Fréttir - Eyjafréttir - 18.04.2018, Síða 15
Eyjafréttir - 15
ÍBV er komið áfram í undanúrslit
Olís-deildar karla eftir nokkuð
sannfærandi sigur á ÍR í 8-liða
úrslitum. Fyrri leiknum, sem fram
fór í Vestmannaeyjum á föstudag-
inn, lyktaði með fjögurra marka
sigri ÍBV, 22:18 og var það sama
uppi á teningnum í síðari leiknum á
sunnudeginum í Austurbergi,
lokatölur 26:30.
Mikil harka einkenndi leikinn á
sunnudaginn líkt og í fyrri viður-
eign liðanna og fóru fjögur rauð
spjöld á loft, þrjú hjá ÍR og eitt hjá
ÍBV. Eyjamenn höfðu yfirhöndina
meira og minna frá tíundu mínútu
en staðan í hálfleik var 12:16 ÍBV í
vil.
Í síðari hálfleik fór munurinn mest
í átta mörk en ÍR-ingar náðu þó að
klóra í bakkann og minnka muninn
í þrjú mörk þegar komið var fram á
lokamínútu leiksins. Það var hins
vegar Kári Kristján Kristjánsson
sem skoraði lokamark leiksins og
tryggði ÍBV fjögurra marka sigur.
Kári Kristján var markahæstur í liði
ÍBV með níu mörk. Aron Rafn
Eðvarðsson varði 11 skot í markinu.
Eiga leik í Áskorendabikar
Evrópu á laugardaginn
ÍBV mætir Potaissa Turda frá
Rúmeníu í undanúrslitum Áskor-
endakeppni Evrópu á laugardaginn í
Eyjum en leikurinn hefst kl. 15:00.
Eyjamenn slógu út Krasnodar í
8-liða úrslit-unum, samanlagt
66:51. Turda sló út norska liðið
Fyllingen en einvíginu lauk
samanlagt 59:56. Lið Turda er afar
sterkt en það fór alla leið í úrslit
keppninnar í fyrra eftir að hafa
slegið Val út í umdeildum leik úti í
Rúmeníu. Mikilvægt er að ná sem
hagstæðustum úrslitum í leiknum
hér heima á laugardaginn en liðin
mætast aftur í Rúmeníu helgina
eftir.
Íþróttir
u M S j Ó n :
Einar KriSTinn HELGaSon
einarkristinn@eyjafrettir.is
Miðvikudagur 13. september 2018
Elliði Snær Viðarsson í færi. En hann var dæmdur í eins leikjar bann eftir gróft brot í leiknum gegn ÍR
og missir því af fyrsta leik ÍBV í undanúrslitum gegn Haukum.
Keppnissveit Ægis.
Kvennalið ÍBV í handbolta laut í
lægra haldi fyrir Fram í fjórða leik
liðanna í undanúrslitum um
Íslandsmeistaratitilinn sem fram fór
sl. miðvikudag, lokatölur 24:27.
Með sigrinum tryggði Fram sér
farseðilinn í úrslitin þar sem liðið
mætir annað hvort Val.
Jafnræði var með liðunum í fyrri
hálfleik en það voru Eyjakonur sem
leiddu með einu marki þegar flautað
var til hálfleiks, staðan 12:11.
Í síðari hálfleik sóttu gestirnir í sig
veðrið og náðu mest fjögurra marka
forskoti á ÍBV. Þegar uppi var
staðið reyndist Fram liðið sterkara
og svo fór að þremur mörkum
munaði á liðunum í lok leiks,
verðskuldaður sigur Fram. ÍBV
tapar því einvíginu 1:3 og er komið
í sumarfrí.
Sandra Erlingsdóttir var marka-
hæst í liði ÍBV með sex mörk.
Karólína Bæhrenz, Ester Óskars-
dóttir og Greta Kavalisuskaite
gerðu fimm mörk hver. Guðný
Jenný Ásmundsdóttir varði 11 skot
í markinu.
Handbolti | Olís-deild karla :: ÍBV 22:18 ÍR :: ÍR 26:30 ÍBV
Komnir í undanúrslit
U-16 ára kvenna landslið Íslands
sigraði UFA mótið í Litháen sem
fram fór á dögunum með markatöl-
una 16-0. Clara Sigurðardóttir
leikmaður ÍBV var fyrirliði Íslands
á mótinu en hún skoraði sitt fjórða
landsliðsmark og var kosinn besti
leikmaðurinn í úrslitaleiknum gegn
Búlgaríu sem þær íslensku unnu
4:0.
Knattspyrna |
Clara valin
best í sigri
U-16
Samkvæmt árlegri spá Íþróttadeild-
ar Vísis og Stöðvar 2 Sports sem
kom út í gær munu Eyjamenn ekki
halda sæti sínu í Pepsi-deildinni að
leiktíð lokinni en mótið hefst 27.
apríl nk. ÍBV hefur verið í botn-
baráttu undanfarin ár og ekki endað
ofar en í níunda sæti síðan árið
2013 þegar liðið endaði í sjötta sæti.
Það verður í það minnsta fróðlegt
að sjá hvernig ríkjandi bikarmeist-
urum í ÍBV mun vegna á leiktíðinni
en miklar breytingar hafa orðið á
liðinu frá því í fyrra og þá sérstak-
lega í varnarlínu liðsins.
