Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Síða 6
°
°
6 Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. apríl 2014
Tilkynning frá Ferðamálasamtök-
um Vestmannaeyja:
Samtökin eru hags-
munasamtök aðila
í ferðaþjónustu
:: Ný stjórn kosin
Lögregla:
Slapp með skrekk-
inn eftir veltu
:: Einn tekinn grunaður um
akstur undir áhrifum :: Tími
nagladekkja liðinn
Lögreglan hafði í ýmsu að
snúast í vikunni sem leið og þá
sérstaklega vegna umferðar-
mála. Helgin fór ágætlega fram
og lítið um útköll á skemmti-
staði bæjarins. Einn ökumaður
var stöðvaður vegna gruns um
akstur undir áhrifum áfengis um
liðna helgi og var hann sviptur
ökuréttindum í framhaldi af því.
Þá var einn ökumaður stöðvaður
vegna hraðaksturs en hann mældist
á 94 km/klst. á Strembugötu, en
eins og ökumenn eiga að vita þá er
hámarkshraði innanbæjar 50 km/
klst. nema annað sé tekið fram.
Rétt er að geta þess að sekt þessa
ökumanns vegna þessa akstursmáta
nemur kr. 50.000,-.
Tvær kærur liggja fyrir vegna
vanrækslu á að nota öryggisbelti í
akstri og þá fékk einn ökumaður
sekt fyrir að aka án þess að hafa
endurnýjað ökuréttindi sín.
Síðdegis þann 10. apríl sl. var
lögreglu tilkynnt um að bifreið hafi
lent utan vega á Hamarsvegi,
sunnan Dverghamars. Þarna hafði
ökumaður, sem var að taka framúr
bifreið, misst stjórn á akstrinum
með þeim afleiðingum að bifreiðin
lenti utan vega. Ökumaðurinn sem
var einn í bifreiðinni, var fluttur á
sjúkrahús Vestmanneyja til
aðhlynningar en meiðsl hans voru
ekki alvarleg og fékk hann að fara
heim að skoðun lokinni. Talið er að
farið hefði verr ef ökumaðurinn
hefði ekki verið með öryggisbeltið
spennt þegar óhappið átti sér stað.
Bifreiðin er töluvert skemmd, ef
ekki ónýt.
Tvö önnur umferðaróhöpp voru
tilkynnt til lögreglu í vikunni en í
báðum tilvikum var um minniháttar
óhöpp að ræða og engin slys á fólki.
Lögreglan vill benda ökumönnum
og eigendum ökutækja á að tími
nagladekkjanna rann út 15. apríl.
Hins vegar verður ekki byrjað að
beita sektum vegna aksturs á
nagladekkjum, þar sem enn getur
brugðið til beggja vona varðandi
veðurfar, en lögreglan mun senda út
tilkynningu þegar að því kemur að
farið verður að beita sektum.
Aðalfundur Ferðamálasamtaka
Vestmannaeyja var haldinn 1.
febrúar 2014 í Höllinni. Sigur-
mundur Einarsson formaður
flutti skýrslu stjórnar og gerði
grein fyrir starfi samtakanna á
liðnu starfsári. Gunnlaugur
Grettisson fundarstjóri fór yfir
reikninga félagsins í fjarveru
gjaldkera. Lögð var fram tillaga
að nýrri stjórn og var tillagan
samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum.
Ný stjórn samtakanna er kjörin á
fundinum og á stjórnarfundi strax
að loknum aðalfundi skipti stjórnin
með sér verkum eins og lög
félagsins kveða á um. Stjórn
ferðamálasamtaka Vestmannaeyja
er nú skipuð eftirfarandi fulltrúum:
• Páll Marvin Jónsson, Þekkingar-
setur Vestmannaeyja, formaður.
• Magnús Bragason, Hótel Vest-
mannaeyjar, varaformaður.
• Erla Halldórsdóttir, Penninn,
Eymundsson/Upplýsingamiðstöð
ferðamála, gjaldkeri.
• Gunnlaugur Grettisson, Eimskip/
Herjólfur.
• Sigurmundur Einarsson, Viking
Tours.
Til vara:
• Elsa Valgeirsdóttir, Golfklúbbi
Vestmannaeyja, ritari.
• Einar Björn Árnason, Einsi Kaldi
veitingastaður.
Á fundinum var lögð fram tillaga að
endurskoðuðum lögum samtakanna
og var góð og uppbyggileg umræða
um breytingarnar. Tillagan var að
lokum samþykkt með nokkrum
minniháttar breytingum.
