Skessuhorn - 19.06.1998, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ1998
SBESSiliiQBKi
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI
BORGARBRAUT 57, 310 BORGARNES - SÍMI 437 2262
FAX: 437 2263 - NETFANG: skessuh@aknet.is
Afgreiðsla á Akranesi að Stillholti 18 er opin eftir hádegi virka daga, sími 431 4222
Útgefandi: Skessuhorn ehf. _ ;
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Einarsson, sími 852 4098 V'
Framkvæmdastjóri og blaðamaður: Arinbjörn Kúld, sími 899 6165
Auglýsingar: Magnús Valsson, sími 437 2262
Fjóla Ásgeirsdóttir, sími 431 4222
Hönnun og umbrot: Frétta- og útgáfuþjónustan.
Prentun: ísafoldarprentsmiója hf.
Aðalskrifstofa blaðsins er opin alla virka daga frá kl.10:00 - 12:00 og 13:00-16:00
Skrifstofan að Stillholti 18 á Akranesi er opin kl. 13-17.
Skessuhorn-Pésinn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga og efnis er kl. 15.00 á mánu-
dögum. Litaauglýsingar sem krefjast mikillar hönnunarvinnu þurfa þó aö berast blaðinu i síðasta lagi
á hádegi á mánudögum . Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 5.800 eintökum og dreift ókeypis inn á öll heimili og fyrirtæki á Vesturlandi auk
Kjalarness, Kjósar og Reykhóla.
Vændis-
konur og
banka-
sljórar
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Fyrir skömmu gerði eitt dagblaðanna athyglisverða skoðanakönn-
un. Þar var fólk sem lenti í hinu margumtalaða úrtaki, eða viðkom-
andi úrtaksaðilar eins og það heitir væntanlega á fjölmiðlamáli,
spurðir að því hvort þeir teldu að vændi væri stundað á íslandi. Að
því er mig minnir voru um 90% aðspurðra harðir á því að umrædd
þjónustugrein væri til staðar. Það kom þó ekki fram á hvaða forsend-
um það mat var byggt.
Eins og svo oft áður var ég ekki spurður álits enda hef ég svosem
ekki hugmynd um hvort greiðasala af þessu tagi er stunduð í borg-
um, bæjum eða sveitum þessa lands. Ég hef heldur ekki þurft sér-
staklega á þessari þjónustu að halda og þar að auki er oft á tíðum
nógu erfitt að fá þá þjónustu sem maður veit fyrir víst að stendur
fólki til boða, t.d. þjónustu einstakra iðnaðarmanna, stofnana og
annara þjónustuaðila. A meðan svo er ástatt dytti manni síst í hug að
fara að eltast við þjónustu sem maður hefur ekki hugmynd um hvort
er yfirleitt fáanleg og mun aukinheldur vera ólögleg. Mér er því
nokkumveginn slétt sama hvort einhver fyrirtæki eða einyrkjar
leggja stund á vændi sem atvinnuveg. Reyndar er ég hlynntur allri
nýsköpun í atvinnumálum hvers eðlis sem hún kann að vera. Þó ber
að gæta þess að vændi er ólöglegt og þótt 90% landsmanna telji að
það sé stundað þá er það ekki full sannað. En sé það svo að einhveij-
ir athafnamenn eða konur leggi stund á vændi sem aðalstarf eða
aukabúgrein þá ht ég á það sem stóran kost að þessir aðilar em ekki
að þvælast fyrir mér.
Hvar sem maður drepur niður fæti er maður á augnabliki um-
kringdur sölumönnum með blik í auga. A manns eigin heimili er
maður ekki einu sinni óhultur fyrir áreiti þeirra. Þeir koma úr öllum
áttum til að selja, bækur, blöð og harðfisk. Það má aftur á móti segja
vændiskonum þessa lands til hróss að þær era ekki inni á gafli hjá
manni upp á hvem dag.
