fyrst með Þrótti en eftir að hún f lutti í Mosfellsbæinn fóru hanskarnir á loft. „Frá því á Pæju- mótinu, þegar hún fór fyrst í mark- ið, þá sá maður að það var eitthvað þarna. Taktarnir og annað, sem var henni svo eðlilegt að gera og er nánast vonlaust að kenna, var auðvelt. Hún hefur alltaf skarað svolítið fram úr og fundið sig vel í markinu,“ segir hann og bætir við að hún hafi verið hörkuspilari áður en hún tók upp markmanns- hanskana. „Hún var hörkuleik- maður og er góð með boltann. Hún var byrjuð að vera betri en ég ansi snemma. Það er bullandi fót- bolti í henni líka varðandi tækni og annað og trúlega gæti hún haldið á lofti yfir þúsund sinnum.“ Lukkuskref að vera hjá Steina Rúnar segir að það hafi verið mikil heppni fyrir dóttur sína að kynn- ast Þorsteini Magnússyni mark- mannsþjálfara. „Steini er búinn að vera með henni í einhver þrjú ár. Hann kynntist henni í KSÍ mark- mannsbúðum og hafði samband við mig og vildi vinna með henni. Ég kynntist honum svo betur og vildi að hún væri hjá honum. Það var mikið lukkuskref. Svo fer hann til Fylkis á síðasta ári og verður markmannsþjálfari karla og kvenna. Cesilía fann eftir tímabilið í fyrra að hún vildi færa sig skrefi ofar og fara í Pepsi. Kjartan Stef- ánsson, þjálfari Fylkis, hafði verið verið að fylgjast með henni og fyrir okkur var þetta engin spurning eða efi að ganga í raðir Fylkis. Nú er hún komin með mark- mannsþjálfarann sinn sem aðstoð- arþjálfara og mann sem er á öllum æfingum sem er erfitt að toppa. Plús líka að ég vissi að Kjartan væri til í að taka áhættu með því að henda henni út í djúpu laugina. Hún var bara 15 ára og f lestir voru ekki alveg að kaupa það að hann ætlaði að setja 15 ára stelpu í mark- ið í Pepsi Max deildinni. Svo þegar tækifærið kom þá greip hún það og hefur ekki litið um öxl síðan. Ég held líka að hún hafi tekið lítil skref, ekki of stór í einu. Þetta snýst bara um að fá að spila. Það er það eina sem skiptir máli, finnst mér. Að finna stað þar sem leikmaður finnur traust og fær að spila. En auðvitað er þetta að gerast hraðar en ég átti von á, eðlilega. En hitt var líka hratt. Að fara að spila með meistaraf lokki UMFA áður en hún fermdist og vera komin í Pepsi Max aðeins 15, en landsliðið er auðvitað miklu stærra. Ég hef samt engar áhyggjur af henni.“ SPORT Cecilía, sem fagnaði sextán ára afmæli sínu á dögunum, hefur verið í U17 ára liði Íslands undanfarin ár en er nú í fyrsta sinn kölluð inn í A-landsliðið. Þar mun hún takast á við skotæfingar gegn Söru Björk og fleiri stjörnum. Allt gengið á bakvið landsliðsmarkvörðinn. Þorsteinn Magnússon, Hrund, Rúnar, Birta Líf og Kjartan Stefánsson á Fylkisvelli. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Sé maður nógu góður er maður nógu gamall til að vera valinn í landsliðið Foreldrar Cecilíu Ránar Rúnarsdóttur, 16 ára markvarðar kvenna- landsliðsins, eru gríðar- lega stoltir af dóttur sinni sem var valin í fyrsta sinn í A-lands- liðið á fimmtudag. Faðir hennar segir að hún sé ekki bara mætt til að taka þátt og vera með á æfingum. Hún ætli sér stóra hluti í framtíðinni. Cecilía Rán Rúnarsdóttir Fædd árið 2003 MÓT LEIKIR • A-deild 11 • B-deild 13 • C-deild 5 • Bikar 6 Samtals 35 • Nefnd í lið ársins í 2. deild kvenna árið 2017 á fótbolta. net • Valin efnilegust í Inkasso deild kvenna 2018 af fótbolta. net • Semur við Fylki í október 2018 • Valinn í A-landsliðið 8.8. 2019 Landsliðsþjálfarinn spenntur Cecilía, sem fagnaði sextán ára afmæli sínu á dögunum, hefur verið í U17 ára liði Íslands undanfarin ár en er nú í fyrsta sinn kölluð inn í landsliðið. „Ég hef ekki unnið með Cecilíu en er mjög spenntur fyrir því, ég hef hitt og rætt við fólkið í kringum hana í aðdraganda þess að við völdum hana í hópinn. Hún er auðvitað ung og óreynd á þessu stigi en er með tvo reynslumikla markmenn með sér sem eiga eftir að hjálpa henni gríðarlega mikið.“ 1 0 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :0 9 F B 0 9 6 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 9 0 -D 6 3 8 2 3 9 0 -D 4 F C 2 3 9 0 -D 3 C 0 2 3 9 0 -D 2 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 9 6 s _ 9 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.