Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Side 1

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Side 1
° ° Vestmannaeyjum 16. apríl 2014 :: 41. árg. :: 16. tbl. :: Verð kr. 400 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is M yn d: Ó m ar G ar ða rs so n Ekki vEikur hlEkkur í frábærri sýningu rafbílavæðingin hafin í Eyjum lions í Eyjum í 40 ár>> 12 >> 10 >> 16 Gleðilega páska Tilboð í hönnun á nýrri Vest- mannaeyjaferju voru opnuð hjá Ríkiskaupum rétt fyrir hádegi í dag. Þrjú tilboð bárust í hönn- unina en lægsta tilboðið átti Burness Corlett Three Quays í Southampton, Englandi upp á 664.100 evrur. Tilboðið var langlægst af þeim þremur sem send voru inn og um helmingi lægra en næstlægsta tilboðið. Hin tvö fyrirtækin sem sendu inn tilboð voru Knud E Hansen A/S en tilboð þeirra var upp á 1.616.89 evrur og Polarkonsult AS með tilboð upp á 1.309.120 evrur. Eftir opnun tilboðanna tekur stýrihópur verk- efnisins við tilboðunum og fer yfir þau hjá Innanríkisráðuneytinu. Formaður stýrihópsins er Friðfinnur Skaftason, verkfræðingur. „Það sem nú tekur við hjá okkur í stýrihópnum er að meta þessi tilboð, hvort bjóðendur séu hæfir og hvort tilboðin séu ásættanleg og standist útreikn- inga. Við áætlum að þessari vinnu ljúki í maí og ekki hægt að segja til um hvaða tilboði verði tekið á þessari stundu.“ Friðfinnur tekur undir með blaðamanni að munur á tilboðunum veki athygli. „Já það vakti furðu mína hversu miklu munar á lægsta tilboðinu og hinum tveimur. Við gerðum kostnaðaráætlun sem ekki var lesin upp við opnun tilboðanna en ég get þó upplýst að lægsta tilboðið er lægra en kostnaðar- áætlunin sagði til um. Hin tvö eru hins vegar töluvert hærri.“ Þrjú tilboð í hönnunina. Eru það fleiri eða færri tilboð en þið reiknuðuð með? „Við vissum í raun og veru ekkert um það hversu mörg tilboð myndu berast í hönnun ferjunnar. En það voru töluvert margir aðilar sem sóttu útboðsgögn og í ljósi þess vonuðumst við eftir fleiri tilboðum.“ Hönnun ferjunnar á að ljúka á þessu ári en ef allt gengur eftir, tekur þá við útboð á smíði ferjunnar. Páskarnir eru handan við hornið en krakkarnir á leikskólanum Kirkjugerði tóku forskot á sæluna í síðustu viku og voru með páskaeggjaleit og var myndin tekið við það tækifæri. Opnun tilboða í hönnun nýrrar Vestmannaeyjaferju: Lægsta tilboðið helmingi lægra en það næstlægsta :: Smíðanefnd fer fyrir tilboðin og lýkur þeirri vinnu í maí :: Hönnun á að vera lokið á þessu ári JúlíuS G. InGaSon omar@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.