Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 23.07.2014, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 23.07.2014, Blaðsíða 11
° ° 11Eyjafréttir / Miðvikudagur 23. júlí 2014 Kristinn Pálsson kemur víða við :: Huggulegar fréttir á Okkar Heimaey :: Þjóðsagan um Búkollu á Ráðhúströð :: Merkingar á gangstéttum: Fyllir upp í gat í frétta- mennskunni :: Vill vekja Eyjamenn til umhugsunar um ásýnd og útlit sveitarfélagsins SÓlEy D. GuðBJörnSDÓTTIr frettir@eyjafrettir.is Hjá umhverfis- og framkvæmda- sviði bæjarins er ungur maður að vinna í sumar, Kristinn Pálsson sem hefur mörg járn í eldinum. Ástæðuna fyrir því að Kristinn fór að vinna hjá bænum segir hann vera sökum áhuga og þeirrar tengingar sem starfið hefur við nám hans. Hann kynntist þó örlítið framkvæmda- sviðinu í fyrrasumar en hann átti hugmyndina að lokuninni við Ráðhúströð. „Það átti að loka götunni og breyta henni í botnlanga og fékk ég því beiðni um að koma með sniðuga og smekklega lausn á því. Þá kom upp sú hugmynd hjá mér að gera stóran stein sem að tengdist hinni íslensku þjóðsögu um kúna Búkollu. Þannig að við gátum tengt lokunina Sagnheimum, þá aðallega bókasafn- inu og sagnaarfi þess.“ Sagan um Búkollu tengist lestri bóka og á að vekja áhuga yngstu kynslóðarinnar á sögunni. „Krakk- arnir allavega elska að skríða í gegnum gatið,“ segir Kristinn. Steinninn sjálfur er fjallið í sögunni og síðasta hindrunin sem tröllin komast ekki framhjá. Í gegnum gatið komast því ekki bílarnir sem eiga nú að tákna tröllskessurnar sem ekki lengur aka um þessa götu. Þetta heppnaðist rosalega vel en verkefnið kláraðist í sumar með sögustund fyrir leikskólakrakkana. Þetta vakti áhuga Kristins á fleiri verkefnum í þágu sveitarfélagsins. Þetta hefði þó aldrei gengið hefði ekki verið fyrir Steinþór sem reddaði grjótinu, eftirfylgni Óla Snorra og þáttöku Fidda Palla. „Þannig að í kjölfarið sótti ég bara um vinnu hjá bænum upp á að geta gert meira svona skemmtilegt og að geta komist í vinnu sem tengist mínu námi, tölvuteikningum, gerð kortagrunna, mælingum og fleira. Svo nú er ég hér.“ Gat í fréttamennskunni Kristinn heldur úti facebook síðunni Okkar Heimaey og segir hann að markmiðið hafi alls ekki verið að hann yrði í einhverju forsvari síðunnar og hafði hann ekki ætlað sér neina auka athygli sökum hennar. Hún hafi heldur sprottið upp vegna áhuga hans á að birta myndir og fróðleik af framkvæmd- um og skemmtilegum hlutum sem eru að gerast innan bæjarlífsins. „Það hefur verið mjög mikil uppbygging á seinustu árum hér í Eyjum sem gaman er að fjalla um. Mig langaði líka að hjálpa til við að svara spurningum fólks ef ein- hverjar væru. Oft verður fólk nefnilega ekki vart við það sem er að gerast í bænum og oftar en ekki er fyrr bent á það sem miður fer eða á eftir að gera en að taka eftir því sem er í gangi hverju sinni. Markmiðið er einnig að vekja Eyjamenn til umhugsunar um ásýnd og útlit sveitarfélagsins því við erum að verða mikill viðkomu- staður ferðamanna og þá skiptir máli að bærinn sýni af sér þokka hvort sem um ræðir einkafyrirtæki, sveitarfélagið sjálft eða heimili Eyjamanna. Í sameiningu getum við hugsað betur um umhverfið og þar með verður sveitarfélagið í heild sinni fallegra ásýndar.“ Sýna neikvætt í jákvæðu ljósi Kristinn reynir að byggja á heimildum og þeim ábendingum sem hann fær en byggir síðuna mest á myndum. Hann vill sýna neikvætt í jákvæðu ljósi með því að horfa á hlutina hlutlaust. „Það virðist vera gat í þessari tegund fréttamennsku þó svo að hún virðist ekki vera merkileg þá er þetta eitthvað sem fólk hefur áhuga á að fylgjast með. Fólk skrifar að minnsta kosti um þessi málefni reglulega á sínar eigin facebook síður. Svo er líka gaman að sjá hvað brottfluttir Eyjamenn fylgjast vel með sínum heimabæ og hafa áhuga á að sjá hvað er að gerast á æskuslóðunum.“ Ástæðuna fyrir því að hann vildi ekki gera þetta undir nafni Vest- mannaeyjabæjar, var sú að hann vildi leyfa fólki að upplifa sig sem þátttakendur. Þannig að þetta væri ekki bara einhver einn ráðandi aðili að segja frá heldur maður á mann tenging, persónulegra flæði og því er facebook góður miðill til þess. Áhugi Kristins á þessum málefnum byggir að mörgu leyti á náminu sem hann stundar, arkitektúr innan hönnunardeildar Listaháskóla Íslands. „Þar hefur maður fylgst mikið með framkvæmdum og þar lærir maður að góðir hlutir gerast hægt. Í vinnunni fæ ég hin ýmsu verkefni í hendurnar og er sendur í það sem þarf, mörg skemmtileg verkefni og ég hoppa á milli þess sem þarf að gera. Ég var líka skipaður í eina nefnd, ásamt Hjalta Enok og Margréti Rós, að skipu- leggja menningarviðburði sumars- ins, og við skipulögðum bæði 17. júní og goslokahátíðina. Samstarfið heppnaðist vel og við vorum ánægð með árangurinn.