Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.04.2018, Side 9

Fréttir - Eyjafréttir - 18.04.2018, Side 9
Eyjafréttir - 9Miðvikudagur 18. apríl 2018 Hafa kynnst mörgu góðu fagfólki Þær tala báðar um allt fólkið sem þær hafa kynnt í gegnum strákana sína en fljótlega eftir að þær báðir fæddust var fagfólk búið að koma sér í samband við þau, „það kom margt fagfólk heim á fyrstu mánuðum lífs hans, þroskaþjálfi, sjúkraþjálfi, iðjuþjálfi og svo félagsfræðingur,“ sagði Lára og tók Jóhanna undir það, „Já, maður kynnist mörgu góðu fagfólki og foreldrum í sömu aðstöðu og maður sjálfur.“ Heppnir að vera yngstu börnin Þær voru báðar sammála um hvað systkinin spiluðu stóran þátt í uppvextinum, en vinirnir eru báðir yngstu börn foreldra sinna, „systkinin hjálpuðu mikið og myndu gera allt fyrir bróður sinn. Elsta dóttir mín spurði hvort honum yrði strítt í skólanum, en annars voru þau ekki mikið að velta þessu fyrir sér. Hann er bara bróðir þeirra, einn af þeim. Birgir Reimar er líka heppin með það að eiga bróður sem er ári eldri en hann, Kristján Róbert, og reyndi Birgir Reimar að gera allt eins og hann. Hann græddi helling á því að vera yngsta barnið og lítur Birgir Reimar mikið upp til systkina sinna“ sagði Jóhanna. „Ég hafði það alltaf sem markmið að hann mundi eignast vini bæði úr fatlaða-geiranum og hinum. Ég fór með hann í íþróttaskóla og allt sem var í boði fyrir yngri börn. Hann rosalega heppinn að eiga eldri bróðir sinn Svavar, sem hann hermdi allt eftir. “Ég gerði til dæmis mikið í því að bjóða vinum og bekkjarfélögum hans Svavars heim og hann naut góðs af því, “ sagði Lára. Strokutímabil Strokutímabil er ekki eitthvað sem allir foreldrar þekkja en það er mjög algengt hjá krökkum með Downs heilkenni að fara á slíkt tímabil og er sá tími mæðrunum mjög eftirminnilegur. „Við vorum einu sinni með gesti hjá okkur þegar Guðmundur Ásgeir var lítill og vissum ekki betur en að hann væri inni í herbergi að leika sér, hann er svona um þriggja ára, en svo er bankað. Í dyrunum stendur kona sem sagðist hafa séð hann og tilkynnti okkur að maðurinn hennar væri á leiðinni með hann til baka. Þó svo maður hafi verið með allskonar læsingar, það skipti engu. En svo gladdist maður yfir því að hann hafi í raun komist yfir læsingarnar, en samt ekki, “ sagði Lára og tengdi Jóhanna vel við það. „Birgir Reimar týndist tvisvar, þetta var alveg hræðilegt tímabil, það þurfti allt að vera lokað og læst á öllum stundum og maður var alltaf á tánum að athuga hvar hann væri. Í fyrra skiptið vorum við á tjaldstæði í Þýskalandi og fórum þar inni í búð og hann lét sig hverfa. Í annað skiptið, þá bjuggum við í Dan- mörku og hann strauk og fór niður í bæ á hjóli, á leiðinni niður í bæ fann hann annað hjól og skipti á miðri leið. Þannig að við fundum hjólið hans fyrst, en svo fann lögreglan hann. Þarna hvarf hann í tvær klukkustundir, ég var alveg hrikalega hrædd þá og það voru bókstaflega allir að hjálpa okkur að leita.