Víkurfréttir - 16.05.2019, Síða 6
Að þessu sinni langaði okkur að forvitnast um starfið hans Óskars Ívars-
sonar en hann starfar hjá Hreinsunardeild Reykjanesbæjar.
„Ég byrjaði að vinna hjá bænum árið
1982 þegar ég var 21.árs gamall en þá
hafði ég verið að vinna í fiski í Stóru
milljón. Pabbi minn, Ívar Magnússon,
var þá einnig að vinna í því frysti-
húsi en pabbi vildi frekar að ég færi
að vinna hjá bænum því karlarnir í
frystihúsinu voru oft leiðinlegir við
mig og treystu mér ekki. Þeir leyfðu
mér heldur ekki að vinna yfirvinnu.
Svo við pabbi hættum báðir að vinna
þarna og fórum frekar að vinna hjá
bænum.“
Gott að vinna hjá bænum
„Við bjuggum í Garðinum þá og ég
keyrði okkur í vinnuna á morgnana
til Keflavíkur. Við vorum með nesti
í hádeginu en fengum heitan mat á
kvöldin sem mamma eldaði en hún
var að vinna í fiski hjá Nesfisk í Garði
á daginn. Foreldrar mínir eru báðir
látnir en mamma hét Ursula Magnús-
son og var þýsk. Ég er hálfur Þjóðverji
og kunni meira í þýsku þegar mamma
var á lífi. Ég fór oft með foreldrum
mínum til Þýskalands á bíl með Nor-
rænu en ég á ættingja þar. Mér líkar
mjög vel við karlana sem ég er að
vinna með hjá Reykjanesbæ. Þeir eru
stundum að gogga í mig og ég gogga í
þá á móti því þetta er allt í gríni. Mér
finnst gaman í vinnunni, sérstaklega
á sumrin þegar það er svona bjart úti,
þá er ég einnig hressari á morgnana
eins og allir hinir. Ég vinn frá klukkan
sjö á morgnana til klukkan þrjú á
daginn en á föstudögum vinn ég bara
til klukkan hálf eitt.“
Fólk má ganga betur um
„Mér finnst gaman að sjá bæinn okkar
hreinan. Fólk spyr mig stundum
hvernig í ósköpunum ég nenni þessu
en ég svara með því að mér líkar betur
að vinna úti en að vera innilokaður
á skrifstofu. Ég fæ hreyfingu og
ferskt loft í vinnunni, það er bara
gott. Fólk má alveg ganga betur um
bæinn, stundum er mikið rusl í um-
hverfinu. Það er ekki gott þegar fólk
er að skrúfa niður bílrúður og henda
rusli út um gluggann, það er hræðilegt
og ekki hægt að líða. Við viljum öll
hafa hreint í kringum okkur og landið
okkar fagurt. Það hefur ekki mikið
breyst umgengnin síðan ég byrjaði
hér árið 1982 en stundum finnst mér
túristar sóða meira út. Þeir koma á
húsbílum og tæma í ruslakassana sem
yfirfyllast sem er ekki gott.“
Gaman í Boccia
„Stundum er ég þreyttur þegar ég
kem heim á daginn en samt fer ég í
Boccia einu sinni í viku og spila með
Íþróttafélaginu NES. Það er gaman.
Ég var að keppa um helgina með
þeim á Akureyri og vann tvo leiki í
einstaklingskeppni og tapaði einum.
Í sveitakeppni gekk okkur ágætlega
og komum heim með gull.“
Nýverið var stór dagur hjá kvenfélagskonum í Grindavík. Tilefnið var að
Kvenfélag Grindavíkur var gestgjafi nítugasta aðalfundar Kvenfélagasam-
bands Gullbringu- og Kjósarsýslu (KSGK) og 90 ára afmælis sambandsins
en hvort tveggja var haldið í Gjánni, Grindavík.
90 ára afmæli
Það er afar blómlegt félagsstarf innan
kvenfélaga á landsvísu. Aðildarfélögin
innan KSGK eru tíu, Kvenfélag Grinda-
víkur, Kvenfélag Keflavíkur, Kvenfélag-
ið Fjóla í Vogum, Kvenfélagið Gefn í
Garði, Kvenfélagið Hvöt í Sandgerði,
Kvenfélag Garðabæjar, Kvenfélag Álfta-
ness, Kvenfélag Mosfellsbæjar, Kven-
félag Kjósarhrepps og Kvenfélagið Sel-
tjörn, Seltjarnarnesi. Félögin skiptast
á að halda aðalfundinn. Alls eru 616
konur í félögunum tíu.
Mikið líf og fjör hjá
kvenfélögum
Sólveig Ólafsdóttir, formaður Kven-
félags Grindavíkur og Ágústa Magnús-
dóttir, formaður KSGK sögðu frá starfi
félagskvenna.
