Fréttablaðið - 10.08.2019, Blaðsíða 92
Lífið í
vikunni
04.08.19-
10.08.19
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
Sumar
útsala
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði
Freistandi
útsölutilboð
Afgreiðslutími Rvk
Mánud. til föstud. kl. 11.00–18.30
Laugard. kl. 11.00–17.00
Sunnud. kl. 13.00–17.00 (Smáratorgi)
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
LOKAVIKAN
LÝKUR
SUNNUDAG 11. ÁGÚ
ST
TEKUR SKELLINN SEINNA
Helga Þórey er forfallinn aðdáandi
Þjóðhátíðar í Eyjum. Hún hefur
farið í heil fjórtán skipti.
Helga segir það mik-
inn kost að þekkja
til heimamanna,
því það sé lang
skemmtilegast
í hvítu tjöld-
unum. Hún
segir að þa sé
vissulega kostn-
aðarsamt að
fara á Þjóðhátíð,
en maður taki bara
skellinn seinna.
LISTAHÁTÍÐIN PLAN-B Í
BORGARNESI
Um helgina fer fram listahátíðin
Plan-B í Borgarnesi. Þetta er í fjórða
skiptið sem hátíðin er haldin.
Skippuleggjendur hátíðarinnar vilja
stuðla að auknu framboði sam-
tímalistar á landsbyggðinni.
VELHEPPNAÐUR INNIPÚKI
Tónlistarhátíðin Innipúkinn
var haldin með pompi og prakt
síðastliðna helgi. Skipuleggjendur
segja þetta einn stærsta Innipúka
hingað til. Gífurlega vel var mætt á
tónleikana og uppselt öll kvöld. Há-
tíðin var færð út á Granda í ár, sem
gekk vonum framar.
PRJÓNALIST Í GALLERÝ
PORTI Í DAG
Í kvöld opnar textílhönnuðurinn
Ýr Jóhannsdóttir sýningu í Gallerý
Porti. Hún tekur not-
aðar peysur og gefur
þeim nýtt líf í formi
prjónaðra líffæra
eða líkamsparta. Í
sumar rannsakaði
hún kartöflur
í þaula ásamt
sviðslistahóp
sem hún til-
heyrir og heitir
CGFC.
Ásta Kristrún Ragnarsdóttir stendur fyrir sýningu á verkum frænda síns, hans
Jóns Vilhjálms. Sýningin fer fram
á Hannesarholti og verður opnuð
laugardaginn 17. ágúst.
„Sólarbróðir minn, Jón Vilhjálmur
Stefánsson sem er á leiðinni til lands-
ins, hefur haft litrík sólkerfin undir
í myndlist sinni síðan ég sá hann
fyrst,“ segir Ásta Kristrún.
„Við erum systkinabörn og þegar
hann var hippi í listnámi í Berkeley
Kaliforníu og ég var 17 ára, þá dvaldi
ég hjá þeim mæðginum, Kötu föður-
systur minni og Johnny frænda.“
Kata, föðursystir Ástu, varð ekkja
þegar hann, einkasonurinn, var rétt
fjögurra ára en þegar hún sjálf var
rétt ári eldri var hún numin á brott
af hjónum sem gátu ekki eignast
barn saman.
„Hún hafði farið til Bandaríkj-
anna með móður sinni og tveimur
systkinum þegar þessi hörmulegi
atburður átti sér stað. Katrín kom
ekki í leitirnar aftur fyrr en 12 árum
síðar, þá 17 ára. Við lok grunnskóla
gaf uppeldissystir hennar henni
sparifé sitt og hvatti hana til að
hlaupast á brott.“
Alla tíð síðan hefur stórfjöl-
skyldan haft hugann við hana og son
hennar í þátíð og nútíð.
