Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.04.2018, Síða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 18.04.2018, Síða 2
2 - Eyjafréttir eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið. Eyjafréttir Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549. ritstjórn og ábyrgð: Sara Sjöfn Grettisdóttir - sarasjofn@eyjafrettir.is Blaðamaður: Einar Kristinn Helgason - einarkristinn@eyjafrettir.is Umbrot og hönnun: Sæþór Vídó - sathor@eyjafrettir.is Ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn. Prentvinna: Landsprent ehf. aðsetur ritstjórnar: Strandvegur 47, Vestm.eyjum. Símar: 481 1300 og 481 3310. netfang: frettir@eyjafrettir.is. auglýsingar: auglysingar@eyjafrettir.is Veffang: www.eyjafrettir.is Eyjafréttir koma út alla miðvikudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum, Vöruvali, og Skýlinu í Vestmannaeyjum. Eyjafréttir eru prentaðar í 2000 eintökum. Eyjafréttir eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Miðvikudagur 18. apríl 2018 Nú er það ljóst að framboðin verða þrjú í sveitarstjórnar- kosningunum þann 26. maí næstkomandi. Eyjalistinn var fyrstur til að tilkynna sinn lista og sögðum við frá honum í síðasta tölublaði, en Njáll Ragnarsson og Helga Jóhanna Harðardóttir leiða Eyjalistann. Sjálfstæðisflokkurinn opin- beraði sinn lista í síðustu viku og nýtt framboðsafl var stofnað á fimmtudaginn. Fyrsta sinn í 20 ár sem kona skipar það sæti á framboðs- lista flokksins. Í síðustu viku var haldinn fundur í fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins þar sem framboðslisti Sjálfstæðis- flokksins fyrir komandi sveitar- stjórnarkosningar var kynntur og samþykktur. Hildur Sólveig Sigurðardóttir og Helga Kristín Kolbeinsdóttir munu leiða lista Sjálfstæðisflokksins í sveitar- stjórnarkosningunum í maí. Elliði Vignisson Bæjarstjóri er leiðtogi og bæjarstjóraefni listans. Á listanum eru nýir einstaklingar, í bland við þá reynslumeiri. Fólk úr ólíkum áttum með ólíkan bakgrunn. Ekki sjálfgefið að ungri konu sé falið hlutverk sem þetta Hildur Sólveig Sigurðardóttir skipar fyrsta sæti á listanum, en þetta er í fyrsta sinn í 20 ár sem kona skipar það sæti á framboðs- lista flokksins. Haft var eftir henna í tilkynningu frá flokknum að það væri ekki sjálfgefið að ungri konu sé falið hlutverk sem þetta og hvað þá að tvær konur skipi tvö efstu sætin. „Þetta tel ég bæði sýna styrk okkar sem flokks sem og þann hug sem reynslumikið fólk í starfi okkar ber til ungs fólks og kvenna.“ Í tilkynningu er svo haft eftir Elliða, „ég kvíði því ekki að leiða listann sem varabæjarfulltrúi enda ríkir mikill einhugur hjá því góða fólki sem skipar framboðslistann. Saman ætlum við leiða Sjálfstæðis- flokkinn til sigurs og gera góðan bæ enn betri á komandi kjörtímabili.“ Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins: 1. Hildur Sólveig Sigurðardóttir, sjúkraþjálfari 2. Helga Kristín Kolbeins, skólameistari 3. Trausti Hjaltason, framkvæmdastjóri 4. Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri 5. Elliði Vignisson, bæjarstjóri 6. Margrét Rós Ingólfsdóttir, félagsfræðingur 7. Sigursveinn Þórðarson, svæðisstjóri 8. Páll Marvin Jónsson, framkvæmdastjóri 9. Andrea Guðjóns Jónasdóttir, sjúkraliði 10. Gísli Stefánsson, æskulýðsfulltrúi 11. Agnes Stefánsdóttir, framhaldsskólanemi 12. Vignir Arnar Svafarsson, sjómaður 13. Klaudia Beata Wróbel, nemi og túlkur 14. Bragi Ingiberg Ólafsson, eldri borgari Bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey Bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey var stofnað á fundi í Akóges á fimmtudaginn. Markmið með stofnun félagsins er að bæta samfélagið. „Vestmannaeyjar er góður staður til að búa á en við getum alltaf gert betur.