Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 10.06.2015, Síða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 10.06.2015, Síða 10
10 Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. júní 2015 Ég er fæddur og uppalinn á Siglufirði. Flutti þaðan með fjölskylduna til Vestmannaeyja á vordögum 1989. Byrjaði mína sjómennsku á skuttogurunum á Siglufirði, lengst á Sigluvík Si 2 með Budda Jó. Á Frigg Ve 41 með Magna Jó 1989-1991. Á Þórunni Sveins með Sigurjóni Óskarssyni einn vetur, með Helga Ágústssyni á Frigg Ve (Katrínu) og Sindra Ve í stuttan tíma og svo á Frá Ve 78, 1992-2010 með Óskari Þórarinssyni á Háeyri og Sindra syni hans. Ég er giftur Björgu Sigrúnu Baldvins- dóttur og við eigum tvö börn, Önnu Brynju sem er í sambúð með Davíð Erni Guðmundssyni og Val Má sem er í sambúð með Lindu Óskars- dóttur og barnabörnin eru tvö, Una Björg og Sigrún Anna. Þegar ég byrjaði til sjós árið 1977 á skuttogara frá Siglufirði voru 16 kallar. Þetta voru skemmtilegir tímar. Margir áhafnarmeðlima höfðu upplifað síðutogaramenn- inguna og lifðu í hálfgerðri nostalgíu með sögum frá þessum tíma. Þessir kallar áttu eitt sam- eiginlegt, en það var dugnaðurinn og ósérhlífnin við vinnuna. Þeir kenndu mér nýliðanum mikið og auðvitað stríddu þeir manni líka og plötuðu. Kallinn sótbölvandi og kallandi alla aumingja og ræfla Togarinn sem ég var fyrst á var Stálvík Si 1 en þar var sá mikli afla- og skapmaður Hjalti Björnsson skipstjóri. Það var alltaf hávaði á dekkinu þegar við vorum að taka trollið. Hjalti hálfur útum gluggann argandi eða hlaupandi um dekkið á inniskónum sótbölvandi og kallandi alla aumingja og ræfla í kringum sig. Stundum var öll vaktin rekin á einu bretti. Auðvitað var maður logandi hræddur við kallhelvítið til að byrja með, en það rjátlaðist af manni þegar maður tók eftir því hvað hinir voru rólegir yfir öllum þessum látum í kallinum og þeir skömmuðu hann líka fyrir hávaðann og fyrirganginn. Stundum þegar kallinn var alveg að tapa sér í glugganum áttu hásetarnir til að henda fiski í kallinn sem umsvifa- laust dró upp gluggann og opnaði svo aftur og argaði, „þú hittir ekki helvítis auminginn þinn“. Slagur milli skipstjóra og stýrimanns Já, þetta var góður tími og ekki vildi ég hafa misst af honum. Stýrimaður á Stálvíkinni á þessum tíma var Kristján Elís Bjarnason, Stjáni Bjarna sem núna er með Múlabergið. Þeir Hjalti elduðu oft grátt silfur saman. Mikið kapp var í Stjána að fiska meira en helvítis kallinn. Þannig háttaði til að á millidekk- inu var færiband milli blóðgun- arkaranna sem við söfnuðum oft karfanum á ef ekki var mikið af honum. Svo þegar bandið var orðið fullt var karfanum skverað í lestina. Stjáni hafði miklar áhyggjur af því hvor þeirra, hann eða kallinn fengi karfann skráðan í kassabókina. Einhverju sinni þegar litlu munaði á kallinum og Stjána þegar túrinn var gerður upp og kallinn hafði aðeins betur kvartaði Stjáni mikið og kvað okkur hafa einbeittan brotavilja með því að „láta helvítis kallinn alltaf hafa allan karfann“. Sagt er að þeir félagarnir Stjáni og Hjalti hafi slegist í einni siglingunni til Englands um hvor fiskaði meira. Það vantaði ekki kappið í þessa kalla. Minn mentor í sjómennskunni Sigurjón Jóhannsson eða Buddi Jó eins og hann var kallaður var skipstjóri á Sigluvíkinni þegar ég byrjaði þar 1978. Hann var minn mentor í sjómennskunni. Mjög góður sjómaður og gætinn með afbrigðum. Margir minnisstæðir kallar voru með manni til sjós í denn. Haukur á Kambi var einn sá minnistæðasti, eða Kambarinn eins og hann var kallaður. Kambarinn var mjög sjóndapur maður og gekk með þykk gleraugu. Þó háði þetta honum ekki neitt í trollmennskunni, flínkari kall var ekki til þegar kom að viðgerðum á trolli eða greiða úr flækjum. Einhverju