Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Síða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Síða 2
° ° 2 Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. apríl 2014 Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549. ritstjóri: Júlíus Ingason - julius@eyjafrettir.is. blaðamenn: Ómar Garðarsson - omar@eyjafrettir.is, Sæþór Þorbjarnarson. - sathor@eyjafrettir.is og Gígja Óskarsdóttir, - gigja@eyjafrettir.is. ábyrgðarmenn: Júlíus Ingason og Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn. aðsetur ritstjórnar: Strandvegur 47, Vestmannaeyjum. símar: 481 1300 og 481 3310. netfang: frettir@eyjafrettir.is. veffang: www.eyjafrettir.is EyjafrÉTTir koma út alla miðvikudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum, Toppn­um,­Vöruval,­Herjólfi,­Flughafnar­versluninni,­ Krónunni, ísjakanum, Kjarval og Skýlinu. EyjafrÉTTir eru prentaðar í 2000 eintökum. EyjafrÉTTir eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. Eyjafréttir Boltinn er hjá Sjó- mannafé- laginu :: segir Ólafur William Hand, upplýsinga- fulltrúi Eimskips Fundað var í kjaradeilu undirmanna á Herjólfi hjá Ríkissáttasemjara í gær en Sjómannafélag Íslands fer með samningsumboð fyrir undir- menn Herjólfs á meðan Samtök atvinnulífsins semja fyrir hönd Eimskips. Haft er eftir Jónasi Garðssyni á mbl.is að á fundinum hafi verið „rúllað yfir stöðuna“ án þess að neitt nýtt kæmi fram. Ólafur William Hand, upplýsinga- fulltrúi Eimskips segir hins vegar að lagt hafi verið fram formlegt tilboð sem Jónas hafi umsvifalaust hafnað en hann situr einn við samninga- borðið fyrir hönd áhafnarinnar og hefur Eimskip m.a. bent á að æskilegt væri að einn af undir- mönnunum myndi sitja fundina. „Við höfum ítrekað kallað eftir því að fulltrúar áhafnar séu við borðið, þannig að þeir fái upp- lýsingar um tilboðin strax á sama tíma og hann. Þeir hafa ekki orðið við því, en við teljum að það myndi auðvelda allar samningaviðræður,“ segir Ólafur í samtali við mbl.is. Þar segir jafnframt að tilboðið sem Eimskip hafi lagt fram hafi m.a. snúið að dagvinnu undirmanna, sem yrði stytt frá því að vera 8 til 17 í 8 til 16. Þá hafi verið komið til móts við kröfur um álagsprósentu að sögn Ólafs. „Menn verða að koma til samn- ingaborðsins með samningsvilja. Við vinnum að því hörðum höndum að leggja fram tilboð. Nú lítum við svo á að boltinn sé hjá Sjómannafé- laginu að koma með gagntilboð,“ sagði Ólafur. Skýrslan um Sparisjóðina :: Sparisjóður Vm rekinn með hagnaði til 2007: Fylgdi með í falli félaga sem hann átti hlut í :: Heildareignir fyrir hrun 12,2 milljarðar :: Um 2% af heildareignum sparisjóðanna :: Voru um 614 milljarðar króna :: Hvarf eins og dögg fyrir sólu 2008 og 2009 :: Aðilar innanbæjar hlupu undir bagga ásamt ríkinu til að rétta hann við Skóladagur GRV - Barnaskóla verður miðvikudaginn 23. apríl frá kl. 17:00—19:30. Starfsfólk og nemendur skólans vonast eftir því að þátttaka verði mikil og góð eins og undanfarin ár. Fjölbreytt dagskrá verður í boði sem nemendur og gestir geta tekið þátt í. Nemendur 9. bekkjar verða með kaffihlaðborð og rennur andvirðið í ferðasjóð þeirra. Skemmtidagskrá verður í salnum. Þrautir og leikir verða víðs vegar um skólann og úti á skólalóð. Verkefni nemenda frá starfi vetrarins munu hanga uppi í bekkjarstofum og víða um skóla- húsið. Gaman væri ef allir þeir sem áhuga hafa á skólastarfi komi