Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.06.2019, Page 9

Víkurfréttir - 20.06.2019, Page 9
YNDISLEG KVENNAREIÐ – segir Gunnhildur gestgjafi dagsins. Blaðakona Víkurfrétta fylgdi kvenna- reið Mána eftir í bifreið sinni og elti hópinn heim í Fjörukotið hennar Gunn- hildar Gunnarsdóttur. Þegar þangað var komið slepptu konurnar hestunum innan girðingar, sem fóru á beit um leið og þeir voru komnir í ilmandi safaríkt grasið. Hvað segir Gunnhildur um þennan skemmtilega viðburð Mánakvenna? „Þetta gerum við á hverju ári, bara yndislegt. Þetta árið bauð ég konunum í kvennareið hingað heim í Fjörukotið mitt. Ég keypti þetta hús fyrir mörgum árum en þá var það í niðurníðslu. Ég kom heim og til- kynnti manninum mínum og dætrum okkar þremur, að ég væri búin að kaupa þennan A bústað niður í fjöru því hérna langaði mig að slaka á, hér í fjörunni. Maðurinn minn sem var ekkert of hrifinn af þessari skyndiákvörðun minni fékk svo víðáttubrjálæði og hefur byggt upp allt hérna. Hér líður fjölskyldunni vel og hingað langaði mig að bjóða konunum í dag til að eiga góða stund. Hestarnir fóru áðan inn í gerðið á beit og á meðan ætlum við konurnar líka að fá okkur að borða,“ segir Gunnhildur og skælbrosir, enda ekki hægt annað á þessum fallega stað sem hún og maður hennar Guðmundur Sigurbergsson hafa skapað í sameiningu. Vildi ekki láta skjóta hestinn Gunnhildur var á hliðarlínunni í hestamennsku til að byrja með eða alveg þangað til að henni bauðst að bjarga lífi hests. „Ég byrjaði í hestamennsku út frá yngstu dóttur minni en hún hefur alltaf haft áhuga á hestum. Ég var eigin- lega tilneydd til að byrja því þeir komu með hryssu til mín sem átti að fara að skjóta en ég aumkast alltaf yfir dýrum og það kom ekki til greina að þeir færu með hana til að láta skjóta hana, svo ég tók hana að mér. Þeir redduðu plássi fyrir mig í hesthúsi hjá öðrum, þannig að ég var tilneydd að fara á bak og gera allt sem gera þurfti en ég var skíthrædd, alveg rosalega hrædd. Ég þorði ekki að koma nálægt þessu, ég þorði ekki að fara inn í bás eða neitt. Ég var svo skíthrædd. Þeir þurftu í byrjun að gera allt þetta fyrir mig en ég fór á bak og hreyfði merina. Í dag geri ég allt þetta sjálf. Ég er sjálf komin með hesthús og við eigum fjórtán hross eða fimmtán því það fæddist folald í dag en ég á eina meri sem er alltaf að gefa okkur hross,“ segir Gunnhildur sem segir eiginmanninn ekki enn hafa smitast af hestamennskunni. Barnabörn eru komin í hestana Það er ákveðinn lífsstíll að vera í hestamennsku og Gunnhildur á barnabörn sem eru farin að hafa mikinn áhuga á hestum. „Nei, maðurinn minn kemur ekki nálægt þessu en hann kíkir í kaffi annað slagið hingað út í hesthús. Það erum við Sunna, yngsta dóttir okkar sem erum aðallega í þessu saman. Tvö af barnabörnum okkar hafa mikinn áhuga á hestum og ég vona að það endist, við krossum puttana,“ segir Gunnhildur skælbrosandi um leið og hún drífur sig inn í veisluna með konunum, sem fram fer í risastórri uppgerðri olíutunnu á túninu við Fjörukot, rými sem eiginmaðurinn er búinn að breyta í skemmtilegan sal með sófum og borðum. Kæru Suðurnesjamenn. Verðum á heilsugæslunni í Keflavík fimmtudaginn 27. júní. Tímapantanir í síma 534 9600. Nánari upplýsingar www.heyrn.is Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is // Ellisif Katrín Björnsdóttir Lögg. heyrnarfræðingur veitir faglega ráðgjöf HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF vanar hestakonur og í ár verður sú elsta í hópnum 90 ára, spræk og flott hestakona sem býr í Reykjavík en er móðir einnar í hestamannafélaginu Mána,“ segir Gunnhildur Erla sem fór fyrst á bak með pabba sínum sem lítið barn. Alin upp á Mánagrund Alveg frá byrjun hefur Gunnhildur Erla haft gaman af hestamennsku. „Ég er alin upp við hestamennsku, fæðist inn í hestafjölskyldu. Ég var hestasjúkust af okkur systkinunum en ég á tvo bræður, yngri og eldri. Pabbi þurfti oft að segjast vera að fara eitthvað annað en í hesthúsið, þegar ég spurði hann hvert hann væri að fara en þá var hann kannski að fara að þjálfa hest og vildi vera barnlaus. Pabbi minn er svona náttúrubarn