Fréttir - Eyjafréttir - 18.04.2018, Síða 16
Opnunartími / mánudaga-föstudaga kl . 7.30-21.00 / um helgar kl . 10-21
góð verslun í alfaraleið
Ný tilboð vikulega
Heimsendingarþjónusta.
sushi frá Osushi
kemur til okkar föstudaga kl. 17.30.
tökum niður pantanir !
pistillinn
vetraráætlun herjólfs
*áætlun getur tekið breytingum – nánar á saeferdir.is
vestmannaeyjar - þorlákshöfn
alla daga 08:00 15:30
þorlákshöfn - vestmannaeyjar
alla daga 11:45 19:15
Frídagur á fimmtudegi, sem er
fyrsti fimmtudagur eftir 18. april,
19. – 25 . apríl. Sumardagurinn
fyrsti var gerður að frídegi árið
1971. Dagurinn markar byrjun á
Hörpumánuði. Áður fyrr var árinu
skipt í tvennt; sumar og vetur. Við
höfum bætt við vori og hausti. Í
apríl fögnum við vorkomu. Íslensk
þjóðtrú segir að ef sumar og vetur
frjósi saman boði það gott sumar,
en með því er átt við að hiti fari
niður fyrir frostmark aðfararnótt
sumardagsins fyrsta.
Sums staðar er ekki sama skil-
greining á sumri og vetri, eins og
þar sem sama sólstaða er allt árið.
Eitt vorið var ég á Kýpur og horfði
þar á fólk við vinnu dökkklætt og
mikið klætt. Mér var sagt að
sumardagurinn fyrsti væri í lok
maí og þá klæddust þau léttari og
ljósari fötum.
Fyrir rúmum tveimur árum dvaldi
ég í Nakuru í Kenía. Þar er alltaf
jafndægur og um 25 stiga hiti,
dimmt fyrir kl. sjö á kvöldin og
birtir upp úr kl. sex á morgnana.
Þar þekkti fólkið ekki hugtökin
vetur og sumar. Ef eitthvað er þá er
heitasti tíminn í janúar til febrúar.
Nakuru er í tvö þúsund metra hæð
og þrjátíu km sunnan miðbaugs.
Reglulega hefur verið rætt um hér
á landi að færa sumardaginn fyrsta.
Það væri hagnýtara að hafa hann á
mánu- eða föstudegi, fá langa
helgi. Í Englandi er bara frídagur
– löng helgi – fólk er búið að
gleyma hvers vegna það er
frídagur. Fáar þjóðir halda upp á
sumardaginn fyrsta á viðlíka hátt
og Íslendingar. Í seinni tíð hefur
Skátahreyfingin haldið uppi hátíð á
þessum degi með skátamessum og
skrúðgöngum. Það er eitthvað svo
sérstakt að hugsa til baka,
skrúðganga með lúðrasveit og
útiskemmtun. Ég fór í spariföt í
tilefni dagsins og einhvern tíma
seldi ég merki og bók.
Bókin Tuttugasti og þriðji apríl eru
ellefu sögur eftir ellefu höfunda,
sem gerast allar þennan dag 1904
til 2004. Bókin kom út á hundr-
aðasta afmælisdegi Halldórs
Laxness, en hann var fæddur 23.
apríl 1904. Elsti sonur minn
fæddist 23. apríl, fæddist hann rétt
eftir miðnætti sumardaginn fyrsta.
Fimm ára afmæli hans bar upp á
sumardaginn fyrsta og tók hann
það til sín, skrúðgöngu, lúðra-
blástur og skemmtun á Stakka-
gerðistúni, allt var það gert í tilefni
afmælis hans.
Það væri menningarlegt slys að
færa daginn.
Gleðilegt sumar!
Sumar-
dagurinn
fyrsti
Þóranna M.
Sigurbergsdóttir
ALLTAF Á BREMSUNNI?
Þá er nú mikilvægt að láta kanna hvernig þær standa sig.
Mættu með þína Toyotu í bremsutékk í boði Nethamars,
viðurkennds þjónustuaðila Toyota á Íslandi, 16.–30. apríl.
Engin vandamál – bara lausnir
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/T
O
Y
87
39
0
04
/1
8
Ef það þarf að laga eitthvað er að sjálfsögðu sértilboð á bremsuviðgerðum,
bremsuklossum, bremsuborðum og bremsudiskum á sama tíma.
Kynntu þér málið eða komdu bara við.
Pa
nt
að
u t
ím
a í
da
g.
Þa
ð e
r e
inf
alt
og
flj
ót
leg
t.
Nethamar
Garðavegi 15
ALLTAF Á BREMSUNNI?
Þá er nú mikilvægt að láta kanna hvernig þær standa sig.
Mættu með þína Toyotu í bremsutékk í boði Nethamars,
viðurkennds þjónustuaðila Toyota á Íslandi, 16.–30. apríl.
Engin vandamál – bara lausnir
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/T
O
Y
87
39
0
04
/1
8
Ef það þarf að laga eitthvað er að sjálfsögðu sértilboð á bremsuviðgerðum,
bremsuklossum, bremsuborðum og bremsudiskum á sama tíma.
Kynntu þér málið eða komdu bara við.
Pa
nt
að
u t
ím
a í
da
g.
Þa
ð e
r e
inf
alt
og
flj
ót
leg
t.
Nethamar
Garðavegi 15