Á morgun mæta Eyjamenn Val í
Meistarakeppninni en það er árlegur
leikur milli ríkjandi bikarmeistara
og ríkjandi Íslandsmeistara. Fyrsti
leikur liðsins í Pepsi-deildinni er þó
ekki fyrr en laugardaginn 28. apríl
en þá mætir ÍBV Breiðabliki á
Kópavogsvelli.
Knattspyrna |
Eyja-
mönnum
spáð falli
í sumar
Undanfarin ár hefur ÍBV fengið
undanþágu frá KSÍ til að spila
heimaleiki liðsins á Hásteinsvelli en
völlurinn uppfyllir ekki öryggis-
kröfur þar sem hann er ekki afgirtur.
Í ár verður ekki frekari frestur
veittur og þarf félagið að klára
framkvæmdir fyrir 15. júní ef
félagið vill spila heimaleiki sína á
vellinum, þetta staðfesti Sunna
Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri
knattspyrnudeildar karla, í samtali
við Eyjafréttir.
„Félagið hefur fengið keppnisleyfi
með fyrirvara í nokkur ár en
samkvæmt leyfiskerfi KSÍ þarf
völlurinn að vera afgirtur vegna
öryggisráðstafana. Völlurinn
uppfyllir ekki umrædd skilyrði í
dag og hefur félaginu verið gerð
grein fyrir því að frekari frestur
verður ekki veittur. Hann hefur
verið fullnýttur ef svo má segja.
Samkvæmt framkvæmdaráætlun
Vestmannaeyjabæjar á girðing að
vera komin upp fyrir þann tíma,
framkvæmdir eiga reyndar að vera
hafnar en ég hef fulla trú á að þeir
standi við gefin loforð og klári
þetta. Heimaleiki á að spila í á
heimavelli. Annað er bara vitleysa.“
Aðspurður út í málið sagði Trausti
Hjaltason, formaður Fjölskyldu- og
tómstundaráðs, að verkið væri á
áætlun og það hefði verið samþykkt
að setja fjármagn í það í síðustu
fjárhagsáætlun bæjarins. „Það var
byrjað á mánudaginn á girðingu
sem nær frá knattspyrnuhúsinu
niður á horn og er búið að kaupa
allt efni í þetta þannig þetta verður
leyst fyrir tilsettan tíma. Það þarf að
steypa einn vegg og þá veltur það
svolítið á iðnaðarmönnum hvenær
það verður klárað en vonandi
verður það bara sem fyrst.“
Knattspyrna |
Hásteinsvöllur uppfyllir
ekki öryggiskröfur
RX leikarnir fóru fram í Digranes-
inu um helgina en þeir eru tíunda
árlega CrossFit keppni Þrekmótar-
aðarinnar. Keppt er í einstaklings-
keppni í opnum flokki þar sem
úrslit eru einnig birt fyrir nokkra
aldursflokka, 29 ára og yngri, 30-39
ára, 40-49 ára og 50+. Í para- og
liðakeppni er keppt í opnum flokki
og flokki 39 ára og eldri (allir
liðsmenn 39+).
Mótin eiga það sameiginlegt að
reyna á þrek, styrk, þol og snerpu
keppenda. Öllum er frjálst að keppa
í Þrekmótaröðinni, óháð æfinga-
stöð, íþróttabakgrunni eða reynslu
og er því um að ræða jákvæða
áskorun sem allir geta tekið þátt í.
Liðsmenn CrossFit Eyja gerðu
gott mót en Ingibjörg Jónsdóttir og
Elías Árni Jónsson lentu í fyrsta
sæti í parakeppni 39+ en Gyða
Arnórsdóttir og Magnús Gíslason
lentu í öðru sæti í sama flokki.
Liðið Eyjadætur, skipað þeim
Ingibjörgu, Gyðu, Thelmu Gunnars-
dóttur og Arnfríði Gígju, lentu í
öðru sæti í liðakeppni 39+. Hörður
Orri Grettisson sigraði einstaklings-
keppni í flokki 30-39 ára. Elías Árni
lenti í öðru sæti í flokki 40-49 ára.
Gísli Hjartarson sigraði einstak-
lingskeppni 50+ og lenti Jóhanna
Jóhannsdóttir í öðru sæti í ein-
staklingskeppni kvenna 50+.
Eyjakonan Rakel Hlynsdóttir, sem
keppir fyrir Crossfit Hengil, gerði
sér lítið fyrir og sigraði mótið ásamt
því að lenda í þriðja sæti í opnum
paraflokki með Birni Jóhannessyni,
félaga sínum úr Hengli. Frábær
árangur.
Ægir íþróttafélag fatlaðra tók þátt í
sveitakeppni í boccia um helgina
sem fram fór í Laugardalshöll.
Liðið tefldi fram þremur sveitum,
þar sem hver sveit var skipuð
þremur leikmönnum. Oft hefur
gengið betur en allar sveitirnar
enduðu í fjórða sæti í sínum riðli og
komst því enginn í úrslit. Engu að
síður stóðu sig allir vel utan sem
innan vallar og var mikið fjör á
lokahófi sem haldið var eftir keppni
og komu því allir sáttir heim.
Crossfit |
Eyjamenn sigursælir
á RX leikunum 2018
Sveitakeppni í boccia
fór fram um helgina
Handbolti | Olís-deild kvenna :: ÍBV 24 : 27 Fram
Eyjakonur úr leik