Víkurfréttir - 20.06.2019, Blaðsíða 9
YNDISLEG KVENNAREIÐ
– segir Gunnhildur gestgjafi dagsins.
Blaðakona Víkurfrétta fylgdi kvenna-
reið Mána eftir í bifreið sinni og elti
hópinn heim í Fjörukotið hennar Gunn-
hildar Gunnarsdóttur. Þegar þangað
var komið slepptu konurnar hestunum
innan girðingar, sem fóru á beit um leið
og þeir voru komnir í ilmandi safaríkt
grasið.
Hvað segir Gunnhildur um þennan skemmtilega
viðburð Mánakvenna?
„Þetta gerum við á hverju ári, bara yndislegt. Þetta
árið bauð ég konunum í kvennareið hingað heim í
Fjörukotið mitt. Ég keypti þetta hús fyrir mörgum
árum en þá var það í niðurníðslu. Ég kom heim og til-
kynnti manninum mínum og dætrum okkar þremur,
að ég væri búin að kaupa þennan A bústað niður í
fjöru því hérna langaði mig að slaka á, hér í fjörunni.
Maðurinn minn sem var ekkert of hrifinn af þessari
skyndiákvörðun minni fékk svo víðáttubrjálæði og
hefur byggt upp allt hérna. Hér líður fjölskyldunni
vel og hingað langaði mig að bjóða konunum í dag til
að eiga góða stund. Hestarnir fóru áðan inn í gerðið á
beit og á meðan ætlum við konurnar líka að fá okkur
að borða,“ segir Gunnhildur og skælbrosir, enda ekki
hægt annað á þessum fallega stað sem hún og maður
hennar Guðmundur Sigurbergsson hafa skapað í
sameiningu.
Vildi ekki láta skjóta hestinn
Gunnhildur var á hliðarlínunni í hestamennsku til
að byrja með eða alveg þangað til að henni bauðst að
bjarga lífi hests.
„Ég byrjaði í hestamennsku út frá yngstu dóttur minni
en hún hefur alltaf haft áhuga á hestum. Ég var eigin-
lega tilneydd til að byrja því þeir komu með hryssu til
mín sem átti að fara að skjóta en ég aumkast alltaf yfir
dýrum og það kom ekki til greina að þeir færu með
hana til að láta skjóta hana, svo ég tók hana að mér.
Þeir redduðu plássi fyrir mig í hesthúsi hjá öðrum,
þannig að ég var tilneydd að fara á bak og gera allt
sem gera þurfti en ég var skíthrædd, alveg rosalega
hrædd. Ég þorði ekki að koma nálægt þessu, ég þorði
ekki að fara inn í bás eða neitt. Ég var svo skíthrædd.
Þeir þurftu í byrjun að gera allt þetta fyrir mig en ég
fór á bak og hreyfði merina. Í dag geri ég allt þetta sjálf.
Ég er sjálf komin með hesthús og við eigum fjórtán
hross eða fimmtán því það fæddist folald í dag en ég
á eina meri sem er alltaf að gefa okkur hross,“ segir
Gunnhildur sem segir eiginmanninn ekki enn hafa
smitast af hestamennskunni.
Barnabörn eru komin í hestana
Það er ákveðinn lífsstíll að vera í hestamennsku og
Gunnhildur á barnabörn sem eru farin að hafa mikinn
áhuga á hestum.
„Nei, maðurinn minn kemur ekki nálægt þessu en
hann kíkir í kaffi annað slagið hingað út í hesthús.
Það erum við Sunna, yngsta dóttir okkar sem erum
aðallega í þessu saman. Tvö af barnabörnum okkar
hafa mikinn áhuga á hestum og ég vona að það endist,
við krossum puttana,“ segir Gunnhildur skælbrosandi
um leið og hún drífur sig inn í veisluna með konunum,
sem fram fer í risastórri uppgerðri olíutunnu á túninu
við Fjörukot, rými sem eiginmaðurinn er búinn að
breyta í skemmtilegan sal með sófum og borðum.
Kæru Suðurnesjamenn.
Verðum á heilsugæslunni í Keflavík fimmtudaginn 27. júní.
Tímapantanir í síma 534 9600.
Nánari upplýsingar www.heyrn.is
Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //
Ellisif Katrín
Björnsdóttir
Lögg. heyrnarfræðingur
veitir faglega ráðgjöf
HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF
vanar hestakonur og í ár verður sú
elsta í hópnum 90 ára, spræk og flott
hestakona sem býr í Reykjavík en er
móðir einnar í hestamannafélaginu
Mána,“ segir Gunnhildur Erla sem
fór fyrst á bak með pabba sínum sem
lítið barn.
Alin upp á Mánagrund
Alveg frá byrjun hefur Gunnhildur
Erla haft gaman af hestamennsku.
„Ég er alin upp við hestamennsku,
fæðist inn í hestafjölskyldu. Ég var
hestasjúkust af okkur systkinunum
en ég á tvo bræður, yngri og eldri.
Pabbi þurfti oft að segjast vera að fara
eitthvað annað en í hesthúsið, þegar
ég spurði hann hvert hann væri að
fara en þá var hann kannski að fara
að þjálfa hest og vildi vera barnlaus.