“ Veist hvað þú hefur en veist ekki hvað þú færð Strákarnir hafa gengið hina hefðbundu skólagöngu sem öll íslensk börn gera, en nú er skóla- gangan á enda. Guðmundur Ásgeir útskrifaðist af starfsbraut í fram- haldsskólanum í fyrra og Birgir Reimar er að útskrifast núna. „Mín upplifun er að núna eru þeir að detta úr vernduðu umhverfi. Fyrst er það leikskólinn og þar er allt fullt af starfsfólki og svo grunnskólinn og það gekk voða vel,“ sagði Lára og tók Jóhanna undir það. Framhalds- skólagangan var svo að þeirra mati undirbúningur fyrir lífið, „þar snýst þetta ekki um hvað þú kannt í hverju fagi fyrir sig, heldur undirbúningur fyrir hvað sem koma skal“ sagði Lára. „Þetta voru alltaf svona skref, að byrja hjá dag- mömmu og það tók helling á og svo þegar það var orðið fínt þá var komið að leikskólanum. Það þarf alltaf miklu meiri undirbúning með þeim og lengri aðdraganda fyrir öll verkefni sem koma skal,“ sagði Jóhanna og tók Lára undir það, „þú veist hvað þú hefur en veist ekki hvað þú færð,“ bætti Lára við. Eins og áður segir er Birgir Reimar núna að klára síðustu önnina sína í framhaldsskólanum og Guðmundur Ásgeir er byrjaður að vinna hjá Heimaey, „þeir eru svo með stuðning eftir hádegi með henni Lilju og hafa þau aðstöðu hjá Heimaey hæfingarstöð, sem er frábært því vinnudagurinn er búin klukkan tólf,“ sagði Lára. Hafa aldrei spurt út í fötlunina Aðspurðar hvort strákarnir hafi spurt út í sína fötlun, var það ekki raunin. „Ég veit ekki hvað það er enn Birgir Reimar hefur hingað til ekki fílað sig á Heimaey, hvort honum finnist hann ekki eiga heima þar eða það fari í taugarnar á honum að þetta sé vettvangur fyrir hann veit ég ekki,“ sagði Jóhanna. „Mér finnst stundum Guðmundur finni til vanmáttar – honum langar að gera eitthvað t.d. vinna á Eyjafréttum, fara á ball og margt fleira en segir svo þegar nær dregur að hann ætli ekki að fara,“ sagði Lára. Vega hvorn annan upp Félagarnir eru mjög ólíkir og töluðu þær báðar um að þeir vega hvorn annan upp og sögðu þær blaða- manni að Guðmundur væri mjög félagslyndur og finnst gaman að spjalla, en Birgir talaði minna og væri mjög flinkur í eldhúsinu og virkilega snyrtilegur. „Vinskapur þeirra er alveg ómetanlegur og þeir heppnir að hafa hvorn annan,“ sagði Jóhanna. Aðspurðar telja þær það mikil forréttindi fyrir vinina að búa í litlu samfélagi eins og Vestmanna- eyjar eru, „þeir eru töluvert meira sjálfbjarga hérna heldur en þeir væru mögulega annarsstaðar,“ sagði Lára og voru þær sammála um að hér væri líka fólk að öllu vilja gert og að þeim væri vel tekið allsstaðar sem þeir kæmu. „Það þarf heilt þorp til að ala upp barn,“ bætti Lára við. Verðugt og innihaldsríkt líf Spjallið leiðir okkur að þeirri staðreynd að núna fæðist um það bil eitt barn á ári með Downs heilkenni og segja mæðurnar það vera sorglega stöðu. „Núna er maður komin vel inni í heim einstaklinga með Downs heilkenni og þetta er bara ekki slæmt eða vont líf sem þau lifa og að mínu mati ekki versta fötlunin, svo langt í frá. Þau fara í gegnum þroskaferlið og byrja gera allt, eins og labba, tala og þetta helsta sem heilbrigður einstaklingur gerir, en eru bara lengur að því. Ég hef líka gert í því að taka hann með mér út um allt, leyft honum að prófa allt og aldrei falið hann á neinn hátt,“ sagði Jóhanna og tók Lára undir þetta og bætti við að eignast fatlað barn væri ekki það versta, „ég hef oft sagt að það er ekki það versta að eiga fatlað barn og maður verður sorgmæddur yfir því að alltaf sé verið að eyða þessum börnum. En ég get skilið að fólk treysti sér ekki í að ala upp fatlað barn og dæmi engan. Í dag eru orðnar svo miklar framfarir í þjálfun hjá þeim og ekki hægt að setja þak á það sem hægt er að kenna þeim, “ sagði Lára. Ekki ákvörðun sem ég mundi