í hestamennsku. Ég fékk hestasýkina fyrir alvöru eftir að ég fermdist en fyrstu reiðbuxurnar mínar fékk ég í fermingargjöf. Ég er eiginlega alin upp á Mánagrund. Mamma hefur alltaf stutt okkur öll sem erum í hesta- mennskunni og hefur gaman af þessu en pabbi er hesthaus. Mamma fer á bak en ekki mikið. Ég er ein eftir í hestamennskunni hér suður frá því foreldrar mínir eru fluttir upp í sveit. Pabbi og mamma keyptu sér jörð fyrir tuttugu árum í Ásahreppi þar sem þau hafa nú byggt sér heimili og hest- hús og eru alsæl. Þar eru þau einnig með fjárhús og hænur, hund og kött. Mamma mín Gulla er pæja í sveitinni, hún er komin í kirkjukórinn og pabbi kynnist öllum þar sem hann kemur,“ segir Gunnhildur brosandi en pæjan sem hún nefnir, móðir hennar, heitir Guðlaug Skúladóttir. Gunnhildur segir að þau systkinin hafi haft mismikinn áhuga á hestamennsku en hún og Skúli yngri bróðir hennar séu hvað hrifnust af þessari íþrótt. Hestamennska eins og jógaiðkun Að koma út á Mánagrund eftir vinnu finnst Gunnhildi æðislegt. „Ég hef sagt að hestar séu jógað mitt því ég fer mjög mikið ein á bak og þá er ég í núvitund, hér og nú. Ég keppi ekki lengur í hestamennsku en mér finnst æðislegt að klára vinnudaginn hér úti á Mánagrund, í náttúrunni alein á hestbaki. Mér finnst æðislegt að fara í skítagallann og bóndaskóna en það þarf að moka skít og sinna hestunum sem mér finnst ofboðs- lega gefandi. Náttúran tosar í mig og gefur mér svo mikinn kraft. Ég get ekki beðið eftir að koma í hest- húsið eftir vinnu og endurnýja orkuna mína hér. Ég kem hingað í hesthúsið hans pabba eins oft og ég get en hann á ennþá húsið. Ég á tvo fótboltast- ráka sem eru tíu og þrettán ára. Sá yngri er svolítill kúreki og er til að fara á hestbak með mömmu sinni,“ segir Gunnhildur kímin en nú þarf hún að byrja að leggja reiðtygin á Feldísi, uppáhaldshestinn sinn, því kvennareiðin hefst innan tíðar. Feldís er tíu vetra verðlaunahryssa, fædd og ræktuð frá föður Gunnhildar Erlu, að Ásbrú í Ásahreppi. Ég hef sagt að hestar séu jógað mitt því ég fer mjög mikið ein á bak og þá er ég í núvitund, hér og nú. Ég keppi ekki lengur í hestamennsku en mér finnst æðislegt að klára vinnudaginn hér úti á Mánagrund, í náttúrunni alein á hestbaki ... VINKONUR SEM TÓKU ÞEMAÐ ALLA LEIÐ – Eygló og Úlfhildur voru með í kvennareið Mána Þær voru klæddar eins og álfadrottningar og hestarnir þeirra voru einn- ig skreyttir með fallegu höfuðskrauti. Okkur lék forvitni á að vita hvers vegna þær völdu þennan búning í tilefni dagsins. „Við vildum vera fallegar konur á góðri stundu og það er bara svo gaman að búa til svona fallega búninga og fara á fallegum fák út í náttúruna,“ segir Úlfhildur. Hvers vegna hestamennska? „Ég hef verið í hestum frá því að ég var barn. Þetta er yndisleg skepna til að vera með úti í náttúrunni,“ segir Eygló og Úlfhildur samsinnir því. „Ég hef einnig verið í hestamennsku frá því að ég var lítið barn. Þegar ég fer á bak þá er ég drottning um stund, er ein með sjálfri mér og hestinum. Ég finn frelsið og allar áhyggjur eru á bak og burt,“ segir Úlfhildur. Eru konur virkar í hestamannafélagi Mána? „Já, ég myndi segja það, í vetur var til dæmis hópur með slaufureið í reið- höllinni okkar þar sem við vorum að vinna með tölt í hóp,“ segir Eygló. „Hestamennska er mjög gott fjöl- skyldusport sem sameinar fjölskyld- una, þar sem allir geta tekið þátt, allir geta mokað, allir geta verið með þegar verið er að kemba og hugsa um hestinn. Allir hafa gaman með hestunum. Kvennareið er skemmti- legt tækifæri fyrir okkur Mánakonur til að hittast. Að koma í Fjörukot er dásamlegt en Gunnhildur gestgjafi teymdi okkur hingað frá Mánagrund og stóð sig vel,“ segir Úlfhildur að lokum. Kristín Pálmadóttir er 90 ára hestakona. Hún tók þátt í kvennareið Mána ásamt dóttur sinni, Jóhönnu Harðadóttur, og dætrum hennar sem einnig eru hestakonur eins og amman spræka. Álfadrottningar voru með í ferðinni, þær Eygló og Úlfhildur. 9MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 20. júní 2019 // 25. tbl. // 40. árg.MANNLÍF Á SUÐURNESJUM

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.