Fréttir - Eyjafréttir - 05.04.2017, Blaðsíða 9
9Eyjafréttir / Miðvikudagur 5. apríl 2017
Undir lok árs 2016 ákváðu sjö
hjúkrunarnemar á þriðja ári við
Háskóla Ísland að láta gott af sér
leiða og víkka sjóndeildarhringinn í
gegnum hjálparstarf í Afríku á
vegum African Impact. Þegar í stað
fóru þær að plana förina og varð
Zambía fyrir valinu en þar munu
þær til að mynda sinna ungbarna-
vernd, fara á hjúkrunarheimili,
ferðast til nærliggjandi þorpa til að
sinna heilsueflingu og eftirliti. Þær
Herdís Gunnarsdóttir og Arna Hlín
Ástþórsdóttir eru á meðal þeirra sjö
hjúkrunarnema sem ætla að ferðast
til Zambíu en báðar eru þær
Vestmannaeyingar í húð og hár.
Blaðamaður ræddi við Herdísi á
dögunum um hjálparstarfið og
neyðina sem ríkir í Zambíu.
Brottfarardagur frá Íslandi segir
Herdís að verði aðfaranótt 14. júlí
en þá taka þær fjögur flug á tveimur
sólarhringum til þess að komast á
áfangastað. Ísland – Svíþjóð –
Dubai – Lusaka – Livingstone.
Kom enginn annar staður til
greina? „Það komu nokkrir staðir
til greina, meðal annars Kenya og
Tanzania. Okkur langaði á sjúkra-
hús eða heilsugæslustöð þar sem
við erum jú í hjúkrunarnámi. Við
settum okkur í samband við stelpur
sem fóru þessa sömu ferð árið 2014
og fengum upplýsingar frá þeim.
Ferðin er á vegum fyrirtækis sem
heitir African Impact en á heima-
síðu þeirra kynntum við okkur
samtökin og lásum okkur til um
hjálparstarfið. Okkur leist svo vel á
skipulagið að við ákváðum að
Zambía væri málið,“ segir Herdís.
Fólkið þarf á aðstoð
að halda
Aðspurð út í almennt ástand á
staðnum segist Herdís ekki gera sér
almennilega grein fyrir því hversu
mikil neyð ríkir. „Við vitum í
rauninni ekki hversu mikil neyðin
er á þessum stað. Við vitum bara að
fólkið þarf á aðstoð að halda. Það
eru hópar að fara á þennan stað í
hjálparstarf yfir allt árið þannig að
fólk á þessum slóðum er að fá
ágætis aðstoð. Það er búið að biðja
okkur um að koma með ýmsan
varning til þeirra, til dæmis
flísatangir, vítamín, sýklalyf,
sólgleraugu, sápur, naglaklippur,
sárabindi, sjúkratöskur og nóg af
paracetamóli og íbúfeni.“
Hvað verðið þið lengi og hvað
verðið þið helst að gera? „Hjálpar-
starfið er í tvær vikur og munum
við sinna ýmsum fjölbreyttum
störfum, til dæmis alls konar
heilsueflandi störfum, svo sem
ungbarnavernd, fara á hjúkrunar-
heimili og aðstoða fólkið þar,
ferðast til nærliggjandi þorpa og
sinna heilsueflingu og eftirliti þar.
Einnig verðum við með fræðslu
fyrir fólk varðandi HIV og almennt
heilbrigði,“ segir Herdís og bætir
við að þær vinkonur muni einnig
ferðast að hjálparstarfinu loknu.
„Við ætlum að ferðast um
suðurhluta Afríku í tvær vikur, fyrst
við erum nú komnar alla þessa leið.
Þann 29. júlí leggjum við af stað í
safari ferð. Við byrjum hjá
Viktoríufossunum og ferðumst yfir
til Windhoek. Ferðin er alls níu
dagar og átta nætur, en við munum
eyða þeim í tjaldi í miðri Afríku. Að
lokinni safariferð þann 6. ágúst
fljúgum við frá Windhoek til Cape
Town þar sem við ætlum að eyða
sjö dögum í að skoða okkur um,
slaka á og njóta lífsins. Við lendum
svo á Íslandi þann 14. ágúst.“
Erfitt en misjafnt
eftir stöðum
Nú hefur þú sjálf áður farið til
Afríku í hjálparstarf. Það hlýtur að
vera erfitt að koma inn í svona
aðstæður eða hvað? „Já, vissulega
er það erfitt. Það var þó misjafnt
eftir stöðum hversu mikil fátæktin
var, sumir bjuggu í moldarkofum á
meðan aðrir bjuggu í illa byggðum
húsum. Sumir höfðu efni á mat
handa sér og sínum en aðrir þurftu
að betla sér til matar. Þegar ég var í
Nairobi í Kenya heimsótti ég mjög
fátækt hverfi þar sem fólk bjó í
mjög illa förnum moldarkofum,
sváfu á gólfinu, áttu nánast ekkert
að borða, voru í skítugum og rifnum
fötum, ruslið flæddi eftir götunum
ásamt skólpi.
