Fréttablaðið - 10.08.2019, Side 18
Nú er það bara
hennar að standa
sig. Hún er ekki að fara á
þessar æfingar bara til að
vera með, svo mikið er víst.
Það myndi koma mér mjög á
óvart.
Rúnar Haraldsson, faðir Cecilíu
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is
1 0 . Á G Ú S T 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
FÓTBOLTI „Ég var glaður og stoltur
og allt það en ég get alveg viður-
kennt að þetta er aðeins á undan
áætlun,“ segir Rúnar Haraldsson,
faðir Cecilíu Ránar sem fagnaði
16 ára afmæli sínu ekki alls fyrir
löngu. Cecilía var valin í A-landslið
kvenna á fimmtudag.
Aðalmarkvörður landsliðsins,
Guðbjörg Gunnarsdóttir, er ólétt
og verður því ekki með í komandi
verkefnum en Cecilía mun berjast
um stöðuna við þær Söndru Sig-
urðardóttur, markvörð Vals, og
Sonný Láru Þráinsdóttur, mark-
vörð Breiðabliks.
„Nú er það bara hennar að
standa sig. Hún er ekki að fara á
þessar æfingar bara til að vera með,
svo mikið er víst. Það myndi koma
mér mjög á óvart og væri alveg nýtt
því þannig er ekki hennar karakter.
Ég veit alveg hver hennar takmörk
eru og þetta er vonandi bara fyrsta
skrefið, en ég er kannski ekki alveg
hlutlaus,“ segir Rúnar.
Móðir Cecilíu, Hrund Guð-
mundsdóttir, var stödd erlendis
þegar kallið kom. „Það er leiðin-
legt að vera í burtu á svona stórum
degi. Hún er ótrúlega f lott og
hefur rosalega mikinn metnað og
f lott í öllu sem hún tekur sér fyrir
hendur. Ég varð ótrúlega glöð fyrir
hennar hönd,“ náði hún að segja
við Fréttablaðið rétt áður en hún
þurfti að fara um borð í f lugvélina
til Íslands.
Stærri en Renard
Knattspyrnuáhugamenn heyrðu
trúlega nafn Cecilíu fyrst fyrir um
tveimur árum þegar hún var þá rétt
við fermingaraldurinn og spilaði
f imm leiki fyrir Aftureldingu/
Fram í 2. deildinni. Liðið f laug upp
í Inkasso deildina þar sem hún var
hún komin í rammann sem aðal-
markvörður.
„Júlíus Ármann Júlíusson, sem
þjálfaði liðið, sá hana á æfingum
og tók hana upp í meistaraf lokk-
inn. Gefur henni séns og hún er
komin í byrjunarliðið nánast fyrir
fermingu,“ segir Rúnar og bætir
við að aldur sé bara einhver tala.
Ef maður er nógu góður sé maður
nógu gamall.
„Hún er stór og ég held að hún
sé orðin 188 sentimetrar sem gerir
hana einum sentimetra stærri en
Wendie Renard, sem er leikmaður
Frakka og var hæsta konan á HM
kvenna. Hún hefði sem sagt verið
hæsti leikmaðurinn á HM sem við
sáum og hlógum mikið að. Hún er
allavega hærri en ég,“ segir hann
og hlær.
Cecilía byrjaði snemma að æfa
fótbolta. Fyrst með Þrótti en eftir
að hún f lutti í Mosfellsbæinn fóru
hanskarnir á loft. „Frá því á Pæju-
mótinu, þegar hún fór fyrst í mark-
ið, þá sá maður að það var eitthvað
þarna. Taktarnir og annað, sem
var henni svo eðlilegt að gera og
er nánast vonlaust að kenna, var
auðvelt. Hún hefur alltaf skarað
svolítið fram úr og fundið sig vel
í markinu,“ segir hann og bætir
við að hún hafi verið hörkuspilari
áður en hún tók upp markmanns-
hanskana. „Hún var hörkuleik-
maður og er góð með boltann.
Hún var byrjuð að vera betri en ég
ansi snemma. Það er bullandi fót-
bolti í henni líka varðandi tækni og
annað og trúlega gæti hún haldið á
lofti yfir þúsund sinnum.“
Lukkuskref að vera hjá Steina
Rúnar segir að það hafi verið mikil
heppni fyrir dóttur sína að kynn-
ast Þorsteini Magnússyni mark-
mannsþjálfara. „Steini er búinn að
vera með henni í einhver þrjú ár.