sinni þegar Haukur var á Hafliða, síðutog- aranum, höfðu þeir lent í samförum við þýskan togara úti fyrir Vest- fjörðum í blæja- logni. Þegar þeir höfðu híft sig saman til að reyna leysa úr flækjunni og orðið mjög stutt á milli þeirra, þóttist Kambarinn sjá hvar lásinn á flækjunni væri. Setur krumlurnar sem lúður á munninn og argar yfir til þýskaranna, „ der ligger hunden på grabben “ eða þarna liggur hundurinn grafinn uppá íslensku og varð alveg steinhissa þegar þjóðverjar hváðu. „Þeir skilja ekki sitt eigið tungumál, þessir helvítis Þjóðverjar“. Með meiri whiskýrödd en Lee Marvin Margir fleiri góðir voru á Sigluvík- inni. Palli Gull eða Gullarinn var einn góður. Maður komst ekkert hjá því að heyra í honum, hann var með meiri wiskýrödd en Lee Marvin. Gaui Björns, Ási Björns, Friggi Guggu, siglfirskir karlmenn eru mjög gjarnan kenndir við mæður sínar. Steini í Seljalandi sem Gaui Björns kallaði Þvagstein en Steini var einu sinni í koju í 30 tíma án þess að míga. Birkir Ólafs, kallaður Biggi Önnu Möggu sem var konan hans. Magnús Ásmunds sem við kölluðum Magnús sjávarfjallaháska, hann hljóp niður fjall í Færeyjum og gat ekki stoppað sig áður en hann lenti í sjónum. Fengum einu sinni vélstjóra sem hét Birgir og átti fyrirtæki sem hét Runtal ofnar. Biggi var sköllóttur mjög og auðvitað skýrði Gaui Björns hann Rúntalskallann um leið. Svona var þetta, maður var manns gaman og margt gert sér til dundurs. Ef einhver hætti að reykja voru lagðar sígarettugildrur út um allt skip sem viðkomandi féll oft í. Til Eyja 1989 Eins og áður segir flutti fjölskyldan til Eyja vorið 1989. Það var lítið að gera á Siglufirði haustið 1988 og ég hafði samband við Baldur heitinn í Gúanó sem var giftur Biddu systur mömmu, og bað hann að redda mér plássi í Eyjum. Alveg sama hvernig plássi. Baldur hitti Hödda á Hvoli frænda minn og sagði honum frá vilja mínum. Eins og Hödda var von og vísa fór hann í málið og seinna sama dag hringir Baldur og tjáir mér að Höddi sé búinn að redda mér plássi á Frigginni sem sé trollari. Þetta var 26. janúar 1989 og þann 28. var ég mættur til skips. Ekki leist mér mikið á þennan kopp sem Friggin var, komandi af 500 tonna járnara. Lét þó slag standa og hef aldrei séð eftir því. Magni Jó er margslunginn karakter og við tókum margar rimmurnar þó við værum nú samt alltaf perluvinir, erfðum aldrei við hvorn annan þó slægi í brýnu. Magni var mikill fiskimaður og alltaf í góðu skapi. Við fiskuðum mest í gáma þó Vinnslustöðin ætti Frigg á pappír- unum. Gísli Guðlaugs á Tanganum gerði Frigg út og tók ekki í mál að landa á einhverju landssambands- verði. Áhöfnin á Frigginni var nokkuð samheldinn hópur til að byrja með. Fórum m.a. í tvær utanlandsferðir, til Portúgal og Amsterdam fyrir lifrarpeninginn. Svo komst Skattmann í lifrina og þá var það ævintýri búið. Valmundur Valmundsson fráfarandi formaður Jötuns og nú formaður Sjómanna- sambands Íslands lítur yfir farinn veg: Buddi Jó, Magni Jó, Sigurjón Óskars og Óskar á Háeyri menn sem vörðuðu leiðina :: Skrautlegir kallar á siglfirsku togurunum :: Höddi á Hvoli örlagavaldur :: Þegar skattmann komst í lifrina :: Sögustundir á Frá :: Í mörg horn að líta í hagsmunamálum sjómanna VaLmundur VaLmundSSon að ósk eyjafrétta Auðvitað var maður logandi hræddur við kallhelvítið til að byrja með, en það rjátlað- ist af manni þegar maður tók eftir því hvað hinir voru rólegir yfir öllum þessum látum í kallinum og þeir skömmuðu hann líka fyrir hávaðann og fyrirganginn. Stundum þegar kallinn var alveg að tapa sér í glugganum áttu hásetarnir til að henda fiski í kallinn sem umsvifalaust dró upp gluggann og opnaði svo aftur og argaði, „þú hittir ekki helvítis auminginn þinn“. ”

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.