Fréttir - Eyjafréttir - 23.07.2014, Side 4
°
°
4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 23. júlí 2014
Eyjamaður vikunnar
Símon Þór Sigurðsson er tíu ára
Eyjapeyi. Hann kíkti við á ritstjórn
Eyjafrétta í byrjun vikunnar og vildi
koma á framfæri spurningu til
Elliða Vignissonar, bæjarstjóra en
hann spurði Elliða hvort það væri
ekki hægt að koma upp umferðar-
ljósum við gatnamót Heiðarvegar
og Kirkjuvegar. Elliði svaraði
honum þannig að hann hefði óskað
eftir því að umferðarhópur
Vestmannaeyjabæjar fjallaði um
ábendingu Símons Þórs. Þessi ungi
maður sýndi þarna frumkvæði og
áhuga fyrir sínu nánasta umhverfi.
Símon Þór er þess vegna Eyjamað-
ur vikunnar.
Nafn: Símon Þór Sigurðsson.
Fæðingardagur: 29. apríl 2004.
Fæðingarstaður: Vestmanna-
eyjum.
Fjölskylda: Pabbi er Sigurður Þór
Símonarson og mamma er Guðrún
Kristín Sigurðardóttir Ég á tvö
systkini, Jón Berg og Bergþóru.
Draumabíllinn: Ford F 150 og
kranabíll.
Uppáhaldsmatur: Píta og fýll.
Versti matur: Humar.
Uppáhalds vefsíða: bilasolur.is.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Gills með lagið Louder og
svo lagið Don‘t stop believing.
Aðaláhugamál: Trommur,
handbolti og bílar.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Langar svo að hitta Gills.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Bílaverkstæðið Bragginn.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Grétar Þór Eyþórsson
og ÍBV.
Ertu hjátrúarfullur: Nei.
Stundar þú einhverja hreyfingu:
Handbolta og hjóla mikið.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Top
Gear.
Ætlarðu að vera á þjóðhátíð: Já,
hef aldrei verið og hlakka mikið til.
Hvað ertu búinn að vera að gera í
sumar: Hjóla og leika mér með
vini mínum, honum Ragnari Orra.
Af hverju viltu fá umferðarljós á
gatnamót Kirkjuvegar og Heið-
arvegar: Af því að ég sá árekstur
þar og það eru svo oft árekstrar þar.
Heldurðu að Elliði bæjarstjóri sé
til í að setja upp umferðarljós:
Kannski en ég vona það.
Heldurðu að krakkar á þínum
aldri séu mikið að pæla í umferð-
inni: Já, eitthvað held ég.
Eitthvað að lokum: Ég vona að
þetta verði gert.
Fallegasti staðurinn er Bílaverk-
stæðið Bragginn
Eyjamaður vikunnar er
Símon Þór Sigurðsson
>> smáar
Til sölu
Þjóðhátíðartjald til sölu, með
innbúi. Upplýsingar í síma:
846-4713 Bjarnveig og Hrönn
Sjonna.
-------------------------------------
Vantar íbúð
Óska eftir 2-3 herbergja íbúð
til leigu frá 1. september nk.
Hildur s: 662-1976
-------------------------------------
Auglýsingasíminn er
481 1300
Landakirkja
Sunnudagur 27. júlí
Kl. 11.00. Messa á 6. sunnudegi
eftir þrenningarhátíð. Mikið verður
um að vera í Landakirkju, Thelma
Hrönn verður fermd og tvö börn
verða borin til skírnar. Kór
Landakirkju syngur undir stjórn
Guðmundar H. Guðjónssonar, sr.
Guðmundur Örn þjónar.
Miðvikudagur 30. júlí
Kl. 19.30. Fundur OA-samtakanna
í Safnaðarheimilinu uppi.
Viðtalstímar prests eru þriðjudaga
til föstudaga milli 11.00 og 12.00.
Vatktsími: 488-1508.