Undir liðnum önnur mál var
verkefnið Markaðsátak ferðamála
rætt en verkefnið er styrkt af SASS,
Samtökum sunnlenskra sveita-
félaga. Markmiðið með verkefninu
er að styrkja ímynd Eyjanna sem
áfangastað ferðamanna með því að
byggja upp vefsíðu og markaðsefni
til notkunar í markaðs og kynn-
ingarmál.
Samtökin eru hagsmunasamtök
aðila sem starfa innan ferðaþjónust-
unnar. Árgjald samtakanna var
ákveðið kr. 10 þúsund og eru
samtökin opin fyrirtækjum eða
félögum sem tengjast að einhverju
leyti ferðaþjónustu sem og
einstaklingar sem vegna menntunar,
sjálfstæðs starfs og/eða áhuga
tengjast greininni. Þeir sem óska
eftir því að gerast aðilar og skráðu
sig ekki á aðalfundi samtakanna eru
beðnir að senda gjaldkera sam-
takanna, Erlu Halldórsdóttur,
tölvupóst á netfangið erla@
penninn.is með upplýsingum um
nafn, kennitölu, heimilisfangi og
starfsemi.
Þeir sem vilja kíkja út fyrir
hússins dyr um páskana ættu að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Meðal þess sem í boði er, er hin
árlega Páskaganga, gosmynd og
málverkasýning Kristleifs
Magnússonar í Safnahúsi,
tónleikar með Magnúsi og
Jóhanni á Háalofti, að ótöldum
sýningum á rokksöngleiknum
Don‘t stop believin.
Á skírdag, 17. apríl verður sýningin
á málverkum Kristleifs Magnússon-
ar opin 13 til 16 en sýningin verður
einnig opin laugardaginn 19. apríl.
Páskagangan verður svo á páska-
dag, 20. apríl klukkan 14:00 en
gönguna leiða þau Kristján Egilsson
og Kristín Jóhannsdóttir. Gangan
hefst á bílastæði.
Leikfélag Vestmannaeyja heldur
áfram sýningum á hinum frábæra
rokksöngleik Don‘t stop believin.
Sýnt verður í kvöld, miðvikudag, á
morgun skírdag, föstudaginn langa
og laugardaginn 19. apríl. Upp-
lýsingar og miðapantanir eru í síma
852-1940. Sæheimar verða opnir á
laugardaginn 13 til 16 en í Sagn-
heimum verður opið bæði skírdag
og laugardaginn 19. apríl 13 til 16.
Þar verður einnig boðið upp á
sýningu á heimildarmynd Heiðars
Marteinssonar, Gosið og uppbygg-
ingin og hefjast sýningar klukkan
13 báða dagana. Þá verður hægt að
skjótast í sund og verður sundlaugin
opin frá 9 til 17 skírdag, laugardag
og annan í páskum en lokað á
föstudaginn langa og páskadag.
Á Háaloftinu verða tónleikar með
Magnúsi og Jóhanni en á Páskadag
verður ball í Höllinni með Skímó,
sem einmitt verða einnig á þjóð–
hátíð í sumar. Á Vinaminni verður
boðið upp á lifandi tónlist laugar-
daginn 19. apríl. Fannar verður svo
á Volcano í kvöld en DJ Gaui frá
miðnætti föstudagsins langa og frá
miðnætti páskadags verður boðið
upp á 80‘s stemmningu með
DJ-Hlyn. DJ Höddi verður svo á
Lundanum alla helgina.
Nóg um að vera
yfir páskana
:: Tónleikar með Magnúsi og Jóhanni, Páskaganga
og sýningar á Don't stop believin
Verkstjórar
Aðalfundur verkstjórafélags Vestmannaeyja verður
haldinn föstudaginn 25. Apríl nk. Kl. 19.00 í kaffistofu
Godthaab í Nöf.
Dagskrá
1. Venjulega aðalfundarstörf.
2. Súpa og brauð.
3. Léttar veitingar.
Mætum vel
Stjórnin
Sökum mikillar aðsóknar
bætum við sýningum á ástarsögunni um Önnu í Stóru-Borg
Laugardaginn 19. apríl kl. 20:30 Uppselt
Mánudaginn 21. apríl kl.15:00 Uppselt
Mánudaginn 21. apríl kl. 20:30
Þriðjudaginn 22. apríl kl. 20:30
Föstudaginn 25. apríl kl. 20:30 Uppselt
Miðvikudaginn 30. apríl kl. 20:30
Föstudaginn 2. maí kl. 20:30
Laugardaginn 3. maí kl.15:00 Allra síðasta sýning
Tónleikar
Föstudaginn langa
kl. 20:00 í gömlu
höllinni.
Ljúfir tónar um
kvöl Krists á
krossinum.
Fram koma:
Árni Óli, Unnur
og Simmi, Helgi
Tórshamar,
Jenný, Elísabet,
Karen og fleiri.
Hvítasunnukirkjan