Víkurfréttir - 20.06.2019, Síða 10
Það er ekki á hverjum degi sem við heyrum af presti sem
skrifar glæpasögur en Keflavíkurkirkja státar af einum
slíkum. Séra Fritz Már Jörgensson er ekki bara séra, hann
er einnig rithöfundur og hefur gefið út heilar fimm glæpa-
sögur. Sú fyrsta kom út árið 2007. Bækur hans hafa verið
þýddar á erlend tungumál.
Við mæltum okkur mót við rithöf-
undinn og fengum innsýn í hugar-
heim prests sem skrifar ekki eingöngu
predikun fyrir sunnudagsmessu,
heldur skrifar hann einnig spennu-
sögur og á dágóðan hóp lesenda, fólk
sem bíður spennt eftir að fá að lesa
nýjustu afurðina, spennusöguna Líkið
í kirkjugarðinum.
Hefur gaman af lestri
„Ég er svona lestrarhestur og hef
lesið frá því ég man eftir mér. Þegar
ég var yngri þá fékk ég alltaf leyfi
fyrir tvöföldum bókaskammti hjá
Bókabílnum í Reykjavík, bækur sem
ég fór með heim og las upp til agna.
Í dag er ég eins, ég er með nokkrar
bækur í gangi í einu. Það eru bækur
á náttborðinu sem ég er að lesa,
inni í stofu, ein í símanum ef ég þarf
einhvers staðar að bíða en þá les ég
á meðan. Við hjónin búum í stóru
húsnæði og ég leigi geymslu úti í bæ
undir bókasafnið mitt sem kemst ekki
fyrir heima hjá okkur. Það er einmitt
verkefni framundan að fara í gegnum
þessar bækur, flokka þær og fara með
í Kolaportið því Góði hirðirinn tekur
ekki lengur við bókum. Kannski að
Kompan á Iðavöllum gæti tekið við
bókum frá mér?“ segir Fritz Már sem
ljómar þegar hann talar um bækur.
Honum dugði ekki að lesa bækur eftir
aðra heldur tók hann sig til og byrjaði
sjálfur að skrifa skáldsögur.
Nennti ekki að læra málfræði
„Bækur fyrir mér eru svo magnaðar.
Ég var alltaf góður í stafsetningu
en nennti ekki málfræðinni en það
bjargaðist því ég las svo mikið að ís-
lensk málfræði síaðist inn hjá mér.
Ég hef alltaf átt auðvelt með íslenskt
mál. Ég er sannfærður um að allur
þessi bókalestur hafi gert mig betri í
íslensku. Mér finnst bækur opna fyrir
mér heim sem er svo spennandi, hver
bók er ævintýraheimur, mikil sköpun
í hverri bók. Lesturinn kallar fram
myndir í huga lesandans sem býr
sjálfur til sjónarsvið í huganum. Þetta
er ferðalag sem lesandinn fer í og
upplifir söguna á mjög raunverulegan
hátt á meðan hann les,“ segir Fritz
Már fullur af eldmóði fyrir bókalestri
en hann hefur jafn brennandi áhuga
á að skrifa bækur sjálfur.
„Ég hef sömu væntingar og er jafn
spenntur fyrir ferðalaginu hjá sjálfum
mér þegar ég byrja að skrifa nýja bók.
Þó ég viti hvað ég ætla að skrifa um þá
gerast margir óvæntir hlutir á leiðinni
þegar ég er að semja. Ég hef gaman af
því að skrifa krimma og í kiljuformi.
Það er þessi norræna glæpasagna-
hefð sem heillar mig. Þetta er svo
skemmtilegt form þar sem hægt er
að ávarpa eitthvað mein í samfélag-
inu. Það eru ákveðnar persónur sem
fylgja bókunum mínum og halda uppi
söguþræðinum. Þær þróast í gegnum
bækurnar og stundum er einhver
sem hefur haft lítið hlutverk í einni
bók jafnvel komin með stærra hlut-
verk í þeirri næstu. Nýjar persónur
bætast að sjálfsögðu við. Fyrir mér
verða þessar persónur mjög lifandi,
nánast eins og góðir vinir eða kunn-
ingjar. Nýir lesendur geta alltaf bæst í
hópinn því söguþráðurinn er ferskur
í hverri bók,“ segir Fritz Már og segir
allar sögurnar hafa plott sem bindur
söguna saman.
