Skessuhorn - 16.07.1998, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ1998
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI
BORGARBRAUT 57, 310 BORGARNES - SÍMI 437 2262
FAX: 437 2263 - NETFANG: skessuh@aknet.is
Afgreiðsla á Akranesi að Stillholti 18 er opin eftir hádegi virka daga, sími 431 4222
Útgefandi: Skessuhorn ehf.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Einarsson, sími 852 4098
Framkvæmdastjóri og blaðamaður: Arinbjðrn Kúld, sími 899 6165
Auglýsingar: Magnús Valsson, Borgarnesi sími 437 2262
Arinbjörn Kúld, Akranesi, sími 431 4222
Prófarkalestur: Ágústa Þorvaldsdóttir og fleiri.
Hönnun og umbrot: Frétta- og útgáfuþjónustan.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf.
Aðalskrifstofa blaðsins er opin alla virka daga frá kl.10:00 - 12:00 og 13:00-16:00
Skrifstofan að Stillholti 18 á Ákranesi er opín kl. 13-17.
Skessuhorn-Pésinn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur auglýsinga og efnis er kl. 15.00 á mánu-
dögum. Litaauglýsingar sem krefjast mikillar hönnunarvinnu þurfa þó að berast biaðinu í síðasta lagi
á hádegi á mánudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega.
Blaðið er gefið út í 5.800 eintökum og dreift ókeypis inn á öll heimili og fyrirtæki á Vesturlandi auk
Kjalarness, Kjósar og Reykhóla.
Akranes í
einangrun?
Ég á í svolitlum vanda. Ég hafði hugsað
mér að fara út á Akranes í dag en kem
mér ekki almennilega til þess. í raun og
veru þarf ég nauðsynlega að skreppa á
Skagann, eða hreint og beint verð að fara
þangað en samt get ég ekki almennilega
fengið það af mér. Ykkur að segja er á-
stæða þessarar togstreitu ummæli sem höfð voru eftir yfirlög-
regluþjóninum í Borgarnesi skömmu áður en undirfjarðarvegur-
inn var opnaður sl. laugardag. Þórður Sigurðsson sagði nefni-
lega að ekki væri ástæða til að auka ferðamannastrauminn á
Akranesi en hinsvegar væri full ástæða fyrir hvern sem hyggðist
ferðast á annað borð að bregða sér í Borgarnes.
Nú fer ég flesta daga í Borgarnes og hef ekkert yfir því að kvarta
en ég þarf vinnu minnar vegna að fara nokkuð oft á Akranes
líka. Þá vandast málið því síst af öllu vil ég breyta gegn vilja lög-
reglunnar enda ná armar laganna mun lengra en mínir þótt ég
sé með handleggjalengstu mönnum. Því hagar þannig til að ég
á ekki lögheimili á Akranesi og því er hætta á að ég verði tekinn
sem ferðamaður ef ég fer þangað. Þó er kannski hugsanlegt að
ég geti fengið undanþágu sem blaðamaður en það væri þó ekki
sanngjarnt gagnvart öllum hinum sem hugsanlega þurfa að
leggjast inn á sjúkrahús, ræða við Skattstjóra eða höndla fiski-
mjöl svo eitthvað sé nefnt.
Því hefur oft verið haldið fram af öðrum Vestlendingum að Akur-
nesingar séu erfiðir í samstarfi og þeirra vegna sé samvinna milli
sveitarfélaga í Vesturlandskjördæmi minni en hún ætti að vera.
Eflaust kann eitthvað að vera til í því. Akranes hefur þá sérstöðu
að vera jaðarsveitarfélag og þar að auki það langstærsta á Vest-
urlandi. Að mínu mati eru Akurnesingar ekki að öllu leyti öfunds-
verðir af því að vera stærstir. Fyrir vikið eru kröfurnar meiri og
þar sem yfirburðir eru fyrir hendi er erfitt að nota þá ekki. Þá er
það alþekkt að líta á risann eða tröllið sem óvin af því að hinum
smærri stendur ógn af stærðinni, jafnvel þótt hann sé sauðmein-
laus og vel meinandi.
Þrátt fyrir að Akurnesingar kunni að vera sér á parti í samfélagi
sveitarfélaga á Vesturlandi þykir mér síst sæma að opinber
starfsmaður skuli í nafni síns embættis hvetja landsmenn alla til
að sniðganga Skipaskaga líkt og hann sé eitthvert pestarbæli
sem skuli vera í sóttkví.
Það er engan veginn við hæfi að yfirmaður löggæslu allt í kring-
um Akranes skuli ætla sér að girða nesið af með gulum borða.