og geri sér glaðan dag með okkur, sýni sig og sjái aðra á þessum mjög svo skemmtilega degi. GRV: Skóladagur í Barnaskóla 23. apríl Hagnaður sparisjóðanna jókst stöðugt frá 2001 og náði hámarki árið 2006 er hann nam samtals 21,4 milljörðum króna. Allan tímann var samt tap af kjarnarekstri fyrir skatt og verulegt tap varð af rekstrinum árin 2008 og 2009. Tapið 2008 nam tæpum 143 milljörðum króna sem jafngilti um 23% af heildareignum sparisjóðanna í árslok 2007. Lætur nærri að á árinu 2008 einu hafi þeir tapað nærri tvöföldum samanlögðum hagnaði næstliðinna tíu ára, umreiknuðum til sama verðlags. Árið 2009 var einnig mikið tap af rekstri þeirra. Sparisjóðirnir töpuðu á þessum tveimur árum rúmum 203 milljörðum króna. Þetta er niðurstaða rannsóknar- nefndar Alþingis um aðdrag- anda og orsakir erfiðleika og falls sparisjóðanna. Hún var skipuð í ágúst 2011 og skilaði af sér í síðustu viku skýrslu í sjö bindum, samtals hátt í 2000 blaðsíður og kostaði rúmar 600 milljónir króna. Þetta er í hnotskurn saga flestra sparisjóða í landinu og var Sparisjóður Vestmannaeyja þeirra á meðal. Hlutur hans er þó lítill í heildardæminu en skellurinn var það mikill að aðilar innanbæjar þurftu að hlaupa undir bagga eftir hrunið ásamt ríkinu til að rétta hann við. Viðsnúningur 2008 Annars er fátt nýtt sem kemur fram í skýrslunni um Sparisjóð Vest- mannaeyja en um hann er fjallað á tæplega 100 síðum. „Sparisjóður Vestmannaeyja var rekinn með hagnaði öll árin frá 2001 til 2007. Árin 2005 og 2006 jókst hagnaður einkum vegna hlutdeildar í afkomu hlutdeildarfélaga. Árið 2007 nam hagnaður sparisjóðsins 343 milljónum króna og skipti þar mestu gengishagnaður af fjár- eignum upp á 404 milljónir króna. Verulegur viðsnúningur varð árið 2008 þegar sjóðurinn tapaði 1,5 milljörðum króna. Skýrðist það fyrst og fremst af 1,6 milljarða króna tapi af fjáreignum og 266 milljóna króna framlagi í afskrift- areikning útlána. Rúmlega milljarðs króna tap varð árið eftir og skýrðist aðallega af 1,1 milljarðs króna framlagi í afskriftareikninginn og áframhaldandi gengistapi af fjáreignum. Fjárhagsleg endur- skipulagning á árinu 2010 leiddi til 1,5 milljarða króna tekjufærslu í rekstrarreikningi sem varð til þess að árið kom út með nærri 900 milljóna króna hagnaði. Enn varð svo tap árið 2011. Samanlagður hagnaður Sparisjóðs Vestmannaeyja á tíu ára tímabili fyrir efnahag hrunið, á árunum 1998 til 2007, var rúmir tveir milljarðar króna miðað við meðalverðlag ársins 2011. Hins vegar tapaði Sparisjóðurinn samtals tæpum 2,3 milljörðum króna á árunum 2008-2011 á meðalverðlagi ársins 2011,“ segir í skýrslunni og allt hefur þetta komið fram áður. Þá segir að skoðun óháðs endurskoðunarfyrirtækis á eignum sparisjóðsins hafi sýnt verri stöðu en áður var talið og var talið að framlag úr ríkissjóði myndi ekki duga til að endurreisa hann þannig að lagaskilyrði um lágmarkseigin- fjárhlutfall yrði uppfyllt. „Spari- sjóðurinn þurfti því á aðkomu kröfuhafa að halda til að fjárhagsleg endurskipulagning væri möguleg. Niðurstaða fékkst og undirrituðu Sparisjóður Vestmannaeyja og Seðlabanki Íslands samkomulag um fjárhagslega endurskipulagningu sparisjóðsins 10. desember 2010. Krafa Seðlabankans á hendur Sparisjóðnum nam 2,2 milljörðum króna. Í samkomulaginu fólst að afskrifaðar voru 787 milljónir króna, 310 milljónum var breytt í víkjandi lán, 564 milljónir króna voru endurlánaðar til fimm ára og 555 milljónum króna var breytt í stofnfé í sparisjóðnum. Eftir fjárhagslega endurskipulagningu sparisjóðsins fór Bankasýsla ríkisins með 55,7% stofnfjárhlut í sjóðnum, en almennir stofnfjárhafar áttu um 10%, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 14,2%, Vestmanna- eyjabær 10%, Vinnslustöðin hf. 5% og aðrir 5%.