Einnig mætti finna umræddri atvinnugrein það til málsbóta að
mér skilst að sú þjónusta sem verið er að selja byggist á mjög náinni
samvinnu kaupanda og seljanda. Það hlýtur því að kalla á umtals-
verða þjónustulund en eins og hér hefur áður verið bent á skortir
mjög á slíkt í mörgum þjónustugreinum. Enn er eitt sem má telja
vændi til tekna en það er að í öllum tilfellum ætti það að vera ljóst
að seljandinn er sannanlega að selja það sem hann sjálfur á, en það
getur verið vafa undirorpið í ýmsum öðram greinum. Þá er það í
engum tilfellum vafamál að viðkomandi vændiskona eða vændis-
karl er að fá greitt eingöngu fyrir þá þjónustu sem hann eða hún læt-
ur í té. Þannig er því afturámóti ekki farið með brottrekna banka-
stjóra sem fá biðlaun í átta mánuði eftir að þeim er vísað á dyr, svo
dæmi sé tekið. Engu að síður era þeir taldir réttu megin við lögin en
portkonur og portkarlar ekki og þurfa því að stunda sína atvinnu í
skjóli myrkurs utan við lög og rétt.
Eins og ég hef áður sagt hef ég ekki minnstu hugmynd um hvort
vændi er stundað á íslandi en ég tel mig þó hafa fulla vissu fyrir því
að gleðikonur eigi ekki rétt á átta mánaða biðlaunum. Einnig tel ég
litlar líkur á því að þær hafi stundað laxveiðar í sínum vinnutíma á
kostnað opinberra stofnanna. Né heldur að þeim hafi boðist góðar
stöður hjá utanríkisráðuneytinu ef þær hafa ekki staðið sig sem
skildi á sínum vettvangi.
Gísli Einarsson
Borgarfjaröar-
brú í þurrkví
Á undanfömum vikum hefur stað-
ið yfir viðgerð á Borgarfjarðar-
brúnni. Þessa dagana er verið að
koma fyrir sérsmíðaðri þurrkví í
kringum einn stöpulinn til að hægt sé
að gera við steypuskemmdir sem or-
sakast af seltu, frosti og ís.
Um 30 milljón króna er veitt til
þessa verks á árinu og á það að duga
til að gera við einn stöplanna en gert
er ráð fyrir að halda verkinu áfram á
næsta ári. Það eru brúarsmiðir frá
Vegagerðinni sem sjá um viðgerðina.
Ekki hefur þurft að loka fyrir umferð
um brúna vegna verksins en umferð
hefur tafist lítillega af þessum sök-
um.
G.E.
Unnib ab viðgerbum á Borgarfjarbarbrú. Mynd: G.E.
Dómur vegna Lang-
eyjarhrossanna
í síðustu viku var felldur dómur
yfir þremur mönnum í svokölluðu
Langeyjarmáli. Málið snerist um
vanrækslu á tæpleg þijátíu hrossum
sem voru á útigangi í Fremri- Lang-
ey í mynni Hvammsfjarðar á árunum
1992 -1997.
Dómurinn taldi sannað að hrossin
sem gengu í Fremri-Langey og á
Amey hafi ekki fengið fullnægjandi
fóður á tímabilinu og beðið sannan-
lega skaða af. í dómsorði segir m.a.:
„Enda verður að telja óviðunandi að
hross gangi úti eins og var í Fremri-
Langey án eftirlits og umönnunar,
eftir atvikum, svo vikum og jafnvel
mánuðum skipti að vetri til, eins og
búskaparháttum er nú háttað í land-
inu."
Mennimir þrír sem vom eigendur
Langeyjarhrossanna vom dæmdir til
að greiða 100.000 kr sekt hver í rík-
issjóð fyrir brot á lögum um dýra-
vemd.
G.E.
Gób afkoma hjá
Fiskibjunni
Samkvæmt rekstramppgjöri fisk-
iðjunnar Skagfirðings fyrir fyrstu
átta mánuði rekstrarársins, þ.e. frá
september 1997 til apríl 1998 er
hagnaður rúm 61 milljón króna.
Rækjuvinnsla fyrirtækisins er í
Gmndarfirði og þar hefur verið mik-
il aukning í vinnslu á síðustu mánuð-
um. Að sögn Áma Halldórssonar
rekstrarstjóra fyrirtækisins í Gmnd-
arfirði hefur vinnslan aukist úr 1800
tonnum á ársgmndvelli í 2600 tonn.
Starfsmannafjöldi er þó svipaður en
verksmiðjan var stækkuð um síðustu
áramót og afköst hennar aukin.
