Fréttir - Eyjafréttir - 12.08.2015, Blaðsíða 12
12 Eyjafréttir / Miðvikudagur 12. ágúst 2015
Það þætti víða í heiminum
fagnaðarerindi að lögregluemb-
ætti sýndi svo mikinn skilning á
sálrænum eftirköstum kynferð-
isbrota og hjá lögreglustjóranum
í Vestmannaeyjum. Ég hélt því í
einfeldni minni að að hags-
munahópar þolenda og fagað-
ilar almennt myndu fagna
þessari ákvörðun. Það kom
mér því vægast sagt nokkuð í
opna skjöldu þegar umræðan í
fjölmiðlum fór að snúast um að
ákvörðun lögreglustjóra væri
slæm og virtust ýmsir hags-
munahópar þolenda kynferðis-
brota og jafnvel fagaðilar með
þekkingu á kynferðisbrota-
málum finna þessari ákvörðun
allt til foráttu.
Á miðvikudegi fyrir þjóðhátíð
birtist frétt á Visir.is með fyrir-
sögninni „Lögreglustjóri í Eyjum
krefst þagnar um kynferðisbrot á
Þjóðhátíð“ og er vísað í bréf sem
lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum
hafði sent á viðbragðsaðila fyrir
þjóðhátíð. Samdægurs kemur
talskona Stígamóta fram í kvöld-
fréttum RÚV, þar sem hún með
vísan í umrætt bréf efast um hæfi
lögreglustjóra til að gæta hagsmuna
þolenda kynferðisofbeldis. Segir
lögreglustjóra vanta yfirsýn og
innsýn og nefnir hugtakið þöggun í
þessu samhengi. Á fimmtudegi
sendir Blaðamannafélag Íslands
(BÍ) og Félag fréttamanna út
harðorða yfirlýsingu þar sem talað
er um tilraun lögreglustjóra til
þöggunar og bætt við að lögreglu-
stjóri sé að brjóta lýðræðislega og
samfélagslega skyldu sína með því
að greina ekki skilmerkilega frá því
sem fréttnæmt þykir á þjóðhátíð.
Þegar einn þekktasti fagaðili
landsins á sviði kynferðisofbeldis
sem og forsvarsmenn fjölmiðla-
manna koma fram í fjölmiðlum
með þessum hætti er ekki að undra
að einhverjir hafi dregið þá ályktun
að markmið lögreglustjóra hafi
verið að þagga niður öll kynferðis-
brot á þjóðhátíð.
Hlutlægni og ábyrgð frétta-
manna og fagaðila í fjöl-
miðlum
Það er eitt ef almennir borgarar
draga ályktanir út frá umfjöllun
Visir.is, en maður gerir þá lág-
markskröfu til fagaðila að þeir
myndi sér ekki fullmótaða skoðun
án þess að kynna sér málin betur.
Það felst mikil ábyrgð í að vera
titlaður fagaðili í fjölmiðlum og
þykir mér ansi hart að meta hæfni
opinbers starfsmanns út frá einu
bréfi og ekki síður alvarlegt að saka
viðkomandi um þöggun!
Í þessu tilfelli hefði ég talið
skynsamlegra ef talskona Stígamóta
hefði sjálf kynnt sér þau rök og
ástæður sem lágu að baki ákvörðun
lögreglustjóra. Eins má velta fyrir
sér hlutlægni fjölmiðla í þessu máli,
og hversu ítarlega forsvarsmenn BÍ
og Félags fréttamanna hafi kynnt
sér málið áður en harðorð yfirlýsing
var send út?
Ég vil þó hrósa vinnubrögðum
fréttamanna Morgunblaðsins og
þáttastjórnenda Síðdegisútvarps
Rásar 2, sem höfðu fyrir því að
spyrja um afstöðu þeirra fagaðila
sem lögreglustjóri hafði leitað álits
hjá.
Í viðtali Síðdegisútvarps Rásar 2
fimmtudaginn 30. júlí, útskýrði ég
meðal annars að málið snerist ekki
um að þagga niður kynferðismál,
þvert á móti benti ég á að réttar
upplýsingar ættu og myndu koma
fram, þegar væri búið að vinna úr
málunum. Að sama skapi skrifaði
lögreglustjóri á lögregluvefinn á
föstudag 31. júlí að upplýsingar
vegna kynferðismála sem mögulega
kæmu upp yrðu veittar um leið og
hagsmunir brotaþola væru tryggðir
sem og rannsóknarhagsmunir.
Einhverra hluta vegna fór lítið fyrir
þessum ummælum í umræðunni og
lifðu gróusögur um þöggun á
þjóðhátíð því áfram í vitund
margra.
Ákvörðun lögreglustjóra - að-
dragandinn
En um hvað snerist ákvörðun
lögreglustjóra og hvernig var
aðdragandinn? Síðustu árin hafði
skapast sú venja á þjóðhátíð að
lögregla birti tölulegar upplýsingar
um fjölda kynferðismála nánast
samdægurs og í sumum tilfellum
áður en málsatvik voru að fullu
upplýst. Út frá sjónarhóli frétta-
manna var þetta eflaust fínt
fyrirkomulag en út frá sjónarhóli
brotaþola er ég þeirrar skoðunar að
almennt sé ekkert gott unnið með
því að birta þessar upplýsingar svo
fljótt.
Í aðdraganda þjóðhátíðar 2015
hafði lögreglustjóri samband við
ýmsa fagaðila sem hafa unnið með
kynferðisbrotamál á þjóðhátíð, hér
á meðal forráðamenn Áfallateymis
Þjóðhátíðarnefndar, Félagsþjónustu,
Barnavernd, og Heilsugæslu
Dr. Hjalti Jónsson, sálfræðingur og forsvarsmaður áfallateymis á þjóðhátíð
:: Ákvörðun lögreglustjóra var rétt:
Reynslan sýnt að fjölmiðla-
umræða strax í kjölfar
atburða er þungbær fyrir
suma brotaþola
:: Kom á óvart neikvæð umræða í fjölmiðlum og að fagaðilar með þekkingu á
kynferðisbrotamálum finna þessari ákvörðun allt til foráttu.
Hjalti Jónsson
Eyjamönnum er mjög annt um þjóðhátíðina og leggja mikið upp úr hvítu tjöldunum. Það er oft fjör í tjaldinu hjá Sæsu og Bjössa eins og sést á þessari mynd sem Gunnar Ingi tók.