Pabbi minn er svona náttúrubarn í
hestamennsku. Ég fékk hestasýkina
fyrir alvöru eftir að ég fermdist en
fyrstu reiðbuxurnar mínar fékk ég
í fermingargjöf. Ég er eiginlega alin
upp á Mánagrund. Mamma hefur
alltaf stutt okkur öll sem erum í hesta-
mennskunni og hefur gaman af þessu
en pabbi er hesthaus. Mamma fer á
bak en ekki mikið. Ég er ein eftir í
hestamennskunni hér suður frá því
foreldrar mínir eru fluttir upp í sveit.
Pabbi og mamma keyptu sér jörð fyrir
tuttugu árum í Ásahreppi þar sem
þau hafa nú byggt sér heimili og hest-
hús og eru alsæl. Þar eru þau einnig
með fjárhús og hænur, hund og kött.
Mamma mín Gulla er pæja í sveitinni,
hún er komin í kirkjukórinn og pabbi
kynnist öllum þar sem hann kemur,“
segir Gunnhildur brosandi en pæjan
sem hún nefnir, móðir hennar, heitir
Guðlaug Skúladóttir. Gunnhildur segir
að þau systkinin hafi haft mismikinn
áhuga á hestamennsku en hún og
Skúli yngri bróðir hennar séu hvað
hrifnust af þessari íþrótt.
Hestamennska eins og
jógaiðkun
Að koma út á Mánagrund eftir vinnu
finnst Gunnhildi æðislegt.
„Ég hef sagt að hestar séu jógað mitt
því ég fer mjög mikið ein á bak og þá
er ég í núvitund, hér og nú. Ég keppi
ekki lengur í hestamennsku en mér
finnst æðislegt að klára vinnudaginn
hér úti á Mánagrund, í náttúrunni
alein á hestbaki. Mér finnst æðislegt
að fara í skítagallann og bóndaskóna
en það þarf að moka skít og sinna
hestunum sem mér finnst ofboðs-
lega gefandi. Náttúran tosar í mig
og gefur mér svo mikinn kraft. Ég
get ekki beðið eftir að koma í hest-
húsið eftir vinnu og endurnýja orkuna
mína hér. Ég kem hingað í hesthúsið
hans pabba eins oft og ég get en hann
á ennþá húsið. Ég á tvo fótboltast-
ráka sem eru tíu og þrettán ára. Sá
yngri er svolítill kúreki og er til að
fara á hestbak með mömmu sinni,“
segir Gunnhildur kímin en nú þarf
hún að byrja að leggja reiðtygin á
Feldísi, uppáhaldshestinn sinn, því
kvennareiðin hefst innan tíðar. Feldís
er tíu vetra verðlaunahryssa, fædd og
ræktuð frá föður Gunnhildar Erlu, að
Ásbrú í Ásahreppi.
Ég hef sagt að hestar séu
jógað mitt því ég fer mjög
mikið ein á bak og þá
er ég í núvitund, hér og
nú. Ég keppi ekki lengur
í hestamennsku en mér
finnst æðislegt að klára
vinnudaginn hér úti á
Mánagrund, í náttúrunni
alein á hestbaki ...
VINKONUR SEM TÓKU ÞEMAÐ ALLA LEIÐ
– Eygló og Úlfhildur voru með í kvennareið Mána
Þær voru klæddar eins og álfadrottningar og hestarnir þeirra voru einn-
ig skreyttir með fallegu höfuðskrauti. Okkur lék forvitni á að vita hvers
vegna þær völdu þennan búning í tilefni dagsins.
„Við vildum vera fallegar konur á góðri stundu og það er bara svo gaman
að búa til svona fallega búninga og fara á fallegum fák út í náttúruna,“
segir Úlfhildur.
Hvers vegna hestamennska?
„Ég hef verið í hestum frá því að ég
var barn. Þetta er yndisleg skepna til
að vera með úti í náttúrunni,“ segir
Eygló og Úlfhildur samsinnir því.
„Ég hef einnig verið í hestamennsku
frá því að ég var lítið barn. Þegar
ég fer á bak þá er ég drottning um
stund, er ein með sjálfri mér og
hestinum. Ég finn frelsið og allar
áhyggjur eru á bak og burt,“ segir
Úlfhildur.
Eru konur virkar í hestamannafélagi Mána?
„Já, ég myndi segja það, í vetur var til
dæmis hópur með slaufureið í reið-
höllinni okkar þar sem við vorum að
vinna með tölt í hóp,“ segir Eygló.
„Hestamennska er mjög gott fjöl-
skyldusport sem sameinar fjölskyld-
una, þar sem allir geta tekið þátt,
allir geta mokað, allir geta verið með
þegar verið er að kemba og hugsa
um hestinn. Allir hafa gaman með
hestunum. Kvennareið er skemmti-
legt tækifæri fyrir okkur Mánakonur
til að hittast. Að koma í Fjörukot er
dásamlegt en Gunnhildur gestgjafi
teymdi okkur hingað frá Mánagrund
og stóð sig vel,“ segir Úlfhildur að
lokum.
Kristín Pálmadóttir er 90 ára hestakona. Hún tók þátt í kvennareið Mána ásamt dóttur sinni,
Jóhönnu Harðadóttur, og dætrum hennar sem einnig eru hestakonur eins og amman spræka.
Álfadrottningar voru með í ferðinni, þær Eygló og Úlfhildur.
9MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 20. júní 2019 // 25. tbl. // 40. árg.MANNLÍF Á SUÐURNESJUM