Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 18.04.2018, Side 16

Fréttir - Eyjafréttir - 18.04.2018, Side 16
Opnunartími / mánudaga-föstudaga kl . 7.30-21.00 / um helgar kl . 10-21 góð verslun í alfaraleið Ný tilboð vikulega Heimsendingarþjónusta. sushi frá Osushi kemur til okkar föstudaga kl. 17.30. tökum niður pantanir ! pistillinn vetraráætlun herjólfs *áætlun getur tekið breytingum – nánar á saeferdir.is vestmannaeyjar - þorlákshöfn alla daga 08:00 15:30 þorlákshöfn - vestmannaeyjar alla daga 11:45 19:15 Frídagur á fimmtudegi, sem er fyrsti fimmtudagur eftir 18. april, 19. – 25 . apríl. Sumardagurinn fyrsti var gerður að frídegi árið 1971. Dagurinn markar byrjun á Hörpumánuði. Áður fyrr var árinu skipt í tvennt; sumar og vetur. Við höfum bætt við vori og hausti. Í apríl fögnum við vorkomu. Íslensk þjóðtrú segir að ef sumar og vetur frjósi saman boði það gott sumar, en með því er átt við að hiti fari niður fyrir frostmark aðfararnótt sumardagsins fyrsta. Sums staðar er ekki sama skil- greining á sumri og vetri, eins og þar sem sama sólstaða er allt árið. Eitt vorið var ég á Kýpur og horfði þar á fólk við vinnu dökkklætt og mikið klætt. Mér var sagt að sumardagurinn fyrsti væri í lok maí og þá klæddust þau léttari og ljósari fötum. Fyrir rúmum tveimur árum dvaldi ég í Nakuru í Kenía. Þar er alltaf jafndægur og um 25 stiga hiti, dimmt fyrir kl. sjö á kvöldin og birtir upp úr kl. sex á morgnana. Þar þekkti fólkið ekki hugtökin vetur og sumar. Ef eitthvað er þá er heitasti tíminn í janúar til febrúar. Nakuru er í tvö þúsund metra hæð og þrjátíu km sunnan miðbaugs. Reglulega hefur verið rætt um hér á landi að færa sumardaginn fyrsta. Það væri hagnýtara að hafa hann á mánu- eða föstudegi, fá langa helgi. Í Englandi er bara frídagur – löng helgi – fólk er búið að gleyma hvers vegna það er frídagur. Fáar þjóðir halda upp á sumardaginn fyrsta á viðlíka hátt og Íslendingar. Í seinni tíð hefur Skátahreyfingin haldið uppi hátíð á þessum degi með skátamessum og skrúðgöngum. Það er eitthvað svo sérstakt að hugsa til baka, skrúðganga með lúðrasveit og útiskemmtun. Ég fór í spariföt í tilefni dagsins og einhvern tíma seldi ég merki og bók. Bókin Tuttugasti og þriðji apríl eru ellefu sögur eftir ellefu höfunda, sem gerast allar þennan dag 1904 til 2004. Bókin kom út á hundr- aðasta afmælisdegi Halldórs Laxness, en hann var fæddur 23. apríl 1904. Elsti sonur minn fæddist 23. apríl, fæddist hann rétt eftir miðnætti sumardaginn fyrsta. Fimm ára afmæli hans bar upp á sumardaginn fyrsta og tók hann það til sín, skrúðgöngu, lúðra- blástur og skemmtun á Stakka- gerðistúni, allt var það gert í tilefni afmælis hans. Það væri menningarlegt slys að færa daginn. Gleðilegt sumar! Sumar- dagurinn fyrsti Þóranna M. Sigurbergsdóttir ALLTAF Á BREMSUNNI? Þá er nú mikilvægt að láta kanna hvernig þær standa sig. Mættu með þína Toyotu í bremsutékk í boði Nethamars, viðurkennds þjónustuaðila Toyota á Íslandi, 16.–30. apríl. Engin vandamál – bara lausnir ÍS LE N SK A/ SI A. IS /T O Y 87 39 0 04 /1 8 Ef það þarf að laga eitthvað er að sjálfsögðu sértilboð á bremsuviðgerðum, bremsuklossum, bremsuborðum og bremsudiskum á sama tíma. Kynntu þér málið eða komdu bara við. Pa nt að u t ím a í da g. Þa ð e r e inf alt og flj ót leg t. Nethamar Garðavegi 15 ALLTAF Á BREMSUNNI? Þá er nú mikilvægt að láta kanna hvernig þær standa sig. Mættu með þína Toyotu í bremsutékk í boði Nethamars, viðurkennds þjónustuaðila Toyota á Íslandi, 16.–30. apríl. Engin vandamál – bara lausnir ÍS LE N SK A/ SI A. IS /T O Y 87 39 0 04 /1 8 Ef það þarf að laga eitthvað er að sjálfsögðu sértilboð á bremsuviðgerðum, bremsuklossum, bremsuborðum og bremsudiskum á sama tíma. Kynntu þér málið eða komdu bara við. Pa nt að u t ím a í da g. Þa ð e r e inf alt og flj ót leg t. Nethamar Garðavegi 15

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.