Plott er nauðsynlegt
„Að sjálfsögðu er alltaf plott í þessum
sögum, það er í öllum góðum spennu-
sögum. Ég eyði púðri í að hafa bækur
mínar ekki of langar því mér finnst
sjálfum það fráhrindandi sem lesanda
að sjá þykkar bækur, sérstaklega ef
ég er að kynnast nýjum höfundi. Þá
er betra að bókin sé í hæfilegri lengd.
Þetta er afþreying fyrst og fremst
en samt gefur þessi norræna glæpa-
sagnahefð okkur tækifæri til að skoða
samfélagið í leiðinni. Ég nefni sem
dæmi lögguna á Íslandi sem er
öðruvísi en löggan í Ameríku en
þar er meira um hetjur og byssu-
skot. Íslenskir lesendur okkar
geta betur tengt sig við lögguna
í norrænum spennusögum, þetta
eru jafnvel týpur sem þeir kannast
við. Eins og Jónas vinur minn sem
mér þykir mjög vænt um en hann
kemur fyrir í bókunum mínum. Hann
er lögregluþjónn og hommi en það
hefur ekki alltaf verið létt fyrir hann,
sérstaklega ekki í fyrstu bókunum
mínum þegar samfélagið hafði meiri
fordóma gagnvart samkynhneigðum.
Í dag nýtur Jónas meiri skilnings sam-
félagsins, allt þróast og breytist. Þegar
ég er að skrifa þá birtast stundum
persónur sem vilja vera með. Ég er
kannski kominn í gang og þær taka
yfir. Það er dálítið merkilegt hvernig
þetta gerist mitt í sköpun sögunnar
og ég kominn inn í söguþráðinn. Ég
verð sjálfur mjög spenntur þegar ég
er að semja og það má segja að ég
fylgist með hvernig persónur leysa
úr málum sínum. Ég verð eins og
áhorfandi þótt ég viti í raun hvernig
sagan endar þá er ég ekki alltaf með
á hreinu allt ferðalagið, allt til enda.
Ég veit í upphafi bókar hvaða lína
er í gangi og ég veit hver er sekur en
samt verður þetta ákveðið ferðalag
fyrir mig sjálfan,“ segir Fritz og blaða-
maður hrífst með.
Nýjasta bók séra Fritz Más Jörgens-
sonar var sem sagt að koma út hjá
Uglu forlagi og nefnist hún Líkið í
kirkjugarðinum, þrúgandi spenna
frá fyrstu síðu eins og segir á for-
síðu. Bókin fjallar um Sigrúnu sem
er prestur í Reykjavík en hún fær á
tilfinninguna að fylgst sé með henni.
Séra Fritz Már býður öllum í útgáfu-
teiti í tilefni útgáfu bókar sinnar,
Líkið í kirkjugarðinum, fimmtu-
daginn 20. júní klukkan 17:00 hjá
Penninn Eymundsson í nýrri verslun
í Krossmóa.
Glæpasögur heilla prestinn
Ég hef sömu
væntingar og er
jafn spenntur fyrir
ferðalaginu hjá sjálfum
mér þegar ég byrja að
skrifa nýja bók. Þó ég
viti hvað ég ætla að
skrifa um þá gerast
margir óvæntir hlutir á
leiðinni þegar ég er að
semja ...
Mar ta Eiríksdóttir
marta@vf.is
VIÐTAL
ÞROSKAHJÁLP Á SUÐURNESJUM
AÐSTOÐARMAÐUR
FORSTÖÐUMANNS
Okkur í Dósaseli vantar
aðstoðarmann forstöðumanns.
Viðkomandi þarf að uppfylla nokkur skilyrði:
• Hafa bílpróf og getað farið í flugstöðina.
• Þarf að vera handlaginn.
• Þarf að getað leyst forstöðumann af.
• Vera góður í mannlegum samskiptum.
Vinsamlegast hafið samband í síma 8612208
eða ingajonab@gmail.com
10 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 20. júní 2019 // 25. tbl. // 40. árg.