Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Blaðsíða 1
°
°
Vestmannaeyjum 16. apríl 2014 :: 41. árg. :: 16. tbl. :: Verð kr. 400 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is
M
yn
d:
Ó
m
ar
G
ar
ða
rs
so
n
Ekki vEikur hlEkkur
í frábærri sýningu
rafbílavæðingin
hafin í Eyjum
lions í Eyjum
í 40 ár>> 12 >> 10 >> 16
Gleðilega
páska
Tilboð í hönnun á nýrri Vest-
mannaeyjaferju voru opnuð hjá
Ríkiskaupum rétt fyrir hádegi í
dag. Þrjú tilboð bárust í hönn-
unina en lægsta tilboðið átti
Burness Corlett Three Quays í
Southampton, Englandi upp á
664.100 evrur. Tilboðið var
langlægst af þeim þremur sem
send voru inn og um helmingi
lægra en næstlægsta tilboðið.
Hin tvö fyrirtækin sem sendu inn
tilboð voru Knud E Hansen A/S en
tilboð þeirra var upp á 1.616.89 evrur
og Polarkonsult AS með tilboð upp á
1.309.120 evrur. Eftir opnun
tilboðanna tekur stýrihópur verk-
efnisins við tilboðunum og fer yfir
þau hjá Innanríkisráðuneytinu.
Formaður stýrihópsins er Friðfinnur
Skaftason, verkfræðingur. „Það sem
nú tekur við hjá okkur í stýrihópnum
er að meta þessi tilboð, hvort
bjóðendur séu hæfir og hvort tilboðin
séu ásættanleg og standist útreikn-
inga. Við áætlum að þessari vinnu
ljúki í maí og ekki hægt að segja til
um hvaða tilboði verði tekið á þessari
stundu.“
Friðfinnur tekur undir með
blaðamanni að munur á tilboðunum
veki athygli. „Já það vakti furðu
mína hversu miklu munar á lægsta
tilboðinu og hinum tveimur. Við
gerðum kostnaðaráætlun sem ekki
var lesin upp við opnun tilboðanna
en ég get þó upplýst að lægsta
tilboðið er lægra en kostnaðar-
áætlunin sagði til um. Hin tvö
eru hins vegar töluvert hærri.“
Þrjú tilboð í hönnunina. Eru það
fleiri eða færri tilboð en þið
reiknuðuð með?
„Við vissum í raun og veru ekkert
um það hversu mörg tilboð myndu
berast í hönnun ferjunnar. En það
voru töluvert margir aðilar sem sóttu
útboðsgögn og í ljósi þess vonuðumst
við eftir fleiri tilboðum.“
Hönnun ferjunnar á að ljúka á þessu
ári en ef allt gengur eftir, tekur þá við
útboð á smíði ferjunnar.
Páskarnir eru handan við hornið en krakkarnir á leikskólanum Kirkjugerði tóku forskot á sæluna í síðustu viku og voru með páskaeggjaleit og var
myndin tekið við það tækifæri.
Opnun tilboða í hönnun nýrrar Vestmannaeyjaferju:
Lægsta tilboðið helmingi
lægra en það næstlægsta
:: Smíðanefnd fer fyrir tilboðin og lýkur þeirri vinnu í maí
:: Hönnun á að vera lokið á þessu ári
JúlíuS G. InGaSon
omar@eyjafrettir.is