„Jón Vilhjálmur er hógvær og
rólegur maður en í verkum hans
brjótast fram eldheitir litir kali-
fornískrar náttúru sem eru ekki svo
ólíkir þeim sem krauma inni í eld-
fjallasprungum.“
Sjálfur segir hann að drifkraftur
hans komi frá uppruna alls lífs á
jörðu, myndun jarðar og síðan líf-
ríkis en líka frá þeirri mögnuðu
staðreynd sem lýtur að inngripi
mannanna.
„Á námsárunum í akademíunni
í Berkeley vann hann sem leigubíl-
stjóri samhliða náminu og ók þá
nær daglega manninum sem talinn
er faðir vetnissprengjunnar, Edward
Teller, til og frá rannsóknarstöðinni í
Berkeley-hæðum og við þær aðstæð-
ur fór hugurinn á flug inn í leyndar-
dóma vísindanna.“
En í æðakerfi frænda Ástu, lista-
mannsins, kraumar f leira, tónlist
og ástríki. Í gegnum árin hefur Val-
geir, eiginmaður Ástu, sent honum
tónlist sína og Jón Vilhjálmur
svarað með mynd. Myndin Popplag
í G-dúr er dæmi um eina slíka.
„Sem einbirni hefur það ekki
verið flókið fyrir hann að gera mig
að systur sinni á Íslandi né fyrir mig
að beita mér fyrir því að kynna verk
hans í hans móðurlandi.“
Arfleifðin hefur verið Ástu hug-
leikin í gegnum tíðina, og er fyrir
henni eins konar ævintýrakista sem
geymir urmul óvæntra tenginga og
upplýsinga frá fyrri tíð.
„Amma okkar Jóns Vilhjálms,
Kristrún, fór og leitaði afa okkar í
Bandaríkjunum en hann hafði yfir-
gefið hana og börnin fimm og flutt
vestur um haf. Kristrún Tómasdóttir
Benediktsson var listakona af Guðs
náð. Hún var merk tónlistarkona
píanisti, myndlistarkona og að auki
með ótæmandi áhuga á vísindum og
þá aðallega þeim hluta sem tengdist
stjörnufræði og eðlisfræði.“
Þótt amma hennar hafi ekki getað
haft áhrif á mótun Johns á þroska-
ferlinum er samhljómurinn við
eiginleika og viðfangsefni móður-
ömmunnar sláandi að sögn Ástu.
„Jón Vilhjálmur málar ávallt undir
áhrifum tónlistar, er gagntekinn af
vísindum og þeirri eðlisfræði sem
var farin að lita líf fólks á 20. öldinni í
byltingunni sem fylgdi þekkingunni
við að kljúfa atómin og þróun kjarn-
orkunnar.“
Ásta og Jón gáfu sýningunni heitið
„Úr undrakistu alheimsins“. Hún
verður opnuð laugardaginn 17. ágúst
kl. 15 í Hannesarholti. Þetta er önnur
sýningin sem Ásta stendur fyrir með
verkum frænda síns.
steingerdur@frettabladid.is
Arfleifðin er sem
ævintýrakista
Ásta Kristrún Ragnarsdóttir stendur fyrir sýningu á verkum frænda síns í Hannesarholti. MYND/ÚR EEINKASAFNI
Ásta Kristrún stendur
fyrir sýningu á verkum
Jóns Vilhjálms, sem er
frændi hennar. Þau og
fjölskyldan eiga merki-
lega og áhugaverða sögu.
SÓLARBRÓÐIR MINN,
JÓN VILHJÁLMUR
STEFÁNSSON SEM ER Á LEIÐINNI
TIL LANDSINS, HEFUR HAFT
LITRÍK SÓLKERFIN UNDIR Í
MYNDLIST SINNI SÍÐAN ÉG SÁ
HANN FYRST.
1 0 . Á G Ú S T 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R52 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
0
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:0
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
9
0
-E
E
E
8
2
3
9
0
-E
D
A
C
2
3
9
0
-E
C
7
0
2
3
9
0
-E
B
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
9
6
s
_
9
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K