Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 10.06.2015, Side 1

Fréttir - Eyjafréttir - 10.06.2015, Side 1
Eyjafréttir >> 12 SjómannSkona á liStabraut>> 13 bragi og vindorkan>> 10 valmundur lítur yfir farinn veg Vestmannaeyjum 10. júní 2015 :: 42. árg. :: 23. tbl. :: Verð kr. 400 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is Á þriðjudaginn var kveðinn upp dómur í Hæstarétti í máli Vestmannaeyjabæjar gegn Síldarvinnslunni hf. og Berg Huginn ehf. Málið snýst um þá ákvörðun bæjarins að láta reyna á forkaupsrétt sveitarfélaga á aflaheimildum sem selja á burt. Upphafið eru kaup Síldarvinnslunnar á öllum hlutum í Berg Huginn árið 2012. Mörgum Eyjamönnum var brugðið, að sjá hugsanlega á eftir tveimur öflugum skipum, Vest- mannaey VE og Bergey VE og um 5000 tonna kvóta úr bænum. Bæjarstjórn ákvað að fá kaupunum hnekkt fyrir dómstólum sem var niðurstaðan í Héraðsdómi. Þeim dómi sneri Hæstiréttur við í síðustu viku og er kaupsamningurinn því gildur. „Lykilatriði þessa máls er að nú er komin niðurstaða og hún er sú að forkaupsréttur sveitarfélaga sam- kvæmt 3. mgr. 12. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða er ekki virkur. Þar með er sú litla vörn sem löggjafinn byggði inn í lögin að engu höfð. Vörn íbúa gegn skyndilegum og miklum breytingum í atvinnuum- hverfi sveitarfélagsins er engin,“ sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri þegar dómurinn lá fyrir. Af hverju ekki áfram í Eyjum? Eyjafréttir leituðu álits m.a. fulltrúa stéttarfélaga sem vilja stíga varlega til jarðar, segja að í raun hafi ekkert breyst nema eignarhaldið. Líka var haft samband við Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar og Magnús Kristinsson, fram- kvæmdastjóra og fyrrum eiganda Bergs Hugins ehf. Gunnþór var ekki tilbúinn að tjá sig um stöðuna að svo komnu máli og Magnús segir félagið enn í fullum gangi í Vestmanna- eyjum. „Það gengur mjög vel hjá okkur og ég er í mjög góðu samstarfi við Gunnþór og hans fólk hjá Síldarvinnslunni hf. Þriðjungur aflans er unninn hér heima og fullyrðingar um að við löndum að stórum hluta fyrir austan eru ekki réttar. Það er gott að gera út í Vestmannaeyjum og af hverju ætti Bergur Huginn ehf. ekki að vera hér áfram með nýjum eigendum,“ sagði Magnús. Hvort vörnin stenst eða ekki „Krafa sjávarbyggða nú hlýtur því að vera að skerpt verði á ákvæðinu um forkaupsrétt og tryggt verði að útgerðir geti ekki á markvissan hátt farið fram hjá vilja löggjafans með lagatæknilegum æfingum. Ég vil þó að það komi skýrt fram að samningur milli Bergs-Hugins og Síldarvinnsl- unnar er ekki með neinum hætti ólíkur því sem gengur og gerist í kaupum og sölum á útgerðum. Það sem gerir þetta mál sérstakt eru viðbrögð Vestmannaeyjabæjar og ákvörðun bæjarstjórnar um að fá úr því skorið í eitt skipti fyrir öll hvort íbúar ættu vörn í lögum um stjórn fiskveiðar eða ekki,“ sagði Elliði. Hæstiréttur í síðustu viku :: Kaupin á Berg Huginn ehf. standa: Gengur mjög vel og gott samstarf við Síldarvinnsluna :: Það segir framkvæmastjóri Bergs Hugins ehf. :: Krafa sjávarbyggða að skerpt verði á ákvæðinu forkaupsrétt, segir bæjarstjóri Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is Einn af hápunktum Sjómannahátíðarinnar á laugardaginn var koddaslagur þar sem þeir Magni Freyr Hauksson og Óskar Þór Kristjánsson tókust á. Magni Freyr hafði betur en það var ekki aðalmálið því með þessu voru þeir að safna áheitum. Söfnuðust 130 þúsund sem renna til Krabbavarnar í Vestmannaeyjum. >> Myndir og umfjöllun í miðopnu.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.