Stærstur hluti fjárfestinga FISK
það sem af er rekstrarárinu er vegna
kaupa á rækjukvóta. Að sögn Áma
var keyptur 400 tonna varanlegur
kvóti til viðbótar á Skapta sem legg-
ur upp í Gmndarfirði. Þá hafa einnig
verið keyptar veiðiheimildir innan
ársins. Ami sagði útlitið vera gott í
rækjunni til haustins en fyrsta sept-
ember tekur skelin við.
G.E.
Ásbjöm forseti í
Snæfellsbæ
Ásbjörn Óttarson oddviti sjálf-
stæðismanna í Snæfellsbæ var kjör-
inn forseti bæjarstjórnar á fyrsta
fundi hennar þann 11. júní sl. Ólína
Björk Kristinsdóttir, D lista var kjör-
in 1. varaforseti og 2. varaforseti
Sveinn Þór Elínbergsson af S lista.
Jón Þór Lúðvíksson af D lista var
kjörinn formaður bæjarráðs en aðrir í
bæjarráði era Ólafur Rögnvaldsson
af D lista og Sveinn Þór Elínbergsson
af S lista. Pétur Jóhannsson af B lista
verður áheymarfulltrúi í bæjarráði
með málfrelsi og tillögurétt. Guðjón
Petersen mun gegna starfi bæjar-
stjóra þar til nýr bæjarstjóri, Kristinn
Jónasson tekur við störfum.
G.E.
Fitja-
kirkja 100
ara
Sunnudaginn 21. júní nk.
verður minnst 100 ára afmælis
Fitjakirkju í Skorradal með há-
tíðarguðþjónustu í kirkjunni.
Fitjakirkja sem er önnur
tveggja bændakirkna í Borgar-
fjarðarprófastsdæmi hefur ver-
ið endumýjuð umtalsvert á síð-
ustu áram og í tilefni afmælis-
ins verður vígð ný altaristafla
sem listakonan Æja hefur gert.
Hátíðarguðsþjónustan hefst
kl. 14.00 og þar mun Sigurður
Sigurðarson vígslubiskup pré-
dika en sr. Geir Waage þjónar
fyrir altari. Að guðsþjónustu
lokinni verður boðið upp á
kirkjukaffi að gömlum og góð-
um sið.
G.E.
Fundur
meb
skipulags-
stjóra
Skipulagsstjóri ríkisins, Stef-
án Thors hélt fund á Hótel
Borgamesi fyrir sveitarstjóm-
armenn og starfsmenn sveitar-
félaga á Vesturlandi mánudag-
inn 8. júní sl. Á fundinum vom
kynnt drög að nýjum reglu-
gerðum (skipulagsreglugerð og
byggingareglugerð). Frekar fá-
mennt var á fundinum enda em
sveitarstjómir að ganga frá
nefndaskipan þessa dagana,
þ.á.m. í skipulags- og bygg-
inganefndir.
Launa-
kröfum
hafnað
Starfsmannafélag Akranes-
kaupstaðar óskaði í kjölfar
samninga við kennara á Akra-
nesi eftir viðræðum um kjör
sinna félagsmanna. í samtali
við Skessuhorn sagði Gísli
Gíslason bæjarstjóri að erind-
inu hefði verið hafnað þar sem
ekki væm efni til að taka upp
slíkar viðræður.
G.E.
Óska-
steinar
Fyrirhuguð er Jónsmessu-
ganga úr Gmndarfirði á fjallið
Klakk á Jónsmessunótt. Haldið
verður af stað frá Bárarfossi kl.
22.30 þriðjudagskvöldið 23.
júní og gengið á Klakk að
Klakkstjörn en samkvæmt
þjóðsögunni eiga að fljóta þar
óskasteinar á Jónsmessunótt.
Þeir sem hreppa steinana eiga
að fá þrjár óskir uppfylltar en
til þess að eiga möguleika á því
þurfa þeir að leggja á sig um
klukkutíma göngu á fjallið. Að
sögn Gunnars Kristjánssonar
starfsmanns FAG í Grundar-
firði gengu um 70 - 80 manns á
Klakkinn á Jónsmessunótt í
fyrra.
G.E.