Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.05.2019, Page 11

Víkurfréttir - 16.05.2019, Page 11
Ingimar Sumarliðason er einn af frumkvöðlum í ferða- mennsku á Suðurnesjum. Þekking í þína þágu MSS auglýsir eftir verkefnastjóra MSS óskar eftir öflugum og metnaðarfullum verkefnastjóra til starfa. Verkefnastjórinn er hluti af MSS teyminu sem skipuleggur og heldur utan um nám fyrir íbúa Suðurnesja. Við leitum að einstaklingi sem á auðvelt með að vinna í teymi, er jákvæður, skapandi, getur hugsað í lausnum og hefur áhuga á skólaþróun og kennslufræði. Umsóknum skulu fylgja starfsferilskrár og kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til og með 9. júní 2019. Nánari upplýsingar veitir Guðjónína Sæmundsdóttir, forstöðumaður, á netfangið ina@mss.is Hæfnikröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði, sjálfstæði, sveigjanleiki og skipulagshæfni í vinnubrögðum • Góð tölvukunnátta og geta til að tileinka sér tækninýjungar • Færni í teymisvinnu Helstu verkefni • Skipulag og framkvæmd á íslenskunámi fyrir innflytjendur • Skipulag og framkvæmd námsskeiða • Þróun tækni í kennslu Frístundasvæði í Nátthaga varð til „Svo þróuðust málin á þann veg að bæjaryfirvöld ákváðu að búa til frí- stundasvæði í Nátthaga. Hér þarf samt að ríkja náttúruvernd vegna fjölskrúð- ugs fuglalífs. Almenningur gat byggt sér sumarhús hér og fleiri skemmti- legar hugmyndir fæddust sem virðast hafa sofnað í kerfinu. Gamla vigtar- húsið í Sandgerði var flutt í Nátthaga og átti að verða þjónustuhús fyrir tjaldsvæðið. Ég tók það á leigu í upp- hafi en keypti það svo af þeim. Árið 2002 var ég komin með þrjú hús en í dag eru þau fimm. Það eru fjögur ár síðan þau urðu fimm talsins. Ég endurbyggði sjálfur gömlu vigtina og stækkaði hana. Einnig byggði ég þrjú hús til viðbótar frá grunni. Ég leigði fyrst fast þessi fyrstu hús þegar fáir túristar voru og stóð þannig undir kostnaði en þetta var basl í byrjun. Ég var í mörg ár á hnjánum að skúra gólf og þreif öll húsin en þvotturinn er heilmikill sem fylgir þessu. Þetta hefur ekki alltaf verið dans á rósum og það þurfti þrautseigju til að lifa af fyrstu ellefu árin en eftir að ég fór inn á vefinn árið 2013 með allar bókanir hjá mér, inn á booking.com, þá snar- jókst traffíkin hjá mér.“ Tímamót hjá Inga „Í dag eru 99% útlendingar sem gista í Nátthaga. Nú er ég loksins að upp- skera allt streðið og gat ráðið til mín manneskju til að þrífa húsin fyrir tæpum tveimur árum í hálft starf. Það er þvílíkur munur en ég sé samt ennþá um allan þvottinn. Þetta eru yfirleitt einnar nætur gistingar, er- lent fólk sem er að fara í flug eða koma hingað til lands. Nú er nýting húsanna flesta mánuði yfir 90% allt árið. Í dag er þetta fyrirtæki hjá mér í fullum rekstri og gengur mjög vel. Þrátt fyrir það ætla ég að segja þetta gott enda orðinn sjötugur. Nú þykist ég orðinn gamall maður og finnst tími til kominn að hætta. Ég er mjög líklega búinn að selja sumarhúsin til íslenskrar manneskju sem mun reka gistinguna áfram með svipuðu sniði. Ég óska henni farsældar í þessu frá- bæra starfi en ég hef haft mjög gaman af því að kynnast öllum þessum ferða- mönnum. Öll þessi ár hafa verið eril- söm en óskaplega skemmtileg því maður kynnist svo mörgum hliðum á mannlegri tilveru.“ Bæjaryfirvöld áttu fallegan draum um Nátthaga „Ég er voðalega stoltur af bæjaryfir- völdum í sambandi við vegamál hérna í Nátthaga því nú eru komin tvö ár síðan þeir hefluðu vegina hérna síðast og þar áður voru það þrjú ár. Vegurinn sem bærinn á að sjá um í Nátthaga er hræðilegur. Bæjaryfirvöld mættu stórbæta sig. Vegagerð ríkisins fær mikla gagnrýni í þjóðfélaginu en þeir hafa staðið sig vel í Nátthaga og séð um sinn part af veginum. Þegar ég byrjaði á sínum tíma hér út frá voru allir vegir hér undirbúnir fyrir bundið slitlag, það var allt klárt þá og er í raun ennþá. Því miður kom kreppa árið 2008 og hún virðist halda velli. Það væri gaman núna að sjá nýja bæjar- stjórn Suðurnesjabæjar taka til hendi í Nátthaga og sjá sóma sinn í að bæta vegina hérna. Í dag er vegurinn holótti ekki góð bæjarkynning fyrir þá 5000 ferðamenn sem gista í Nátthaga á ári.“ Hvað er framundan hjá Inga? „Nú langar mig sjálfum að taka upp veiðistöngina og ferðast eitthvað. Ég hef ekki tekið mér frí í tvö og hálft ár. Ég hugsa að þetta verði voðalega skrýtið, að hætta að vinna og vera ekki að bíða eftir næstu gestum í Nátthaga. Langflestir gestir hafa sýnt ánægju sína af veru sinni í Nátthaga. Þeim fannst nálægðin við sjóinn og kyrrðin vera aðalaðandi, heitur pottur og að geta eldað sjálfir, það líkar þeim sem gistu hjá mér.“ Mar ta Eiríksdóttir marta@vf.is VIÐTAL 11MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 16. maí 2019 // 20. tbl. // 40. árg.MANNLÍF Á SUÐURNESJUM

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.