Fréttir - Eyjafréttir - 05.04.2017, Blaðsíða 1
Eyjafréttir
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Vestmannaeyjum 5. apríl 2017 :: 44. árg. :: 14. tbl. :: Verð kr. 490 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is
Þrátt fyrir mokfiskirí í bolfiski er
hljóðið þungt í fiskvinnslunni og
dæmi eru um fyrirtæki hafi ekki farið
af stað eftir að sjómannaverkfalli
lauk 19. febrúar. Það hafði þá staðið í
tíu vikur. Margt spilar inn í, m.a. hátt
gengi krónunnar, verðlækkun á fiski
og fyrirtækin hafa ekki náð fyrri sessi
með vörur sínar á mörkuðum og í
verslunum.
„Við höfum síðustu mánuði róið
lífróður til að halda skútunni á floti
eins og væntanlega flestir bolfisk-
framleiðendur,“ segir Einar Bjarna-
son, fjármálastjóri Godthaab sem
eingöngu rekur fiskvinnslu. „Enda-
laus styrking krónunnar, miklar
launahækkanir og háir vextir eru þær
aðstæður sem við höfum glímt við
undanfarna mánuði og ekki hjálpaði
til tíu vikna sjómannaverkfall um
síðustu áramót,“ bætti Einar við.
Stefán Friðriksson, framkvæmda-
stjóri Ísfélagsins tekur í sama streng.
„Staðan er erfið hjá okkur eins og
öðrum í bolfiski,“ segir Stefán.
Verkfallið, verðlækkun á afurðum,
sterk króna og innlendar hækkanir
hafa mikil áhrif. Á sama tíma tala
sumir stjórnmálamenn um að auka
enn frekar á óvissuna með breyt-
ingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu
og sumir ganga jafnvel svo langt að
mæla með hærri sköttum á greinina.
Það er ekki öll vitleysan eins.“
Ekki náðist í Brynjar Sigurgeir
Brynjarsson, framkvæmdastjóra
Vinnslustöðvarinnar við vinnslu
fréttarinnar. Í kjölfar umræðu um
erfiða stöðu í bolfiski blossaði upp
umræða um að fiskvinnslan væri á
leið úr landi. Sagði Binni í viðtali við
Morgunblaðið að slíkt væri ekki á
döfinni hjá þeim. Það sama segir Jens
Garðar Helgason, formaður Samtaka
fyrirtækja í sjávarútvegi í samtali við
sama blað. Bendir hann á í því
sambandi á mikla fjárfestingu í
sjávarútvegi um allt land.
Það á einnig við í Vestmannaeyjum
þar sem fyrirtækin hafa fjárfest fyrir
tugi milljarða á undanförnum árum.
Þungt hljóð vegna stöðunnar í bolfiskvinnslunni :: Verkfallið, verðlækkun
á afurðum, sterk króna og innlendar hækkanir hafa mikil áhrif:
Höfum róið lífróður til
að halda skútunni á floti
:: Eins og væntanlega flestir bolfiskframleiðendur, segir fjármálstjóri
Godthaab
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Þeir tóku sig vel út kokkarnir á Herrakvöldi handboltans í Golfskálanum á föstudagskvöldið. Þar var mikið stuð og stemning eins og alltaf þegar
stuðningsmenn handboltans koma saman. Sjá nánar á bls. 5.
2017FERMINGAR