Skessuhorn - 19.06.1998, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 19. JÚNÍ1998
Ferbaáætlun
Sæmundar
Sæmundur Sigmundsson sérleyf-
ishafi hefur lagt fram tillögur að
ferðaáætlun fyrir langferðabifreiðar
sínar milli Akraness og Reykjavíkur
eftir að Hvalfjarðargöngin opna.
Samkvæmt tillögunum verður áætl-
unin sem hér segir.
Frá Akranesi Frá Reykjavík
07:00 08:30
10:00 11:30
13:00 14:30
17:00 18:30
20:30 21:30
22:30 23:30
Bæjarráð Akraness gerði athuga-
semd við ofangreindar tillögur og að
sögn Gísla Gíslasonar bæjarstjóra er
fyrst og fremst fundið að því að ekki
sé ferð frá Akranesi kl. 8.00 og þá
telur bæjarráð vanta ferð frá Reykja-
vík kl. 17.00.
Gísli sagði í samtali við Skessu-
hom að gott samstarf hefði verið
milli Sæmundar og bæjarráðs við
gerð nýrrar ferðaáætlunar og sagðist
hann vongóður um að endanleg áætl-
un yrði á þann veg að hún nýttist Ak-
umesingum og þeim sem þangað
þyrftu að leggja leið sína sem best
enda væri það beggja hagur.
G.E.
Tvö tilbob í sund-
laugarbyggingu
Þann 9. júní sl. vora opnuð tilboð í
3. áfanga sundlaugarbyggingar í
Stykkishólmi. í verkinu felst að ljúka
við uppsteypu búningsklefa og inni-
sundlaugar ásamt fullnaðarfrágangi
og tengingu við núverandi byggingu.
Einnig skal steypa undirstöður og
botnplötu útisundlaugar og leggja
lagnir í lóð og fylla að lauginni.
Tvö tilboð bárast í verkið: Frá
Skipavík hf. í Stykkishólmi
97.392.282 kr. og Sprett hf. í Grund-
arfirði 94.800.000 kr. Kostnaðaráætl-
un vegna verksins hijóðaði upp á
78.359.300 kr. eða töluvert minna en
tilboðin sem bárust. Tilboðin verða
yfirfarin og tekin afstaða til þeirra á
næstu dögum. G.E.
Frá einum af kynningarfundum Nýsköpunarsjóbsins. Páll Kr. Pálsson fram-
kvæmdastjóri í ræbustóli.
Kynningar Ný-
sköpunarsjóbs
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins
hefur lokið hringferð um landið þar
sem kynnt var starfsemi sjóðsins.
I fréttatilkynningu frá sjóðnum
segir að haldnir hafi verið kynningar-
fundir á 9 stöðum umhverfis landið á
vordögum. Fyrsti fundurinn var í
Borgamesi eins og sagt var frá í
Skessuhomi og var hann vel sóttur.
"Alls mættu á fimmta hundrað
manns á þessar kynningar. Virtust
þær vekja mikinn áhuga meðal
heimamanna og hafa þegar borist
nokkrar umsóknir í kjölfar kynning-
anna. Nýsköpunarsjóður stefnir að
því að fara aðra sambærilega kynn-
ingarhringferð síðar á árinu og halda
þá fundi á 9 stöðum til viðbótar og
nota jafnffamt tækifærið til að heim-
sækja fyrirtæki og einstaklinga sem
búa yfir áhugaverðum hugmyndum
eða verkefnum sem sjóðurinn telur
höfða til sín og einnig þá aðila sem
lagt hafa inn umsóknir sem eru til
umfjöllunar," segir í fféttatilkynning-
unni.
Afmælisár Glaös
Hestamannafélagið Glaður í Dala-
sýslu var stofnað 20. júlí 1928 að
Nesodda í Miðdölum og er því sjö-
tugt á árinu. Félagið er næstelsta
hestamannafélag landsins, aðeins
Fákur er eldri. I tilefni afmælisins
mun félagið halda veglega árshátíð í
haust. En það næsta á döfmni hjá fé-
laginu er hestaþing Glaðs sem verður
haldið á Nesodda 26. - 27. júní næst-
komandi. Keppt verður í A og B
flokkum gæðinga, bama, unglinga
og ungmennaflokkum og einnig í
tölti.
Kappreiðar verða að venju og þar
verður keppt í 150 og 250 m skeiði,
250 og 300 m stökki og 300 m
brokki. Dagskráin hefst kl. 13.00
báða dagana en á laugardeginum
verða úrslit í gæðingakeppni og tölt
og síðan kappreiðar. Tekið verður við
skráningum til fimmtudagsins 25.
júní hjá eftirtöldum: Þórður: 434
1171 - 852 1766 Ásta: 434 1614
Gyða: 434 1443, 434 1284
Stórdansleikur verður í Dalabúð
um kvöldið og hljómsveitin Papar
sér um fjörið.
