Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.04.2018, Page 10

Fréttir - Eyjafréttir - 18.04.2018, Page 10
10 - Eyjafréttir Miðvikudagur 18. apríl 2018 Hinn 25 ára gamli Ármann Halldór Jensson, sonur Jens Karls Magnúsar Jóhannessonar og Sigríðar Guðmundsdóttur, flutti til Hafnafjarðar í byrjun ágúst 2017 með það í huga að fá sér meirapróf og í kjölfarið vinnu sem bílstjóri. Það gekk eftir og starfar Ármann nú hjá fyrirtæki sem heitir Vaðvík ehf. við að keyra varning út um allar trissur en í heildina eru um 15 bílstjórar sem starfa hjá fyrirtækinu á ársgrundvelli. Blaðamaður fékk Ármann í heimsókn til sín sl. föstudag og ræddi við hann um lífið á veginum. Dagarnir síbreytilegir Í september í fyrra ákvað Ármann að eigin frumkvæði að taka meiraprófið en það hafði lengi blundað í honum að reyna fyrir sér sem trukkabílstjóri. „Ég starfa fyrir Vaðvík sem er verktaki innan Eimskips. Hefðbundinn vinnudagur er frá átta til fimm en maður er eiginlega alltaf lengur. Stundum eru langir dagar og stundum stuttir, fer allt eftir því hvað er að gera,“ segir Ármann. Nauðsynlegt að sanna sig áður en maður fær eigin bíl Hingað til hefur Ármann verið að rokka á milli bíla en á næstu dögum mun hann fá í hendurnar bíl sem verður alfarið í hans umsjá. „Það er ekki oft sem að menn koma inn í stór fyrirtæki og fá bíl strax. Maður þarf alveg að vinna fyrir því og sanna sig, halda bílunum hreinum og sleikja yfirmennina upp, þá eru allir vegir færir,“ segir Ármann sem er að fá í hendurnar svokallaðan átta hjóla búkka bíl. Fer mikið til Landeyja Eins og fyrr segir hefst dagurinn kl. átta á morgnanna og veit Ármann í raun ekkert hvað hann mun fást við áður en hann mætir til vinnu. „Ég er mikið að fara í Landeyjar, Þorláks- höfn og Selfoss, bara allt tilfallandi. Ég hef ekki enn farið norður en það er búin að vera leiðinleg færð og svo er ég náttúrulega nýliði í þessu þannig ég treysti mér ekki alveg í það eins og er. Annars eru við að fara bara út um allt land.“ „Þetta er alveg vel íbúðarhæft“ Vegalengdirnar eru oft langar og geta menn því þurft að gista áður en þeir leggja af stað til baka. „Það eru nokkrir sem gista bara inni í bílunum en það eru tvær kojur í flestöllum bílunum og einnig ísskápur og sjónvarp. Þetta er alveg vel íbúðarhæft,“ segir Ármann. Græjurnar í botn En hvernig er trukkalífið svona heilt yfir? „Þetta er lífið. Maður fær að njóta útsýnisins á hverjum degi og svo eignast maður svo mikið af vinum í þessu, það vilja allir hjálpast að. Svo er bara geggjað að setjast upp í bíl og keyra með græjurnar í botni,“ segir Ármann. Festi sig í Kömbunum Þrátt fyrir að trukkalífið sé lífið þá er það ekki alltaf tekið út með sældinni og því fékk Ármann að kynnast í vetrarhörkunni í janúar. „Ég festi mig efst í Kömbunum í janúar, ég var alveg að verða kominn upp en festist svo. Þar þurfti ég að bíða í þrjá tíma því ég kunni ekki að keðja bílinn. Það kom síðan strákur úr Hveragerði sem græjaði það fyrir mig og ég hélt svo bara áfram.“ Er ekki heilmikið mál að keðja svona trukk? „Þetta er ekkert mál ef þú kannt það en það var búið að vera keðjunámskeið í vinnunni en ég fylgdist bara ekki nógu vel með,“ segir Ármann og hlær. „Ég fór bara inn í bíl í hlýjuna á meðan, ég hefði ekki getað gert þetta til að bjarga lífi mínu.“ Aðspurður hvort slys séu algeng segist Ármann ekki geta svarað því með vissu. „Ég þekki það ekki alveg en þau gerast alveg. Ég veit t.d. um þrjú dæmi núna í vetur þar sem bílar fóru út af og eru gjörsam- lega ónýtir en sem betur fer sluppu allir bílstjórarnir.“ Varningurinn af ýmsum toga Varningurinn sem Ármann flytur er af ýmsum toga en suma dagana fer hann með bílfarm af matvælum til Landeyjahafnar og kemur þannig í veg fyrir hungursneyð í heima- byggðinni. „Það er allur gangur á því hvað ég er að flytja, járn, matur og fiskur frá Eyjum sem síðan fer norður í vinnslu.“ Vilja helst ekki drulla úti í móa Nú hefur þú ekki enn gist í bílnum, er það eitthvað sem þú horfir með tilhlökkun til? „Já, það er aðal sportið.“ En eru menn bara að leggja sig úti í vegi eða hvað? „Nei, helst ekki úti í vegi. Frekar á einhverju plani og helst nálægt sundlaug eða einhverju þar sem maður getur stokkið á klósettið svo maður þurfi ekki að drulla úti í móa. En það eru alveg menn sem sofa í bílunum þrjá til fjóra daga í viku.“ Þjóðflokkur út af fyrir sig Eins og við mátti búast þá eru trukkabílstjórar sér þjóðflokkur þar sem allir tengjast sérstökum böndum. „Það var svolítið vand- ræðalegt til að byrja með því þá var alltaf verið að heilsa manni og maður vissi ekkert hver var í hinum bílnum en maður bara heilsaði á móti. En það vilja allir hjálpast að í þessu og kannski óhætt að segja að þetta sé þjóðflokkur út af fyrir sig.“ Vantar alltaf góða menn Heilt yfir kveðst Ármann ekki geta haft það betra, samstarfmennirnir frábærir og yfirmennirnir enn þá betri. Mælir þú með því að áhugasamir skelli sér í meiraprófið, er mikil eftirspurn eftir bílstjórum? „Já, ég hugsa það vanti alltaf góða menn og mæli ég hiklaust með því að menn drífi sig í þetta. Tveir af mínum bestu vinum eru t.d. búnir að skrá sig í meirapróf núna í apríl, þetta smitar alveg frá sér. Svo er þetta mjög vel borgað líka en þetta er líka mikil vinna,“ segir Ármann að lokum Ármann Halldór Jensson starfar sem bílstjóri: Trukkalífið er lífið :: Sérstakur þjóðflokkur þar sem allir vilja hjálpast að :: Aðal sportið að gista í bílnum einar KriStinn HeLGaSon einarkrist inn@eyjafrett ir. is Þetta er lífið. Maður fær að njóta útsýnisins á hverj- um degi og svo eignast maður svo mikið af vinum í þessu, það vilja allir hjálpast að. Svo er bara geggj- að að setjast upp í bíl og keyra með græjurnar í botni ” Handfrjáls búnaður og sólgleraugu eru staðalbúnaður trukkabílstjórans. Trukkurinn sem Ármann ekur. Svefnaðstaðan í bílnum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.