Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.05.2019, Qupperneq 13

Víkurfréttir - 16.05.2019, Qupperneq 13
 Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vin- áttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu ÞÓRU S. GUNNARSDÓTTUR Baugholti 3, Keflavík sem lést 22. mars s.l. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Hlévangs og starfsfólki á Selinu, fyrir einstaka umönnun og hlýju. Gunnar Ólafur Schram Ellisif Tinna Víðisdóttir Stefanía Helga Schram Birgir Guðnason barnabörn og barnabarnabörn Heilsuleikskólinn Krókur auglýsir eftir deildarstjóra Heilsuleikskólinn Krókur er sjálfstætt starfandi og staðsettur í Grindavík. Skólinn er fjögurra deilda með um 100 börn, 27 starfsmenn og starfar eftir Heilsu- stefnu Unnar Stefánsdóttur og viðmiðum Heilsueflandi leikskóla. Í stefnu skólans er lögð rík áhersla á jákvæða og umhyggjusama skólamenningu og öflugt lærdóms- samfélag þar sem samvinna og gleði ríkir. Unnið er með heilsueflingu, jákvæð og uppbyggjandi samskipti, frjálsan leik í flæði, umhverfismennt, jóga og núvitund með áherslu á umhyggjusamt námsumhverfi. Því leitum við að samstarfsfólki sem: • Er tilbúið að tileinka sér stefnu og starfsaðferðir skólans • Er samvinnufúst og hefur góða hæfni í sam- skiptum • Er tilbúið til að taka þátt í öflugri starfsþróun • Er stundvíst, samviskusamt, jákvætt, sýnir frumkvæði og hefur ánægju af því að vinna með ungum börnum Menntunar og hæfniskröfur: • Leikskólakennaramenntun • Uppeldismenntaður starfsmaður • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum er æskileg • Góð íslenskukunnátta er skilyrði Um er að ræða tímabundna stöðu í a.m.k. eitt ár. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa kemur til greina að ráða einstakling með aðra uppeldismenntun Nánari upplýsingar veita Hulda Jóhannsdóttir skólastjóri og Bylgja Kristín Héðinsdóttir aðstoðarskólastjóri Rafrænar umsóknir er hægt að leggja inn á http://skolar.is/Starf/ Heilsuleikskólar Skóla ehf. eru: Hamravellir í Hafnarfirði, Skógarási á Ásbrú í Reykjanesbæ, Kór í Kópavogi, Krókur í Grindavík og Ungbarnaleikskólinn Ársól í Reykjavík. FSingur vikunnar: „Sigurður Skagfjörð kemur mér alltaf í gott skap“ Segir Jón Ragnar Magnússon, 18 ára Njarðvíkingur, sem er FSingur vikunnar að þessu sinni. Hann segir helsta galla sinn vera þann að hann getur ekki viðurkennt gallana sína en hann á auðvelt með að kynnast fólki, sem honum finnst vera helsti kostur sinn. Nú þegar nemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja eru á leiðinni í sumarfrí, lýkur þessum vikulega þætti blaðsins í bili. Við þökkum umsjónarmönnum þáttarins fyrir samstarfið í vetur, þeim Jóni Ragnari Magnússyni og Kristínu Fjólu Theódórsdóttur. Hvað heitirðu fullu nafni? Jón Ragnar Magnússon. Á hvaða braut ertu? Fjölgreinabraut. Hvaðan ertu og hvað ertu gamall? 18 ára Njarðvíkingur. Hver er helsti kostur FS? Félagslífið, fólkið og ekki langt frá heimilinu. Hver eru áhugamálin þín? Íþróttir, félagslíf og tónlist. Hvað hræðistu mest? Nálar. Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Árni Geir, betur þekktur sem Geir- fuglinn, mun ná langt í söng og Garðar Ingi, eða Gassi Beat mun ná langt í lagasmíðum. Hver er fyndnastur í skólanum? Margir sem koma til greina en Sig- urður Skagfjörð er maður sem kemur mér alltaf í gott skap. Hvað sástu síðast í bíó? Ég sá hryll- ingsmyndina The Curse of La Llorona. Hvað finnst þér vanta í mötuneytið? Betra úrval af drykkjum. Hver er helsti gallinn þinn? Að geta ekki viðurkennt gallana mína. Hver er helsti kostur þinn? Á auðvelt með að kynnast fólki. Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í símanum þínum? Snapchat, Facebook og Instagram. Hverju myndir þú breyta ef þú værir skólameistari FS? Laga fjarvistarkerfið. Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari fólks? Ef því er treystandi. Hvað finnst þér um félagslífið í skólanum? Mér finnst það mjög fínt. Það hefur tekið breytingum en ég sé að fólki langar að taka þátt og vonandi heldur það áfram að byggjast upp. Hver er stefnan fyrir framtíðina? Eiga góða fjölskyldu og vera ham- ingjusamur. Hitt kemur allt seinna. Hvað finnst þér best við að búa á Suðurnesjum? Besta við að búa í Njarðvík er að þetta er þétt samfélag þar sem allir þekkja alla og margt gott fólk býr sem er alltaf tilbúið að bjóða hjálparhönd ef þörf gerist. Uppáhalds... ...kennari? Bogi Ragnars. ...skólafag? Afbrotafræði. ...sjónvarpsþættir? Peaky Blinders og Vaktirnar. ...kvikmynd? Forrest Gump. ...hljómsveit? Queen, Led Zeppelin og Dire Straits. ...leikari? Benedict Cumberbatch. Vel heppnaðir hreinsunardagar á Ásbrú Árlegir hreinsunardagar á Ásbrú fóru fram á föstudag og laugardag. Verkefnið gekk vonum framar og voru fyrirtækin á svæðinu mjög dugleg að hreinsa upp rusl í kringum sig og á opnum svæðum. Sem dæmi þá hreinsuðu Ásbrú íbúðir upp 420 kg af rusli úr um- hverfinu. Skrifstofa fyrirtækisins lokaði á meðan hreinsunarátakið stóð yfir og var svo opnuð að nýju. Keilisfólk var með um 200 kg. BB hótel tíndi upp rusl og fegraði í kringum sig og enduðu með því að grilla. Íslandshús gerði hreint hjá sér og leikskólinn Völlur tók til hendinni á föstudeginum ásamt Heilsuleikskólanum Skógarási. Á laugardeginum mættu um 40 manns við Heilsuleikskólann Skógarás og gengu um svæðið. Hreinsunarfólk fann m.a. fána- stöng, slökkvitæki og teppi. Á eftir var svo pizzuveisla í boði Langbest og Isavia. Meðfylgjandi myndir fengum við sendar úr hreinsunarverkefninu. FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM 13MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 16. maí 2019 // 20. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.