Uppl. / símum
t
Innilegar þakkir til allra, sem
auðsýndu samúð og vinarhug við andlát og
útför sonar míns, bróður okkar og mágs.
Eiríks Ágústs Brynjúlfssonar
bónda
Brúarlandi Hraunhreppi
Guð blessi ykkur öll.
Halldóra Guðbrandsdóttir
Helga Brynjúlfsdóttir Borge Jónsson
Ölöf Brynjúlfsdóttir
Ragnheiður H. Brynjúlfsdóttir
Halldór Brynjúlfsson
Brynjólfur Brynjúlfsson
Guðbrandur Brynjúlfsson
Guðmundur Þ. Brynjúlfsson
Páll Sigurbergsson
Haukur M. Arinbjarnarson
Ásta Sigurðardóttir
Fanney Einarsdóttir
Snjólaug Guðmundsdóttir
Ásdís Baldvinsdóttir
og fjölskyldur.
Lokafrágangur
gjaldskýla
Nú er verið að ljúka lokafrágangi á
hinum alræmdu tollheimtuskýlum
við norðurenda Hvalfjarðarganga.
Þegar Skessuhomið var á vettvangi
var Garðar Jónsson málarameistari
frá Akranesi að fara síðustu umferð-
ina á skýlin og það leyndi sér ekki að
þar var fagmaður á ferð því málað
var þrátt fyrir að hafáttin hefði náð
sér upp og reyndi að tefja verkið. Að-
spurður kvað hann verkið hafa geng-
ið vel til þessa og nóg væri að gera í
málningarbransanum í dag enda
hefði blíðan að undanfömu kallað á
mikla málningarvinnu hjá Vestlend-
ingum. A.Kúld
Garöar jónsson lífgar upp á gjaldskýlin. Mynd: A.Kúld
Leynishverf-
ib ab verba
tilbúib
Framkvæmdum við Leynis-
hverfið á Akranesi miðar vel og að
sögn Gísla Gíslasonar bæjarstjóra
eru fyrstu tveir botnlangarnir orðn-
ir byggingarhæfir og næstu tveir
verða tilbúnir innan skamms. Síð-
asti botnlangi hverfisins mun síðan
verða klár í ágústlok eða um miðj-
an ágúst.
G.E.
Menningar-
sjóöurinn
lagður nR»ir
Á fundi Bæjarráðs Akraness fyr-
ir skömmu var samþykkt erindi
Menningarmála og safnanefitdar
þar sem lagt var til að Menningar-
sjóður Akraness yrði lagður niður
og eftirstöðvum hans varið til að
sinna verkefnum varðandi lista-
verk í eigu bæjarins og til upp-
byggingar Kirkjuhvols, lista og
menningarsetursins á Akranesi
G.E.
Mikill skóg-
ræktaráhugi
í Grundar-
firbi
Þann 11. júní sl. hélt Jón Geir
Pétursson hjá Skógræktarfélagi Is-
lands námskeið í Grundarfirði á
vegum Skógræktarfélags Eyrar-
sveitar. Að sögn Bjargar Ágústs-
dóttur sveitarstjóra Eyrarsveitar
var námskeiðið vel sótt, enda vax-
andi áhugi fyrir skógrækt í Grund-
arfirði og má m.a. nefna að árlegt
gróðursetningarkvöld Skógræktar-
félags Eyrarsveitar var haldið þann
12. júní sl.
Að sögn Bjargar hefur Erla
Bryndís Kristjánsdóttir landslags-
arkitekt í Grundarfirði unnið að
skipulagi framtíðar skógræktar-
svæðis fyrir Grandfirðinga en það
verður hluti af nýju aðalskipulagi
sem er verið að leggja lokahönd á
vegna þéttbýlisins í Grundarfirði.
G.E.
Ríkharb
oddviti
I „Borgarfirði"1 nýju sveitarfé-
lagi fjögurra hreppa í Borgarfirði
norðan Skarðsheiðar var Ríkharð
Brynjólfsson, kennari á Hvanneyri
kjörinn oddviti með öllum greidd-
um atkvæðum á fyrsta fundi nýrrar
hreppsnefndar. Varaoddviti var
kjörinn Ágústa Þorvaldsdóttir.
Auglýst hefur verið eftir sveitar-
stjóra fyrir nýja sveitarfélagið og
mun hann hafa aðsetur á Klepp-
jámsreykjum eða í Reykholti en
ekki hefur enn verið tekin ákvörð-
un um húsnæði fyrir skrifstofur
sveitarfélagsins. Ríkharð mun
gegna starfi sveitarstjóra þar til
gengið hefur verið frá ráðningu á
manni í starfið en það verður vænt-
anlega síðla sumars.
G.E.