Hann kynntist henni í KSÍ mark-
mannsbúðum og hafði samband
við mig og vildi vinna með henni.
Ég kynntist honum svo betur
og vildi að hún væri hjá honum.
Það var mikið lukkuskref. Svo
fer hann til Fylkis á síðasta ári og
verður markmannsþjálfari karla og
kvenna. Cesilía fann eftir tímabilið
í fyrra að hún vildi færa sig skrefi
ofar og fara í Pepsi. Kjartan Stef-
ánsson, þjálfari Fylkis, hafði verið
verið að fylgjast með henni og fyrir
okkur var þetta engin spurning eða
efi að ganga í raðir Fylkis.
Nú er hún komin með mark-
mannsþjálfarann sinn sem aðstoð-
arþjálfara og mann sem er á öllum
æfingum sem er erfitt að toppa.
Plús líka að ég vissi að Kjartan
væri til í að taka áhættu með því
að henda henni út í djúpu laugina.
Hún var bara 15 ára og f lestir voru
ekki alveg að kaupa það að hann
ætlaði að setja 15 ára stelpu í mark-
ið í Pepsi Max deildinni. Svo þegar
tækifærið kom þá greip hún það og
hefur ekki litið um öxl síðan.
Ég held líka að hún hafi tekið lítil
skref, ekki of stór í einu. Þetta snýst
bara um að fá að spila. Það er það
eina sem skiptir máli, finnst mér.
Að finna stað þar sem leikmaður
finnur traust og fær að spila.
En auðvitað er þetta að gerast
hraðar en ég átti von á, eðlilega. En
hitt var líka hratt. Að fara að spila
með meistaraf lokki UMFA áður en
hún fermdist og vera komin í Pepsi
Max aðeins 15, en landsliðið er
auðvitað miklu stærra. Ég hef samt
engar áhyggjur af henni.“
SPORT
Cecilía, sem fagnaði sextán ára afmæli sínu á dögunum, hefur verið í U17 ára liði Íslands undanfarin ár en er nú í
fyrsta sinn kölluð inn í A-landsliðið. Þar mun hún takast á við skotæfingar gegn Söru Björk og fleiri stjörnum.
Allt gengið á bakvið landsliðsmarkvörðinn. Þorsteinn Magnússon, Hrund,
Rúnar, Birta Líf og Kjartan Stefánsson á Fylkisvelli. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sé maður nógu góður er maður nógu
gamall til að vera valinn í landsliðið
Foreldrar Cecilíu Ránar
Rúnarsdóttur, 16 ára
markvarðar kvenna-
landsliðsins, eru gríðar-
lega stoltir af dóttur
sinni sem var valin í
fyrsta sinn í A-lands-
liðið á fimmtudag. Faðir
hennar segir að hún sé
ekki bara mætt til að
taka þátt og vera með á
æfingum. Hún ætli sér
stóra hluti í framtíðinni.
Cecilía Rán
Rúnarsdóttir
Fædd árið 2003
MÓT LEIKIR
• A-deild 11
• B-deild 13
• C-deild 5
• Bikar 6
Samtals 35
• Nefnd í lið ársins í 2. deild
kvenna árið 2017 á fótbolta.
net
• Valin efnilegust í Inkasso
deild kvenna 2018 af fótbolta.
net
• Semur við Fylki í október 2018
• Valinn í A-landsliðið 8.8. 2019
Landsliðsþjálfarinn
spenntur
Cecilía, sem fagnaði sextán
ára afmæli sínu á dögunum,
hefur verið í U17 ára liði Íslands
undanfarin ár en er nú í fyrsta
sinn kölluð inn í landsliðið.
„Ég hef ekki unnið með Cecilíu
en er mjög spenntur fyrir því,
ég hef hitt og rætt við fólkið
í kringum hana í aðdraganda
þess að við völdum hana í
hópinn. Hún er auðvitað ung og
óreynd á þessu stigi en er með
tvo reynslumikla markmenn
með sér sem eiga eftir að hjálpa
henni gríðarlega mikið.“
1
0
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:0
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
9
0
-D
6
3
8
2
3
9
0
-D
4
F
C
2
3
9
0
-D
3
C
0
2
3
9
0
-D
2
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
9
6
s
_
9
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K