Fréttir - Eyjafréttir - 23.07.2014, Qupperneq 13
°
°
13Eyjafréttir / Miðvikudagur 23. júlí 2014
Eyjamenn unnu 2. flokkinn
með sannfærandi hætti
Íslandsmót kylfinga 35 ára og eldri:
Íslandsmót kylfinga, 35 ára og eldri,
fór fram í Vestmannaeyjum um
helgina. Þessu móti var komið á
laggirnar fyrir nokkrum árum þegar
þátttaka í sjálft Íslandsmótið var
takmörkuð við forgjafarlægstu
kylfingana. Þar með var fjöldi góðra
kylfinga útilokaður frá þátttöku í
Íslandsmóti og því var efnt til þessa
móts.
Alls skráðu sig 105 kylfingar til
keppni að þessu sinni og af þeim
luku 87 leik. Keppt var í þremur
forgjafarflokkum karla og kvenna
og áttu Eyjamenn 16 fulltrúa í þessu
móti. Veður gerði bæði mótshöld-
urum og kylfingum lífið fremur leitt
þá þrjá daga sem mótið stóð yfir. Að
vísu var hið ágætasta veður fyrsta
keppnisdaginn, fimmtudag, en svo
tóku bæði vindur, regn og þoka yfir
á föstudag og laugardag, þannig að
fresta varð leik báða dagana en
tókst þó að ljúka keppni á laugar-
dag.
Keppt var í þremur forgjafar-
flokkum karla og kvenna, eins og
fyrr segir, og átti GV fulltrúa í
öllum þeim flokkum nema einum.
Sigurvegarar urðu þessir:
1. flokkur karla (forgjöf -8)
1. Tryggvi V. Traustas. GSE 215
högg
Eyjamaðurinn Rúnar Þór Karlsson
var í þriðja sæti fyrir lokadaginn en
náði ekki að sýna sínar bestu hliðar
og hafnaði í 8. sæti.
1. flokkur kvenna (forgjöf -10)
1. Ragnhildur Sigurðard. GR 220
högg
Aðeins þrjár konur voru í þessum
flokki og Ragnhildur, margfaldur
Íslandsmeistari fyrri ára, sigraði
næsta örugglega.
2. flokkur karla (forgjöf 8,1 – 16)
1. Helgi Sigurðsson GV 228 högg
2. Huginn Helgason GV 237 högg
3. Eyþór Harðarson GV 243 högg
Þetta var flokkur Eyjamanna sem
hirtu öll verðlaunin og voru vel að
þeim komnir. Fleiri Eyjamenn náðu
þarna góðum árangri, t.d. var
Arnsteinn Ingi Jóhannesson í 7.
sæti.
2. flokkur kvenna (forg 10,1 – 20)
1. Margrét Sigmundsd. GK 267 h.
2. Sara Jóhannsdóttir GV 270 högg
3. Katrín Harðardóttir GV 288 högg
Eyjakonur stóðu sig mætavel í
þessum flokki, nýkrýndur Vest-
mannaeyjameistari í 2. sæti.
3. flokkur karla (forgj. 16,1 – 36)
1. Halldór K. Baldursson GR 249 h.
3. Viðar Elíasson GV 274 högg
Viðar náði að tryggja sér þriðja
sætið í þessum flokki með góðri
spilamennsku alla dagana. Þá náðu
þeir Sigursveinn Þórðarson og
Kristófer H. Helgason, báðir frá
GV, einnig góðum árangri í þessum
flokki, urðu jafnir í 5. til 6. sæti.
3. flokkur kvenna (forg 20,1 – 36)
1. Rut Aðalsteinsdóttir GR 297 h.
Eyjakonan Alda Harðardóttir, sem
spilar með GKG, varð í 4. sæti og
Guðmunda Bjarnadóttir GV í 5.
sæti.
Mótsnefnd þessa Íslandsmóts
skipuðu þeir Hörður Óskarsson, Jón
Árni Ólafsson og Gunnar Geir
Gústafsson og þóttu þeir skila sínu
hlutverki vel í erfiðum aðstæðum,
þar sem nokkrum sinnum varð að
fresta leik vegna erfiðra aðstæðna á
vellinum. Þá þóttu vallarstarfsmenn
GV standa sig með mikilli prýði.