“ En eins og allir Eyjamenn hafa tekið eftir heppnuð- ust þessir tveir viðburðir mjög vel. Engan brussuskap Eflaust hafa margir tekið eftir merkingunum á gangstéttum bæjarins í alls kyns litum, en þetta eru merki sem Kristinn hefur unnið að til að benda á staðsetningu safna og áhugaverða staði fyrir ferðamenn að skoða hér í bæ. Þetta vill hann vinna inn í nýtt göngukort af eyjunni. „Við ákváðum að taka í gegn leiðakerfi fyrir ferðamenn, bæta úr merkingum er varða þjónustu sveitarfélagsins. Þetta kemur upphaflega frá því að ég vann í Upplýsingamiðstöðinni en þar sáum við vandamál þessu tengd og hugmyndin sem við byggðum á kom frá Erlu, verslunarstjóra Eymundsson, hún kynntist þessu í Boston, þar sem svona göngulínur eru málaðar. Þetta tókum við hingað og blönduðum þessu svolítið saman við metro kerfið í London, sérstaklega hvað kortið varðar, höfðum það einfalt og skilvirkt. þannig að fólk átti sig á því að það þarf einfaldlega bara að elta hellurnar án þess að þurfa að taka aðrar ákvarðanir. Þó þetta sé einföld og smekkleg leið til merkinga þá eru þetta gangstéttir okkar Eyjamanna, ekki eingöngu farvegur fyrir ferðamenn. Því vildum við ekki að þetta yrði of áberandi.“ Kristinn segir það rosalega gaman að fá að annast verkefnið alveg frá upphafi, vinna rannsóknarvinnuna óbeint þrjú árin áður, vera síðan með í hugmyndavinnu, útfærslu, hönnun og framkvæmd og síðast en ekki síst að sjá afraksturinn. „Framkvæmdin hefur reyndar tafist aðeins því við fáum svo fáa heila þurra daga, það þýðir ekkert að gera þetta í bleytu.“ Vegna nákvæmnisáráttu hefur Kristinn gert þetta sjálfur því hann vill engan brussuskap í kringum þetta. „Þetta verður að vera alveg tipp topp,“ segir Kristinn og hlær en hann er einnig skopteiknari hjá Mogganum og kann því vel til verka og vonast til að þetta klárist á næstunni. Nýtt snjallsímaforrit Kristinn segir að það sé mikilvægt að einfalda alla leiðsögn ferða- manna. Þetta vill hann gera með nýju korti sem verið er að leggja lokahönd á er tengist téðu verkefni. Kortið er einfalt í notkun og ódýrt í prentun. Í tengslum við kortaverk- efnin og nýju hljóðleiðsögnina í Eldheimum þá er næsta verkefni sveitarfélagsins að gefa út snjall- símaforrit (app) sem inniheldur kort af bænum sem merkir inn alla þjónustu sveitarfélagsins eins og söfn, tjaldsvæði og fleira. „Útfærsl- an kemur frá Leifi hjá hugbúnaðar- fyrirtækinu Locatify, hann leggur þetta til og setur upp en við sjáum um alla gagnaöflun og ákveðum hlutverk forritsins. Rut Haralds og Óli Snorra hjá bænum hafa hrint þessu í framkvæmd á mjög skömmum tíma að það er heiður að fá að vera með í þessu og vonumst við til að setja í gang prufuútgáfu núna á síðustu mánuðum ferða- mannatímabilsins, þannig að okkur takist að fá einhverja reynslu á þetta. Markmiðið er einnig að gefa öllum einkaaðilum tækifæri á að vera með því við viljum auðvitað auglýsa alla þjónustu sem er í boði í Eyjum, það kemur þó á seinni stigum. Þetta verður mikil framför í þjónustu við ferðamenn þar sem þeir geta fundið sér afþreyingu, gistiaðstöðu, veitingastaði og aðra þjónustu í gegnum þetta snjallsíma- forrit. Það er því allt í gangi hjá bænum,“ segir Kristinn. Hótel mamma í sumar Kristinn segir að það séu spennandi tímar framundan hjá sér þar sem hann er að útskrifast næsta vor með BA í arkitektúr og hefur hann ekki ákveðið hvað skuli gera eftir það. Þá er við hæfi að spyrja út í það hvar hann ætli að eiga heima í fram- tíðinni? „Ég elska þessa spurn- ingu,“ segir Kristinn hlæjandi. „Auðvitað leitar hugurinn alltaf heim en það mun eflaust margt spila inn í þessa ákvörðun þegar að henni kemur, en atvinnumöguleikar skipta miklu þegar val á búsetu er annars vegar. Núna er ég þó á hótel mömmu yfir sumartímann og það er auðvitað bara lúxus“. Það lífgar mikið upp á bæjarlífið að fá svona framtakssaman mann til verka í sumar en í haust fer Kristinn aftur upp á meginlandið og heldur áfram í arkitektúrnum í höfuðborg- inni. Við óskum honum velfarnaðar í framtíðinni og vonumst til að sjá hann aftur í Eyjum eftir námið.Víða á Heimaey má sjá merki eins og þetta sem bendir ferðamönnum í rétta átt að Skansinum. Kristinn í gati steinsins á Ráðhúströð. Ekki sat hann þar fastur líkt og tröllskessan í ævintýrinu um Búkollu.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.