Víkurfréttir - 20.06.2019, Blaðsíða 12
Nú hefur Penninn Eymundsson flutt sig um set yfir í nýja og glæsilega
verslun í Krossmóa, húsnæði sem er mjög bjart og rúmgott. Formleg opnun
fer fram fimmtudaginn 20. júní klukkan 13:00 og útgáfuhóf verður sama
dag í versluninni klukkan 17:00 þegar séra Fritz Már Jörgensson, kynnir nýja
spennuskáldsögu sína, Líkið í kirkjugarðinum. Allir eru hjartanlega velkomnir!
Bókabúðin flytur á nýjan stað
Það var árið 2006 sem Penninn hf., sem í dag
heitir Penninn Eymundsson, keypti Bókabúð
Keflavíkur, á Sólvallagötu, af fjölskyldu Marteins
Jóns Árnasonar. Gamla bókabúðin var rekin
frá árinu 1965 af Marteini og fjölskyldu hans
og var fyrst staðsett við Hafnargötu.
Húsnæðið við Sólvallagötu var löngu úr sér vaxið
fyrir allt það vöruúrval sem nútímabókabúðir
bjóða upp á eða svo segir Aníta Gunnlaugs-
dóttir, verslunarstjóri, þegar Víkurfréttir kíktu
í heimsókn.
„Þetta er geggjuð tilfinning, æðislega flott
verslun og bara svo gaman að koma hingað
í Krossmóann með allar vörurnar sem við
bjóðum upp á. Í gamla húsnæðinu, vorum við
svo út úr þrátt fyrir að vera nálægt miðbænum.
Nú erum við komin í kjarnann þar sem fólkið
er. Ég hefði aldrei trúað hvað það er mikið af
fólki sem kemur hingað í Krossmóann, það er
stanslaus straumur allan daginn,“ segir Aníta
hæstánægð með nýja verslun á nýjum stað sem
opnaði síðasta laugardag en formleg opnun fer
fram þann 20. júní.
Þurftu að loka í þrjá daga vegna flutninga
„Bókaverslanir og þjónusta þeirra skiptir máli,
það sáum við glöggt þegar við þurftum að loka
gömlu búðinni í þrjá daga, á meðan við vorum
að stilla upp vörum hér á nýja staðnum. Þá kom
fólk til okkar, bankaði upp á og spurði hvort við
gætum ekki bjargað þeim um hitt og þetta og það
gerðum við þrátt fyrir að tölvukerfið okkar lá
niðri. Við erum eina bókaverslun svæðisins, eina
bókaverslunin á öllum Suðurnesjum og fáum
fólk úr Grindavík, Vogum, Suðurnesjabæ og
Reykjanesbæ sem verslar við okkur. Hér er jöfn
verslun allt árið því við bjóðum ekki einungis
upp á bækur og tímarit heldur einnig gjafavöru
og vörur til ferðalaga, ferðatöskur og fleira.
Árstíðabundin verslun er þegar skólarnir byrja
og þegar jólin koma og bókaflóðið en margir
kaupa og lesa bækur allan ársins hring. Þá er
gott að vera félagi í Vildarklúbbnum okkar en
félagsmenn fá alltaf 5% afslátt og sértilboð á
vildarkjörum þegar þau bjóðast. Það geta allir
farið inn á penninn.is á vefnum og skráð sig
í Vildarklúbbinn,“ segir Aníta og horfir yfir
verslunina sem fær hana til að brosa og segja:
„Í þessu húsnæði eru allar vörur að njóta sín
miklu betur. Allt er sýnilegt á sömu hæð, þetta
er einn stór geimur. Það háði okkur í gamla hús-
næðinu að vera með vörur á tveimur hæðum,
þetta er mun einfaldara og miklu betra. Hér sjá
viðskiptavinir okkar allt úrvalið í einni svipan.
Hér eru einnig stórir gluggar sem opna fyrir
birtuna að utan.“
Aníta segir opnunartímann breytast, að þjón-
ustan verði aukin í nýrri verslun og fleiri góðar
breytingar verða.
„Við verðum með mun lengri opnunartíma.