SIGurGEIr JÓnSSon
sigurge@internet.is
Mig langar með skrifum mínum í
þetta sinn að vekja athygli á stöðu
fatlaðra og þá sérstaklega á stöðu
geðfatlaðra í okkar samfélagi. Í
minni nánustu fjölskyldu er
ungur maður sem hefur í mörg ár
glímt við geðfötlun. Það hefur oft
valdið mér heilabrotum hvernig
tekið hefur verið á hans málum
og stundum hefur mér fundist að
meðferðin á þeim jaðri við
mannréttindabrot.
Hann hefur búið á efstu hæð í blokk
hér í bæ og ég veit vel að stundum
hefur hann verið með hávaða og
læti í stigaganginum og í íbúðinni
sinni. Þessi læti tengjast geðfötlun
hans. Nú er svo komið að íbúar í
stigaganginum fóru fram á að hann
yrði látinn fara úr blokkinni sem
hann býr í. Það var samþykkt á
húsfundi og hann látinn fara
fyrirvaralaust, en samt látinn borga
leigu í einn mánuð í viðbót undir
húsgögnin sín.
Það voru engin úrræði í boði fyrir
hann svo að það var annaðhvort
gatan eða að flytja heim til foreldra
sinna. Hvern langar að búa heima
hjá mömmu og pabba eftir að hafa
verið í sjálfstæðri búsetu í fjölda
ára, og hvað þá þegar maður er
orðinn 34 ára. Það eru engin úrræði
til staðar, ekkert pláss á sambýlinu
og enginn vill fá hann í stigagang-
inn sinn sökum geðfötlunar hans.
Hvað á að gera við þá sem passa
ekki inn í normið? Hverjum tilheyra
þeir sem eru öðruvísi? Hvar eru
lausnir og hver eru mannréttindi
þeirra sem eru fyrir utan kassann?
Við getum verið alveg viss um að
málið leysist ekki með því að benda
hvert á annað og láta sem okkur
komi þetta ekki við. Við erum öll
íbúar í þessum bæ og þurfum að
sýna umburðarlyndi og reyna að
greiða götu þeirra sem minna mega
sín. Við þurfum öll að tilheyra
einhverjum stað, og við þurfum öll
að búa einhvers staðar. Úrræðin eru
fá en það breytir því ekki að það
þarf að finna lausnir á þeim málum
sem upp koma. Mér hefur fundist
þessi málaflokkur vera utangarðs í
umræðunni og þau sem hann til-
heyrir bendi hvert á annað í full-
komnu skilningsleysi á aðstæðum
þess sem á í hlut. Það þarf að leysa
þessi mál núna, ekki í næstu viku
og ekki eftir tvö ár heldur nú í dag.
Hvað eigum við að gera við fólk
eins og frænda minn, peningar
virðast ekki vera fyrirstaðan heldur
að finna búsetu þar sem hann má
vera með öllum sínum kostum og
göllum án þess að styggja neinn.
Við getum að minnsta kosti ekki
látið hann búa áfram heima hjá
mömmu og pabba á meðan hann
týnist í kerfinu? Það er engin lausn,
er það?
Ég er ekki að leita að sökudólg, en
ég er að reyna að vekja fólk til
umhugsunar um málefni geðfatl-
aðra í okkar litla samfélagi. Þeir
eru kannski ekki svo margir en þeir
hljóta að eiga sinn rétt og þetta
kemur okkur öllum við.
Nú er búið að byggja þetta frábæra
safn Eldheima sem ég verð að segja
að var alveg frábært framtak, en
mér finnst að nú hljóti að vera
tímabært að huga að aðbúnaði
fatlaðra, hreyfihamlaðra og
geðfatlaðra. Það vantar úrræði fyrir
þau núna og ég vona að Eyjamenn
vakni til meðvitundar um það sem
allra fyrst. Það er erfitt að eignast
fatlað barn, en fatlaðir verða líka
fullorðnir og það kemur sá tími að
þeir vilja fljúga úr hreiðrinu eins og
aðrir og þá verður að vera til
einhver staður fyrir þá. Staður þar
sem þeir geta búið og kallað heimili
sitt með öllu sem því fylgir.
Húsnæðisvandi þeirra sem þurfa
aðstoð er verulegur og lausnirnar
virðast því miður ekki vera í
sjónmáli, en við getum ekki beðið,
því mál eins og hjá frænda mínum,
það þolir enga bið.