vilja taka Aðspurðar út í ákvörðunina sem mæður standa fyrir eftir fóstur- skimun, ef upp kemur hnakkaþykkt sem bendir til þrístæðu 21 sögðust þær ekki vilja hafa verið í þeim sporum að taka slíka ákvörðun. „Ég er stundum spurð hvað ég mundi gera í dag ef ég færi í mælingu og þetta væri niðurstaðan, þetta er bara ekki ákvörðun sem ég mundi vilja taka og þakka fyrir að hafa ekki þurft að velta þessu fyrir mér á sínum tíma,“ sagði Jóhanna og tók Lára undir það. Það var tekið móti blaðamanni með faðmlögum þegar hann mætti á Heimey, vinnu og hæfingarstöð í vikunni til að hitta félagana Birgir Reimar Rafnsson og Guðmund Ásgeir Grétarsson. Planið var að spjalla um lífið og tilveruna. Félagarnir voru inní einu herberginu að spila keilu í tölvunni þegar blaðamann bar að garði. Með þeim var Lilja Ólafsdóttir sem er stuðningur fyrir strákana. Guðmundur Ásgeir var klæddur í ÍBV bol og með ÍBV fána og var ekki lengi að svara spurningunni um hvað honum finnist skemmti- legast að gera, „að fara á alla leikina hjá ÍBV og bikarhelgin var skemmtileg.“ Birgir Reimar var sammála vini sínum og þeir sögðust fara á leikina saman, nema í ágúst síðastliðnum þegar karlalið ÍBV í fótbolta mætti FH, þá sat Birgir Reimar FH megin að styðja sinn mann Þórarinn Inga Valdimarsson. Framundan hjá strákunum var Boccia mót sem þeir fóru á um helgina og voru þeir spenntir fyrir því, enda búnir að æfa Boccia í nokkur ár. Guðmundur eða Gummi eins og hann er kallaður sagðist líka vera æfa sund. Birgir Reimar er hinsvegar að æfa líka á gítar og elskar tónlist. Strákarnir fara með Lilju í ræktina tvisvar í viku og taka vel á því, „svo förum við í sund og þá fer ég, Birgir Reimar og Stefán í handbolta í sundlaug- inni,“ sagði Gummi. Kjötveisla er málið Birgir Reimar hefur mikinn áhuga á því að elda og borða góðan mat, „ég elda þegar ég er einn heima og líka í skólanum.“ Uppáhalds maturinn hans er kjöt, fiskur og pizza. En Birgir Reimari þykir líka mjög gaman að þrífa og ganga frá og er mjög duglegur að því heima. Gumma finnst pizza, hamborg- ari og soðin ýsa vera sinn uppáhalds matur. Það fór svo ekkert á milli mála hvaða pizza er í uppáhaldi hjá vinunum, það er kjötveisla, „mér finnst líka pizza með ruccola og parmask- inku mjög gott,“ bætti Birgir Reimar við og þar var blaða- maður hjartanlega sammála. Heimir Hallgríms og Bikarmeistarar Það kom upp í spjallinu okkar að tannlæknirinn og landsliðs- þjálfarinn Heimir Hallgrímsson hefði kíkt á þau um morgunin og sögðu þeir að hann væri reglulegur gestur hjá þeim á Heimaey. „Svo komu ÍBV strákarnir með bikarinn til okkar í heimsókn, Grétar er samt búin að týna einum bikarnum. Ég reyndar stal honum, nei djók“ sagði Gummi hlæjandi og hristi Birgir Reimar hausinn yfir vini sínum. Frægt fólk og boð á Bessastaði Aðspurðir sögðust þeir vera bestur vinir og væru mikið saman, „við erum líka búnir að hitta mikið af frægu fólki og forsetann,“ sagði Gummi en vinirnir fengu boð á Bessastaði í fyrra. Það voru sannanir fyrir öllu þessu fræga fólki sem þeir höfðu hitt og sýndu þeir blaðamanni fullt af skemmti- legum myndum því til stað- festingar. Vinirnir Birgir Reimar og Guðmundur Ásgeir ” Svo komu ÍBV strákarnir með bikar-inn til okkar í heimsókn, Grétar er samt búin að týna einum bikarnum. Ég reyndar stal honum, nei djók.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.