“ Féll með þeim stóru Þegar orsakanna er leitað var það fall félaga sem Sparisjóðurinn átti í sem drógu hann með í fallinu. Gengishagnaður árið 2007 skýrðist að mestu af hagnaði á eignarhlut í Sparisjóðabanka Íslands hf./Icebank hf., SP-Fjármögnun hf. og VBS Fjárfestingarbanka. „Á árinu 2008 varð mikill viðsnúningur á afkomu af fjáreignum þegar tap sjóðsins af fjáreignum nam 1,6 milljörðum króna og skýrðist það að mestu af niðurfærslu á hlutnum í Sparisjóða- bankanum um 884 milljónir króna, í Kaupþingi banka um 118 milljónir króna, VBS Fjárfestingarbanka um 194 milljónir króna og SP-Fjár- mögnun hf. um 150 milljónir króna. Á árinu 2009 varð einnig tap af fjáreignum sem skýrðist af 176 milljóna króna niðurfærslu á eignar- hlutnum í VBS Fjárfestingarbanka hf. og í Saga Capital um 35 milljónir króna auk niðurfærslu vegna Sparisjóðsins í Keflavík um 21 milljón króna,“ segir í skýrsl- unni. Sparisjóður Hornafjarðar Árið 2006 sameinuðust Sparisjóður Vestmannaeyja og Sparisjóður Hornafjarðar og nágrennis undir nafni þess fyrrnefnda. Sparisjóður Vestmannaeyja hafði lagt fram 220 milljónir króna í nýtt stofnfé á árinu 2003 vegna rekstrarerfiðleika Sparisjóðs Hornafjarðar og eignast þannig 77% hlut af öllu stofnfé sparisjóðsins. Árið 2005 lagði Sparisjóður Vestmanneyja 40 milljónir króna til viðbótar fram sem stofnfé og átti þá 85,7% stofnfjárins. Bókhaldslegur samruni sparisjóðanna miðaðist við 1. júlí 2006 en hann var samþykktur af Fjármálaeftirlitinu 18. janúar 2007. Í skýrslunni segir að rekstur Sparisjóðs Hornafjarðar hafi fyrir aðkomu Sparisjóðs Vestmannaeyja verið í skötulíki og erfiðlega hafi gengið að koma böndum á hann. Höfuðstöðvar sparisjóðsins eru í Vestmannaeyjum en sparisjóðurinn starfrækir útibú á Höfn. Árið 2006 var opnuð afgreiðsla á Breiðdalsvík auk þess sem afgreiðsla Spari- sjóðsins á Djúpavogi var stækkuð. Þessir tveir afgreiðslu-staðir voru undir útibúinu á Höfn. Þá hefur hefur Sparisjóður Vestmannaeyja starfrækt útibú á Selfossi frá árinu 2000. Undir það heyrði afgreiðsla í Hveragerði frá árinu 2004 en henni var lokað árið 2011. Sparisjóðsstjóri er Ólafur Elísson og hefur hann gegnt því starfi síðan 1999. Núverandi stjórnarformaður er Þorbjörg Inga Jónsdóttir, kosin á aðalfundi sparisjóðsins 23. apríl 2013, í umboði Bankasýslu ríkisins. Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is Á árinu 2008 varð mikill viðsnúningur á afkomu af fjáreignum þegar tap sjóðsins af fjáreignum nam 1,6 milljörðum króna og skýrðist það að mestu af niðurfærslu á hlutnum í Sparisjóðabankanum um 884 milljónir króna, í Kaupþingi banka um 118 milljónir króna, VBS Fjár- festingarbanka um 194 milljónir króna og SP-Fjármögnun hf. um 150 milljónir króna. Á árinu 2009 varð einnig tap af fjáreignum sem skýrðist af 176 milljóna króna niðurfærslu á eignarhlutnum í VBS Fjárfestingar- banka hf. og í Saga Capital um 35 milljónir króna auk niðurfærslu vegna Sparisjóðsins í Keflavík um 21 milljón króna, ”

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.