“ Formaður félagsins er Leó Snær Sveinsson. Stjórn félagsins var einnig kosin á fimmtudaginn og er hennar fyrsta verkefni er að skipa kjörnefnd sem fer svo í það að undirbúa lista fyrir komandi sveitarstjórnakosning- arnar. Listinn verður kynntur á fundi félagsins þann 22. apríl. Íris vill leiða nýjan framboðslista Íris Róbertsdóttir tilkynnti á facebook síðu sinni á sunnudaginn að hún ætli að verða við þeirri áskorun að gefa kost á sér til að leiða nýjan framboðslista hins nýja bæjarmálafélags - Fyrir Heimaey. En áður höfðu 200 manns skrifað undir áskorendalista og skorað á hana að leiða nýtt framboð. Tilkynningin frá Írisi „Ég hef ákveðið að verða við þeirri áskorun að gefa kost á mér til að leiða nýjan framboðslista hér í Vestmannaeyjum í sveitarstjórnar- kosningunum í næsta mánuði. Ég er stolt og þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt með þessari áskorun. Þessa ákvörðun hef ég tilkynnt forsvarsmönnum hins nýja bæjarmálafélags - Fyrir Heimaey.“ Málefnavinna Eyjalistans farin af stað Á laugardaginn var opin fundur hjá Eyjalistanum þar sem farið var í málefnavinnu. Njáll Ragnarsson sem leiðir listann sendi svo frá sér grein í gær þar sem fram kom að fyrir þau sem tókum sæti á lista Eyjalistans var ákvörðunin um að vera með og gefa kost á okkur í raun ekki erfið. „Við eigum það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á bæjarmálum og viljum stuðla að betra samfélagi í Vest- mannaeyjum. Við höfum mismun- andi bakgrunn og reynslu en viljum öll taka þátt í því að byggja upp betra samfélag þar sem allir hafa sitt að segja. Við leggjum höfuð áherslu á það að skoðanir allra heyrist, við viljum að ákvarðanir séu teknar í sem mestri sátt við bæjarbúa og að faglega sé staðið að stjórnsýslunni þannig að tortryggni á stjórnun bæjarins gæti ekki meðal bæjarbúa. Fyrir þetta stöndum við. Við viljum aukið íbúalýðræði og bætta stjórnsýslu- hætti. Það er nauðsynlegt, nú sem aldrei fyrr,“ sagði Njáll í greininni sinni. Þrjú framboð í sveitastjórnar- kosningunum í Eyjum :: 42 frambjóðendur Sara Sjöfn GrettiSdóttir sarasjofn@eyjafrett ir. is kosningar 2018 Kraftur, Eyjamenn og ÍBV ætla að perla saman laugardaginn 21. apríl milli 11 og 15 í Höllinni Vestmannaeyjum. Við skorum á alla Eyjamenn að mæta á svæðið og perla með okkur þar sem um er að ræða fyrsta perluviðburð félagsins þar sem perluð verða ný armbönd í íslensku fánalitunum. Armböndin verða seld til stuðnings Krafti og munu einnig sýna samstöðu með íslenska fótboltaliðinu á HM. Armböndin eru með áletruninni „Lífið er núna“ og eru auðveld í samsetningu svo að allir geta tekið þátt, börn sem fullorðnir. Eyjamenn verða fyrstir til að geta hreppt Perlubikarinn og geta sett markið hátt fyrir aðra sem vilja reyna við hann. Perlubikarinn hljóta þeir viðburðarhaldarar sem að ná að perla sem flest armbönd. Við hvetjum alla Eyjamenn sem og leikmenn og stuðningsmenn ÍBV að taka þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Öll armbönd- in eru perluð í sjálfboðavinnu og því mikil hugsjón bakvið hvert armband. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur til Krafts - stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabba- mein og aðstand- endur og er hægt að kaupa armböndin líka strax á staðnum. Það verður að sjálfsögðu heitt á könnunni og hlökkum við til að sjá ykkur sem flest KOMIÐ OG PERLIÐ AF KRAFTI. Perlað af Krafti með ÍBV fréttatilkynning Eyjalistinn. Íris Róbertsdóttir. Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.