Fréttablaðið - 10.08.2019, Page 42
Rafvirki-
tæknimaður
Smith & Norland vill ráða
tæknimann til starfa í
þjónustudeild fyrirtækisins.
Starfið felur í sér viðgerðir og þjónustu á heimilistækjum og öðrum
rafbúnaði, afgreiðslu varahluta, símsvörun og ýmis önnur störf á
þjónustuverkstæði okkar.
Leitað er að röskum og sjálfstæðum einstaklingi, rafvirkja eða aðila með
sambærilega menntun, sem vill takast á við áhugavert starf og hefur
mikinn áhuga á þjónustu og mannlegum samskiptum.
Um er að ræða gott framtíðarstarf hjá traustu og framsæknu fyrirtæki á
rafmagnssviði.
Áhugasamir sendi umsókn á halldorh@sminor.is eða skili slíkri á
skrifstofu fyrirtækisins með upplýsingum um menntun og fyrri
störf fyrir 16. ágúst.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu okkar, sminor.is,
(undir flipanum UM OKKUR).
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem algjört trúnaðarmál.
ATVINNULÍFSTENGILL
VIRK leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf atvinnulífstengils.
Megináherslur í verkefnum atvinnulífstengils er að virkja fyrirtæki og
stofnanir atvinnulífsins til að taka virkan þátt í árangursríkri starfsendur-
hæfingu og auðvelda þannig einstaklingum endurkomu til vinnu eftir
veikindi eða slys.
Helstu verkefni
• Mynda samband við og heimsækja fyrirtæki og stofnanir í þeim tilgangi
að finna viðeigandi störf fyrir einstaklinga í starfsendurhæfingu
• Ráðgjöf vegna einstaklinga í þjónustu og aðstoð við atvinnuleit
• Samstarf við þverfagleg teymi og öflun og miðlun upplýsinga
• Framfylgja verkferlum, annast skráningu og skýrslugerð
• Veita fyrirtækjum sem ráða til sín einstaklinga í starfsendurhæfingu
stuðning og samtvinna þannig starfendurhæfingarferlið við
atvinnuþátttöku
• Umbóta- og þróunarstarf
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Metnaður, frumkvæði og fagmennska
• Hagnýt starfsreynsla og mjög góð þekking á vinnumarkaði
• Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Ástríða fyrir því að starfa úti í samfélaginu og vera á ferðinni
• Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
• Félagslyndi, frumkvæði og jákvætt viðmót
• Gott vald á íslensku og ensku ásamt góðri tölvukunnáttu
Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa
með árangursríkri starfsendurhæfingarþjónustu. VIRK hefur í samstarfi
við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað samfélagslegum ávinningi með
aukinni þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði og er leiðandi í rannsóknum
og þróun á sviði starfsendurhæfingar. Að VIRK standa öll helstu samtök
launamanna og atvinnurekenda á vinnumarkaði.
VIRK er metnaðarfullur vinnustaður þar sem lögð er áhersla á jákvæðan
starfsanda og sterka liðsheild. VIRK kappkostar að skapa jákvæða menn-
ingu með traustu fagfólki. Gildi VIRK eru fagmennska, virðing og metnaður
og er starfsfólk hvatt til að hafa gildin að leiðarljósi í störfum sínum.
Nánari upplýsingar um VIRK er að finna á virk.is
Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um störf.
Upplýsingar veitir: Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og með
25. ágúst 2019.
Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá
og einnar blaðsíðu kynningarbréf þar
sem á kerfisbundinn hátt er gerð grein
fyrir því hvernig viðkomandi uppfyllir
hæfnikröfur starfsins.
Íslyft ehf er sérhæft fyrirtæki í sölu og þjónustu á lyfurum og dráttarvélum.
Íslyft ehf hefur haft mesta markaðshlutdeild í sölu á lyfturum sl. 25 ár.
Við auglýsum eftir góðum manni/konu til starfa á varahluta-
lager. Starfið er mjög fjölbreytt og krefst þokkalegrar tölvu-
kunnáttu, ensku í töluðu og rituð máli auk þekkingar á vélum,
sérstaklega landbúnaðartækjum.
Íslyft & Steinbock þjónustan er búin að vera starfandi síðan
1972. Íslyft hefur verið markaðsleiðandi í sölu á Linde lyfturum
og vöruhúsatækjum síðastliðin 20 ár.
Íslyft er m.a. með umboð fyrir Linde, John Deere, Avant, Merlo
og Combilift.
Íslyft er öruggur og skemmtilegur vinnustaður og hvetjum við
þig til að sækja um.
Umsóknir sendist á netfangið islyft@islyft.is
Framtíðarstarf hjá öruggu fyrirtæki.
Starfsmaður óskast
á varahlutalager
Vesturvör 32 - 200 Kópavogur
óskast á Jón á Hofi ÁR 42 sem gerður er út
frá Þorlákshöfn.
Óskað er eftir réttindamanni, en stærð aðal-
vélar er 729 kW. Umsóknir má senda á
jonpall@rammi.is, upplýsingar í síma 899 1785.
Vélstjóri
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
1
0
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:0
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
9
1
-2
5
3
8
2
3
9
1
-2
3
F
C
2
3
9
1
-2
2
C
0
2
3
9
1
-2
1
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
9
6
s
_
9
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K