Verum góð hvert við annað og
sýnum öllu fólki umburðarlyndi og
þá virðingu sem það á skilið. Við
erum ekki öll eins og þarfir okkar
misjafnar. Farið vel með ykkur.
kristín
valtýsdóttir
Nú er búið að byggja þetta frábæra safn
Eldheima sem ég verð að segja að var
alveg frábært framtak, en mér finnst að
nú hljóti að vera tímabært að huga að
aðbúnaði fatlaðra, hreyfihamlaðra og
geðfatlaðra. Það vantar úrræði fyrir þau
núna og ég vona að Eyjamenn vakni til
meðvitundar um það sem allra fyrst.
”
Allir þurfa að búa einhvers staðar
:: En ef þú ert ekki í lagi, þá vinsamlega ekki nálægt mér!
Eftir hádegi síðastliðinn laugardag
var lögreglu tilkynnt um að bifreið
hefði verið stolið og talið að henni
hafi verið stolið eftir klukkan 1:00
aðfaranótt laugardags. Bifreiðin
fannst síðdegis sama dag, neðst á
Brimhólabraut. Var hún óskemmd
og engu hafði verið stolið úr henni
en greinilegt að henni hafði verið
ekið töluvert um nóttina þar sem
grynnkað hafði á eldsneytistanki
hennar. Um er að ræða gráa Toyotu
Corolla og eru þeir, sem einhverjar
upplýsingar hafa um hver eða
hverjir voru á bifreiðinni þessa
umræddu nótt, beðnir um að hafa
samband við lögreglu.
Lögregla:
Bíl stolið
og óskað
eftir upp-
lýsingum
Tvö fíkni-
efnamál
Tvö fíkniefnamál komu upp í
vikunni, og var í öðru tilvikinu um
að ræða lítils háttar af kannabis-
efnum sem fundust á farþega sem
var að koma með Herjólfi til
Vestmannaeyja þann 15. júlí sl. Í
hinu tilvikinu var um að ræða
haldlagningu á nokkrum grömmum
af kannabisefnum eftir húsleit í
íbúðarhúsi hér í bæ síðdegis á föstu-
daginn. Teljast málin að mestu
upplýst en í báðum tilvikum
kváðust þeir aðilar, sem þarna komu
við sögu, vera eigendur efnanna og
ætluðu þau til eigin nota.
Einn ökumaður var stöðvaður í
vikunni vegna gruns um akstur
undir áhrifum ávana- og fíkniefna
og þá var ökumaður stöðvaður um
liðna helgi grunaður um akstur
undir áhrifum áfengis.
Prufuútsendingar Gufunnar FM
104,7 eru hafnar en útsendingar
hefjast formlega fimmtudaginn 24.
júlí. Sem fyrr mun Gufan hita upp
fyrir Þjóðhátíð í Eyjum með tónlist,
fréttum og spjalli um allt sem
viðkemur hátíðinni. Að þessu sinni
verður enn meira fjör á Gufufólki í
tilefni þess að 25 ár eru liðin frá
fyrstu útsendingum stöðvarinnar
auk þess sem 140 ár eru liðin frá
því að þjóðhátíð var fyrst haldin í
Eyjum.
Hópurinn, sem stendur að baki
Gufunni, er skipaður gömlum
reynsluboltum sem tóku þátt í
þjóðhátíðarútvarpinu á upphafs-
árum þess og yngri útvarpsmönnum
sem hafa komið að rekstri stöðvar-
innar frá því að hún var endurvakin
fyrir fimm árum.
Útsendingar Gufunnar á FM
104,7 nást í Eyjum og Landeyja-
höfn. Einnig má hlusta á netinu um
streymisþjónustu Hringiðunnar
(mms://media.vortex.is/gufan).
Hægt er að hafa samband við
Gufuna á Facebook síðu Gufunnar
(https://www.facebook.com/
gufanfm), um tölvupóstinn gufan@
gufan.is eða í símann 481-3443.
Gufan í
loftið á
morgun
Efstu þrír í 2. flokki eru allir félagar í Golfklúbbi Vestmannaeyja. Frá vinstri: Huginn Helgason, 2. sæti,
Helgi Sigurðsson, 1. sæti og Eyþór Harðarson, 3. sæti.