„Margir viðburðir voru á liðnu ári
hjá kvenfélögunum, svo sem kaffi-
sala, basar, bingó, jólasala, fjáröfl-
unarkvöld, þorrablót og að efna til
skemmtanna í bæjarfélögunum, svo
fátt eitt sé nefnt. Félögin heimsækja
hvort annað, skiptast á að skipu-
leggja sameiginlega vorgöngu á sínu
svæði á hverju ári, konur kynnast
og sumar verða kærar vinkonur.
Kvenfélögin eru mjög dugleg að
styrkja nærsamfélögin. Má nefna
að á síðasta ári veittu félögin saman-
lagt styrki til ýmissa verkefna, alls
7,5 milljónir. Í tilefni 90 ára afmælis
KSGK samþykktu Kvenfélögin að
styrkja „Sumarbúðir fatlaðra barna
í Reykjadal“ að fjárhæð kr. 900 fyrir
hverja félagskonu og verður and-
virði söfnunarinnar notað til kaupa á
tækjum í samráði við forstöðumann,“
segir Sólveig.
„Tvær góðar kvenfélagskonur, þær
Ása Atladóttir og Sigríður Finnbjörns-
dóttir voru sæmdar nafnbótinni
„Heiðursfélagi Kvenfélagasambands
Gullbringu- og Kjósarsýslu“. Báðar
höfðu þær gegnt formannsstöðu og
öðrum trúnaðarstörfum í KSGK og
Kvenfélagasambandi Íslands en KSGK
er stofnaðili að KÍ,“ segir Ágústa.
Að aðalfundi loknum bauð Kven-
félag Grindavíkur til móttöku og
dýrindis veitinga. Boðið var upp á
söngatriði, þar sem Arney Ingibjörg
Sigurbjörnsdóttir söng stórkostlega.
Bæjarstjórahjónin Fannar Jónasson
og Hrafnhildur Kristjánsdóttir mættu
til að samfagna og fræddi bæjarstjóri
konurnar um bæinn Grindavík. Að
lokum var honum þakkað innilega
og formaður Kvenfélagsins, Sólveig
Ólafsdóttir, færði þeim hjónum gjafir,
m.a. buff sem merkt er félaginu og
benti hún bæjarstjóra á að næst þegar
hún sæi hann á göngu þá ætti hann
að vera með buffið á höfðinu.
Við viljum öll
hafa landið
okkar fagurt
Mar ta Eiríksdóttir
marta@vf.is
VIÐTAL
STARFIÐ MITT
Fó
lk
má
ga
ng
a b
et
ur
um
og
ek
ki
he
nd
a r
us
li ú
t u
m
bíl
glu
gg
an
n.
Kvenfélögin dugleg að styrkja nærsamfélögin
T.v. Ágústa Magnúsdóttir, formaður KSGK, og t.h. Sólveig Ólafsdóttir, formaður Kvenfélags Grindavíkur, með
heiðursfélagana á milli sín, þær Ásu Atladóttur og Sigríði Finnbjörnsdóttur.
Bæjarstjórahjónin í Grindavík, Fannar Jónasson og Hrafnhildur Kristjánsdóttir,
mættu til að samfagna með Kvenfélagskonum.
Kvenfélagskonurnar í Keflavík skemmtu með rappsöng.
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Umhverfismiðstöð – tveir starfsmenn
Háaleitisskóli – íþróttakennari
Heiðarskóli – íþrótta- og sundkennari
Heiðarskóli – grunnskólakennari
Vinnuskólinn – sumarstörf fyrir 8., 9. og 10. bekk
Háaleitisskóli – starfsfólk skóla
Leikskólinn Hjallatún – deildarstjóri
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum
vef Reykjanesbæjar, Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru
jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf.
Viðburðir
í Reykjanesbæ
Sumar í Reykjanesbæ - vefurinn kominn í loftið
Vefurinn Sumar í Reykjanesbæ er kominn í loftið. Kynntu
þér fjölbreytt íþrótta- og tómstundatilboð á sumar.rnb.is
Bókasafn Reykjanesbæjar - viðburðir framundan
Fimmtudagurinn 16. maí kl. 11-12: Foreldramorgunn.
Fræðsluerindi frá Siggu Dögg kynfræðingi um að vera
kynvera og foreldri.
Þriðjudagurinn 21. maí kl. 20-21: Leshringur bókasafnsins
hittist og ræðir bókina Í trúnaði eftir Héléne Grémillon.
Duus Safnahús - Listahátíð barna er að ljúka
Listahátíð barna lýkur sunnudaginn 19. maí. Fallegar sýning-
ar í öllum sölum. Opið alla daga 12-17. Aðgangur ókeypis.
6 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 16. maí 2019 // 20. tbl. // 40. árg.