Mig langaði rosalega til þess að
hjálpa öllum, finna húsnæði handa
þeim og gefa þeim peninga til þess
að lifa góðu lífi, en það er bara ekki
hægt. Mig langaði sérstaklega til
þess að taka litlu börnin með mér til
Íslands og ættleiða þau bara öll, en
það er víst heldur ekki hægt,“ segir
Herdís og heldur áfram. „Ég man
að fyrir ferðina voru margir búnir
að vara mig við því að ég myndi
mjög líklega verða fyrir menningar-
sjokki þegar ég kæmi út, en það var
ekki fyrr en ég lenti í London eftir
hjálparstarfið, þar sem ég og tvær
vinkonur mínar úr ferðinni eyddum
nokkrum dögum í að versla og hafa
gaman, að ég fékk menningarsjokk.
Ég man svo vel eftir því þegar ég
lá uppi í risastóru mjúku rúmi á
hótelherberginu, með flatskjá á
veggnum fyrir framan mig,
nýkomin úr heitri sturtu, að borða
Dominos pítsu, að ég hugsaði hvað
í fjandanum ég hafi verið að gera
síðastliðnar átta vikur. Mér fannst
ótrúlegt að sjá fólk lifa svona allt
öðruvísi en við gerum á Íslandi. Á
þessu augnabliki áttaði ég mig á því
hvað ég hef það rosalega gott.“
Fjármagna ferðina sjálfar
Hvernig hafið þið verið að
fjármagna verkefnið og hvernig
getur fólk lagt ykkur lið? „Við
höfum verið að vinna í sjúkragæslu
á framhaldsskólaböllum í Reykjavík
núna í vetur sem hefur gengið
ótrúlega vel. Það er bæði skemmti-
legt en á sama tíma er það oft mjög
krefjandi. Við vorum með eina
netsöfnun í haust og svo höfum við
einnig verið að selja sjúkratöskur.
Næsta fjáröflun okkar er BINGÓ
sem verður í kvöld í Eirbergi sem er
húsnæði hjúkrunarfræðinema, það
er staðsett við hlið Landspítalans
við Hringbraut,“ segir Herdís.
Ef fólk vill leggja Herdísi og stelp-
unum lið þá getur það lagt inn á
þennan reikning: 0323-13-302664
kt: 300194-2659. „Reikningurinn er
stílaður á Guðnýju Björg Sigurðar-
dóttur sem er ein af þeim sem fer
með okkur út. Svo hvet ég alla sem
verða á höfuðborgarsvæðinu í dag
að hita upp bingóvöðvana og kíkja
til okkar í BINGÓ, vinningarnir eru
hreint stórkostlegir. Meðal annars
gjafabréf í Sölku og á Slippinn, það
er sko eitthvað! Svo viljum við
auðvitað þakka öllum þeim sem
hafa stutt okkur kærlega fyrir
stuðninginn. Það eru allir svo
liðlegir og tilbúnir til þess að styðja
við bakið á okkur, það er ómetan-
legt að eiga svona gott fólk í
kringum okkur.“
Þeir sem vilja fylgjast með
ferðinni og undirbúningnum fyrir
hana þá er snapchatið hjá stelp-
unum: hjalparstarf17. Einnig eru
þær með like-síðu á Facebook:
Hjúkrunarnemar í Zambíu.
:: Hjúkrunarfræðinemar frá Vestmannaeyjum á leið til Zambíu í hjálparstarf:
Við vitum bara að fólkið
þarf á aðstoð að halda
:: Munu sinna heilsueflingu og eftirliti :: Fjáröflun í fullum gangi
Einar KriSTinn HELGaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is
Herdís ásamt skólabörnum frá NairobiHerdís ásamt ungum dreng frá bænum Migori.
Hjúkrunarfræðinemarnir Arna Hlín og Herdís.