Það kunna einhverjir að hafa haldið af umræðunni um Hvalfjarð-
argöng að þau lægju bara upp á Skaga og aftur til baka þótt við
hin vitum að þau liggja á Vesturland og helst ekki til baka. Þessi
misskilningur er einfaldlega til kominn vegna þess að Akurnes-
ingar vissu að það var von á göngum undir Hvalfjörð og höguðu
sér eftir því. Skagamenn hafa unnið sína heimavinnu þannig að
sómi er af og mér þykir ekkert eðlilegra en að þeir njóti ávaxt-
anna en séu ekki girtir af. Menn geta ef þeir vilja verið í fýlu við
Skagamenn á öðrum sviðum en hvað viðvíkur opnun ganganna
eiga þeir hrós skilið enda mun þeirra vinna einnig koma öðrum í-
búum Vesturlands til góða.
Það er tími til kominn og það fyrir löngu að Vestlendingar líti á
sig sem eina heild líkt og Vestfirðingar, Sunnlendingar og Aust-
firðingar gera svo dæmi sé tekið. Við þurfum að hætta að skipta
okkur upp í Akurnesinga, Borgnesinga, Borgfirðinga, Ólsara,
Hólmara o.s.frv. Við getum náð árangri með góðri samvinnu á
fjölmörgum sviðum en við gerum það síður ef það „kroppar hver
úr klofinu á sér,“ ef mér leyfist að taka þannig til orða.
Göngin stytta vissulega mikið leiðina milli Akraness og höfuð-
borgarsvæðisins og auðvelda allan samgang þar á milli. Það
eina sem skilur þessi stórveldi að er Anton Ottesen og hans
menn í Innri-Akraneshreppi sem vissulega er treystandi til að
vera eins og Davíð á milli tveggja Golíata. Ég vona vona samt
að Akurnesingar stari ekki of stíft í gegnum gatið því ég tel að
þeirra sómi sé meiri að vera stór hluti af Vesturlandi en lítill hluti
af höfuðborgarsvæðinu. Ég lít einnig þannig á að það sé styrkur
af því fyrir önnur sveitarfélög að hafa Akranes „ hárna megin við
gatið“.
Eg vona það að í framtíðinni muni yfirlögregluþjónninn í Borgar-
nesi bjóða ferðamenn velkomna á allt Vesturland og að með
hans leyfi geti ég farið á Akranes hvenær sem mér býður svo við
að horfa, jafnvel þegar ég hef ekkert þangað að gera.
Gísli Einarsson, ferðamaður.
Gísli Einarsson,
ritstjóri.
Dómur í
meíbyrbamáli
Þriðjudaginn 7. júlí sl. var kveðinn
upp dómur í meiðyrðamáli sem Jón
Kjartansson bóndi á Stóra - Kroppi í
Reykholtsdal höfðaði gegn Jóni
Bjömssyni bónda og hreppstjóra í
Deildartungu í sömu sveit. Dóminn
kvað upp Hervör Þorvaldsdóttir
dómstjóri á dómþingi Héraðsdóms
Vesturlands.
Jóni Bjömssyni var stefnt vegna
ummæla sem hann hafði uppi á
hreppsnefndarfundi Reykholtsdals-
hrepps hinn 1. júlí 1997 og færð vom
til bókar í fundargerðarbók hrepps-
nefndar og hljóða svo: „Ég fékk gmn
þegar Jón Kjartansson hóf endur-
byggingu gamla fjóssins í stað þess
að byggja nýtt. Mig gmnaði að Jón
Kjartansson væri ekki eins stöndugur
og hann vildi vera láta og taldi hann
hafa óhreint mjöl í pokahominu. Hafi
maðurinn átt peninga þá færi hann
ekki að gera við svo gamalt fjós. Til-
gangur minn að verða mér út um
veðbókarvottorð fyrir Stóra-Kropp er
svipaður og hjá blaðamönnum þegar
þeir em að fletta ofan af mönnum
sem em í svona fjárglæfrastarfsemi
og fékk ég gmn minn staðfestan við
athugun á veðbókarvottorðinu.“
Niðurstaða dómsins var sú að
framangreind ummæli skulu vera ó-
merk. „Stefndi Jón Bjömsson, greiði
krónur 15.000 í sekt til ríkissjóðs
innan fjögurra vikna frá birtingu
dómsins, en sæti ella varðhaldi í fjóra
daga. Stefndi greiði stefnanda, Jóni
Kjartanssyni, krónur 90.000, ásamt
dráttarvöxtum auk 50.000 króna til
að standa straum af birtingu dóms-
orðs í opinbem blaði. Einnig greiðir
stefndi stefnanda krónur 80.000 í
málskostnað."
