Fréttir - Eyjafréttir - 05.04.2017, Blaðsíða 12
S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s
Eyjafréttir
TVÆR FERÐIR Á DAG - ALLA DAGA
Frá Þorlákshöfn 11:45 19:15
Frá Vestmannaeyjum 08:00 15:30
Opið Mán-fös kl. 7.30-21.00 / Lau. kl. 10-21 / Sun kl. 10-21
VöruVal góð
Verslun í
alfaraleið
Ný tilboð vikulega.
Heimsendingarþjónusta.
Opið frá 7:30 - 21:00 virka daga
og 10:00 - 21:00 um helgar.
sushi frá Osushi
kemur til okkar föstudaga kl. 17.30.
Tökum niður pantanir !
Samskip óska eftir að ráða sumarstarfsfólk í
útkeyrslu og afgreiðslu á vörum.
Helstu verkefni
• Móttaka og afgreiðsla á vörum
• Tiltekt og afgreiðsla pantana
• Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur
• Aldur 18+
• Hreint sakavottorð
• Rík þjónustulund og sterk öryggisvitund
• Stundvísi, reglusemi og snyrtimennska
• Bílpróf er skilyrði, lyftararéttindi eru kostur
Umsóknarfrestur er til og með 16. apríl.
Tekið er á móti umsóknum í gegnum vefsíðu
okkar www.samskip.is. Mikilvægt er að
sumarstarfsmenn séu tilbúnir að vinna samfellt í
10 vikur.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bryndís
Gísladóttir í bryndis.gisladottir@samskip.com
eða í síma 858 8866.
Saman náum við árangri
Sumarstörf hjá
Samskipum í
Vestmannaeyjum
Trillusjómennirnir Haukur Guðjóns-
son og Kjartan Már Ívarsson,
eigendur Ugga VE og Þyts VE, hafa
um árabil átt beitiskúr við Strandveg
65. Þannig er mál með vexti að þeir
félagar hafa takmarkaðan aðgang að
húsnæði sínu vegna véla- og
númerslausra bíla sem beðið hafa
viðgerða hjá Bílaverkstæði Muggs
svo mánuðum skiptir, ýmist á
götunni eða uppi á gangstétt.
Samanlagt borga þeir um 300.000 kr.
á ári í fasteignagjöld fyrir þetta
atvinnuhúsnæði sitt.
Að sögn Hauks geta lögregla og
bæjaryfirvöld ekkert aðhafst í málinu
því það sé undir starfsmanni
Heilbrigðiseftirlits Suðurlands að
setja merkimiða á bílinn sem gerir
bæjaryfirvöldum kleift að fjarlægja
hann. „Það eina sem okkur dettur í
hug er að þessi aðili sé að fá
einhverja þóknun frá verkstæðinu,
manni dettur það bara í hug fyrst það
er hægt að vera svona lengi með
númerslausan bíl í alfaraleið,“ segir
Haukur, eigandi Uggs til 60 ára. „Í
fyrra skiptið var bíll í 14 mánuði með
hléum en núna er bíll búinn að vera
þarna í sjö mánuði.“
Í svari Áslaugar Rutar Áslaugs-
dóttur, heilbrigðisfulltrúa Heil-
brigðiseftirlits Suðurlands, segir að
Heilbrigðiseftirlitið hafi verið beðið
um að líma á númerslausar bifreiðar
á þessu svæði og þann 9. febrúar sl.
hafi verið límt á einn bíl í Skvísu-
sundi en hinir númerslausu bílarnir
hafi tilheyrt bifreiðaverkstæði Muggs
og ætlaði eigandi verkstæðisins að
fjarlægja umræddan jeppa í vikunni á
eftir. Þar sem það hefur ekki gengið
eftir mun embættið líma á alla
númerslausa bíla á þessu svæði nú í
dag (gær) með tíu daga fresti til að
fjarlægja bílana.
Vert er að minna á að síðustu ár
hefur Vestmannaeyjabær staðið í
átaki sem miðar að því að fjarlægja
númerslausa bíla af götum bæjarins
og vakna því eðlilega upp spurningar
hjá fólki þegar sumir bílar fá að
standa óhreyfðir en aðrir ekki.
Véla- og númers-
lausir bílar til traf-
ala á Strandvegi
Einar KriSTinn HELGaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is
Í gær fór fram leikur ÍBV og Vals í
lokaumferð Olís-deildar karla í
handbolta þar sem Eyjamenn áttu
mögulega á deildarmeistaratitli en
gátu líka endað í öðru til þriðja sæti,
allt eftir úrslitum annarra leikja í
toppbaráttunni. Blaðið fór í prentun
áður en leikirnir hófust.
Möguleiki Eyjamanna á deildar-
meistaratitli var að sigra Val og að
FH tapaði fyrir Selfossi. FH er á
toppnum, með stigi meira en ÍBV en
dugar jafntefli vegna hagstæðra
innbyrðis viðureigna gegn ÍBV. Sá
möguleiki var einnig fyrir hendi að
enda í þriðja sætinu en þá þurfti ÍBV
að tapa sínum leik og Haukar að
vinna Aftureldingu á útivelli. En
sama hvernig færi var alltaf ljóst að
ÍBV ætti heimaleikjarétt í úrslita-
keppninni en hann fá fjögur efstu lið
deildarinnar. Til að komast í næstu
umferð verður hvert lið að vinna tvo
leiki og kemur sér þá vel að eiga
heimaleikjaréttinn í oddaleiknum.
Úrslitakeppnin hefst næstkomandi
sunnudag kl. 19:30 og verður
spennandi að sjá hvaða lið mætast.
Olís-deildin :: Eyjamenn gátu lent í fyrsta til þriðja sæti:
Heimaleikjaréttur-
inn öruggur
Einar KriSTinn HELGaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is