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur 24. júlí
Kl. 20:00 Skoðum og ræðum kafla
16 - 20 úr bókinni „Tilgangsríkt líf“
sem beinir athygli okkar að
markmiðum Guðs í lífi okkar.
Sunnudagur 27. júlí
Kl. 13:00 Samkoma. Guðni
Hjálmarsson prédikar, almenn
þátttaka viðstaddra í söng og fl.
kaffisopi og spjall eftir á.
Miðvikudagur 30. júlí
Kl. 17:15 Bænastund fyrir Krists-
deginum í september.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kirkjur bæjarins:
Aðvent-
kirkjan
Laugardagur 26. júlí
Kl. 12:00 Samvera. Gestir helgar-
innar Erling B.Snorrason og
fjölskylda.
Allir velkomnir.
Eyjafréttir vilja eindregið hvetja
brúðhjón til að senda inn mynd
til birtingar sem og foreldra
nýrra Eyjamanna.
Myndir og upplýsingar sendist á
frettir@eyjafrettir.is
Börn og brúðhjón
Matgæðingur vikunnar
Ég vil byrja á að þakka Árna
kærlega fyrir áskorunina og kann
ég honum miklar þakkir fyrir. Ég
ætla að bjóða upp á einfaldan og
góðan hversdagsmat.
Mjög einföld og góð frönsk
lauksúpa fyrir 4
400 g laukar (stórir)
Smjör til steikingar
½ tsk. sykur
1,2 l nautasoð
Salt og pipar
4 sneiðar franskbrauð
2 tsk. Dijon sinnep
ca. 50 g rifinn ostur
Skerið laukinn í sneiðar og brúnið í
smjöri og sykri. Bætið soðinu við,
látið sjóða í 30-40 mínútur og
smakkið til með salti og pipar
Ristið brauðið og smyrjið það með
sinnepinu, stráið ostinum yfir og
bræðið undir grilli í ofni.
Skiptið súpunni í skálar og látið
brauðsneið fljóta ofan á hverri skál.
Pepperoni fiskur
Þessi réttur er mjög einfaldur og
vinsæll á mínu heimili
800 gr ýsa/þorskur
100 gr sveppir
100 gr laukur
100 gr pepperoni
1/4 l rjómi
3 tsk. tómatpuré
ostur
hveiti
salt, pipar eða krydd að eigin vali
olía til steikingar
Veltið fiskinum upp úr hveiti og
kryddi, steikið hann á pönnu og setjið
í eldfast mót.
Steikið lauk, sveppi og pepperoni á
pönnu í olíu og bætið tómatpuré og
rjóma út í.
Hellið yfir fiskinn, setjið ost yfir og
steikið í 180 C ofni í 15 mínútur eða
þar til osturinn er vel bráðinn.
Ég ætla að lokum að varpa
boltanum yfir á mikinn matgæðing
sem mér skilst að fái allt of sjaldan
að láta ljós sitt skína í eldhúsinu
en það er nafni minn og vinur
Sindri Viðarsson. Efast ég ekki um
að hann galdrar fram eitthvað
stórkostlegt.
Einfaldur og góður
hversdagsmatur
Matgæðingur vikunnar er
Sindri Ólafsson
Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu?
Al-Anon
fyrir ættingja og vini alkóhólista
Fundir á þriðjudögum kl. 20.30
Byrjendafundir kl. 20.00
að Heimagötu 24
AA fundir
eru haldnir sem hér segir
að Heimagötu 24:
Mánudagur: kl.20.30
Miðvikudagur: kl.20.30
Fimmtudagur: kl.20.30
Föstudagur: kl.23.30
Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur
Sunnudagur: kl.11.00
Athugið, allir fundir reyklausir
Móttaka nýliða hálfri klst.
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Ath.símatíma okkar, sem eru hvern dag,
hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru 2 klst. í senn.
Sími 481 1140
a4
ljósritun-
arpappír
Eyjafréttir
Strandvegi 47 | S. 481 1300