Mánudaga til miðvikudaga opnum við klukkan
9:00 á morgnana og höfum opið til klukkan
18:00. Fimmtudaga og föstudaga verðum við
með opið frá 09:00 til 19:00 og laugardaga
frá klukkan 11:00 til 18:00 og sunnudaga frá
klukkan 13:00 til 17:00. Þetta er mun meiri
þjónusta en við höfum áður boðið upp á og
það gefur viðskiptavinum okkar möguleika á
að kaupa það sem vantar um helgar til dæmis
en áður var lokað hjá okkur um helgar. Við
erum með virka fyrirtækjaþjónustu alla virka
daga en um helgar getum við aðstoðað ef þeim
vantar til dæmis pappír í posann eða ef fólki
vantar bækur til gjafa, tækifæriskort og fleira.
Jú, jú tækifæriskort eru líka til annars staðar
en verslun okkar býður miklu meira úrval.
Hjá okkur færðu einnig þjónustu og þekkingu
starfsfólks þegar þú vilt kaupa til dæmis bók
en þá getum við ráðlagt fólki því við þekkjum
bækurnar,“ segir Aníta og heldur áfram: „Við
tökum einnig virkari þátt núna í öllu viðburðar-
haldi, tilboðum og uppákomum sem fara fram í
Krossmóa. Nú verðum við beinir þátttakendur
því hérna erum við í alfaraleið og tökum þátt
í viðburðum eins og kósýkvöldi, haustdögum
og fleiru skemmtilegu sem Krossmói skipu-
leggur fyrir viðskiptavini. Við verðum einnig
með notalegt kaffihorn hjá okkur þar sem fólk
getur látið fara vel um sig, fengið sér kaffi og
kíkt í blöðin. Þar seljum við alvöru kaffi og einn-
ig kalda drykki.“ Að lokum vill Aníta benda á
allskonar opnunartilboð þessa daga og hvetur
fólk til að líta við og gera góð kaup í Penninn
Eymundsson.
Glæsileg bókaverslun opnar í Krossmóa
Hvað segir starfsfólk um nýja verslun?
Rut Sumarrós Eyjólfsdóttir:
„Þetta er mikil tilbreyting og stórglæsileg vinnu-
aðstaða. Kominn tími til að uppfæra búðina. Hér
erum við á þægilegum stað og hér er fullt af
fólki sem fer í Nettó og kíkir hingað í leiðinni.“
Hrönn Guðmundsdóttir:
„Mjög gott að vera hér og það fyrsta sem ég
tek eftir er loftið sem mér finnst betra hér, betri
loftræsting. Hér er mun meiri traffík viðskipta-
vina og bara gaman að koma í vinnuna á svona
fallegum vinnustað.“
Ása Guðmundsdóttir:
„Mér finnst búðin æði, geggjuð, þetta er svona
alvöru bókabúð annað en holan þarna niðurfrá
á gamla staðnum. Þegar ég stend hérna inni
þá lokka bækurnar mig til sín en ég kom til að
skoða skólatöskur fyrir haustið.“
Ragnhildur Helga Ingólfsdóttir:
„Ég fékk svona VÁ tilfinningu þegar ég kom
hingað inn. Frábær verslun og tímabær
breyting, kominn tími á að uppfæra sig. Ég
er viss um að þessi staðsetning eigi eftir að
auka viðskipti fyrir alla aldurshópa, það er
svo gaman að koma inn í flotta bókabúð og
sjá allt úrvalið. Ég hlakka til þegar þeir opna
kaffihornið hérna.“
Tómas Júlían Knútsson:
„Mér finnst þessi nýja verslun björt og falleg,
mér leið strax vel þegar ég kom hingað inn.
Ég fann líka strax það sem ég var að leita að
og fékk góða þjónustu hjá stúlkunum eins
og alltaf.“
NOKKRIR VIÐSKIPTAVINIR VORU GRIPNIR GLÓÐVOLGIR OG SPURÐIR HVAÐ ÞEIM FYNDIST UM NÝJA VERSLUN
Aníta Gunnlaugsdóttir, verslunarstjó
ri Penninn Eymundsson.
12 VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 20. júní 2019 // 25. tbl. // 40. árg.