í rökstuðningi dómsorðs segir
m.a.: „Ummæli stefnda, sem fram
koma í a. lið stefnu teljast ærumeið-
andi aðdróttanir í garð stefnanda og
til þess fallin að sverta mannorð
hans.“
Eftirfarandi ummæli Jóns Bjöms-
sonar vom einnig tekin til dóms:
„Það skiptir ekki máli fyrir búskap á
Stóra-Kroppi hvort þar kemur vegur
eða ekki. Þessi spilaborg hrynur."
Jón var sýknaður af öllum kröfum
vegna þeirra.
Vinsæll
sundstaður
Það hefur verið mikil aðsókn í
sundlaugina í Borgamesi í sumar og
á einstök veðurblíða sjálfsagt sinn
þátt í því. Útisundlaugin á ársafmæli
um þessar mundir og þrátt fyrir efa-
semdir manna um nýtingu hennar
hefur aðsóknin sannað tilvemrétt
hennar svo um munar. Þessa mynd
tók ljósmyndari Skessuhoms af bað-
gestum í Borgamesi í vikunni.
Knattspyrnukonur úr ÍA bu&u þá sem komu í gegnum göngin velkomna á
Vesturland og afhentu þeim Skessuhorn.
Skessuhorn
vib qöngin
Síðasta tölublað Skessuhoms var
gefið út í 12.000 eintökum og var 40
síður á stærð sem telst þó nokkuð
mikið á mælikvarða héraðsfrétta-
blaða. Meistaraflokkur kvenna í
knattspymu hjá ÍA tók að sér að
dreifa blöðunum í alla bfla sem komu
í gegn um göngin fyrstu tvo dagana
sem þau vom opin.
Óhætt er að segja að blaðinu hafi
verið vel tekið hjá ferðalöngum og
vonumst við til að þessi tilraun okk-
ar til að kynna Vesturland fyrir ferða-
mönnum beri sem mestan árangur.
Lifandi
handverk
á laugar-
dögum
í tilefni af opnun Hvalfjarð-
arganganna verður "lifandi
handverk á laugardögum" f
Gallerí Hönd í Borgarnesi
næstu laugardaga. Það em fé-
lagar í Hnokka, samtökum
handverksfólks, sem sýna hvað
þeir eru að vinna. Laugardag-
inn 18. júlí kl. 14-17 mun Jak-
obína Jónasdóttir ptjóna úr ein-
spinnu og Sverrir Vilbergsson
vinna úr homi. Síðasta laugar-
dag sýndi Þórir Ormsson
hvemig hann sker út í muni
sem hann rennir og Sigríður
Þórisdóttir var með peysu á
pijónunum og leiðbeindi þeim
sem þess óskuðu. í Gallerf
Hönd í Borgamesi er greinilega
eitthvað fyrir alla þá sem leggja
leið sína í Borgames.
Nnæstu laugardaga verður
m.a. sýnd þæfing, spuni, dúka-
pijón, frágangur á hnepptum
lopapeysum og margt fleira.
Nánar verður fjallað um lifandi
handverk í næsta Skessuhomi.
Nýrq
vol
æslu-
vollur
f sumar var tekinn í notkun
nýr gæsluvöllur í Skallagríms-
húsinu við íþróttasvæðið í
Borgamesi. Borgarbyggð hefur
til umráða 30% af húsinu en
deildir Skallagríms 70%. Nýi
gæsluvöllurinn leysir af hólmi
eldri völl við grunnskóla Borg-
amess.
Sjóstang-
v^iöimót í
Olafsvík
Opið sjóstangveiðimót SJÓ-
SNÆ verður haldið frá Ólafs-
vík 16.-18. júlín.k. Mótið verð-
ur sett í Gistiheimilinu Höfða
fimmtudagskvöldið 16. júlí og
róið föstudag og laugardag.
Mökum verður boðið í Hvala-
skoðun og fleira skemmtilegt.
Á föstudagskvöldinu verður
grillveisla í boði SJÓSNÆ og
Fiskmarkaðs Snæfellsness og á
laugardagskvöld verður loka-
hóf í Félagsheimilinu á KUft.
Nýr skóla-
stjóri
Kristján Þór Gíslason hefur
verið ráðinn skólastjóri Gmnn-
skólans í Borgamesi og tekur
hann við af Guðmundi Sigurðs-
syni sem lætur af störíum fyrir
aldurs sakir. Kristján hefur ver-
ið skólastjóri í Laugaskóla í
Sælingsdal frá 1986 og kennari
við sama skóla frá 1981. Að
sögn Óla Jóns Gunnarssonar
bæjarstjóra Borgarbyggðar hef-
ur tekist að manna allar kenn-
arastöður í Gmnnskóla Borgar-
ness fyrir næsta vetur en ekki er
búið að ganga alveg frá ráðn-
ingum að Varmalandsskóla.