Skessuhorn - 16.07.1998, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ1998
Hátíðar-
stemmina
vib og undir
Hvalfiiði
Opnun Hvalfjarðarganga sl. laug-
ardag var fagnað með tvískiptri at-
höfn. Upp úr kl. 14.00 klippti Davíð
Oddsson forsætisráðherra á borða
sem strengdur var fyrir suðurenda
ganganna. Skólalúðrasveit Akraness
lék nokkur lög við munnann og á-
vörp voru flutt. Gísli Gíslason stjóm-
arformaður Spalar hf. stjómaði at-
höfninni og sagði m.a. í sinni ræðu
að Vestlendingar vildu gjaman líta
svo á að göngin lægju á Vesturland
en bætti því við að til góðs vinar
lægju gagnvegir. Hann kvaðst vonast
til að göngin myndu efla samvinnu
milli landshluta og verða þjóðinni
allri til hagsbóta. Hann þakkaði Dav-
íð Oddsyni sérstaklega fyrir sinn þátt
í því að göngin urðu að veruleika.
Páll Siguijónsson framkvæmdastjóri
verktakans, Fossvirkis, vitnaði í
Landnámu og fyrstu sagnir hennar af
mannaferðum um Faxaflóa. Þá sagði
hann að með Hvalfjarðargöngum
væri hafinn nýr þáttur í þróun Faxa-
flóasvæðisins.
Jón Hreggvibsson og
göngin
Að athöfninni við gangamunnann
að sunnanverðu óku boðsgestir í
gegn með Davíð Oddsson í broddi
fylkingar. Við norðurmunnann fluttu
ávörp Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra, Halldór Blöndal,
samgönguráðherra og Anton Ottesen
oddviti Innri Akraneshrepps. Anton
sló á létta strengi er hann bauð gesti
velkomna í Innri-Akraneshrepp.
Hann kvað það traustvekjandi fyrir
Akumesinga og Reykvíkinga að vita
af Innri Akraneshrepp á milli sín.
Hann sagði að líklega hefðu aldrei
jafn margir verið saman komnir á
einum stað í þessu fámenna sveitar-
félagi. Þá sagði Anton að fyrir fáein-
um áratugum hefði heldur engan
órað fyrir því að þjóðvegur myndi
allt í einu koma upp úr jörðinni í
hreppnum. Anton nefndi nokkur
dæmi úr sögunni þar sem Hvalfjarð-
argöng hefðu getað komið að góðum
notum, m.a. þegar frægasti snæris-
þjófur sögunnar, Jón Hreggviðsson
var fluttur til varðhalds á Bessastöð-
um.
Við athöfnina söng Karlakór
Reykjavíkur nokkur lög og Óskar
Pétursson, einn Alftagerðisbræðra,
söng einsöng með kómum.
Hvalfjaröarganga-
hlaup
Um klukkan 16 hófst einstæður
viðburður í íþróttasögunni en þá var
ræst fyrsta íþróttakeppni undir sjó
sem haldin hefur verið hér á landi,
Hvalfjarðargangahlaupið. Um 2000
manns hlupu, gengu, hjóluðu eða
fóm á línuskautum í gegnum göngin
og voru þátttakendur almennt á-
nægðir með að fá þetta einstaka tæki-
færi til að skoða mannvirkið á þenn-
an hátt.
Bo&sgestir foru til veislu um borb i Akraborginni a& dagskra lokinni
Álftager&isbró&irinn
Óskar Pétursson söng á-
fram veginn meö Karla-
kór Reykjavíkur.
Hluti bo&sgest-
anna við Hvalfjarö-
argangamunnann
að sunnanverðu.
Karlakór Reykjavíkur í lengstu tónleikahöll landsins.
Mikill mannfjöldi tók þátt í hátíðahöldunum vi& norðurenda ganganna enda spillti ve&riö ekki fyrir.
Smári Vífilsson knattspyrnudómari
kemur í mark.
Páll Sigurjónsson forstjóri Fossvirk-
is.
Forsætisráðherra sag&i í ræðu
sinni að seint hef&i menn óraö fyr-
ir því að farið yrði undir kelduna í
stað þess að taka krókinn.
Á hjólastól undir Hvalfjörð.
Ceir |ón Sveinsson stýrði löggæsl-
unni að sunnanverðu.
En Þórður Sigurðsson yfirlögreglu-
þjónn í Borgarnesi hafði stjórn á
hlutunum á hinum endanum.
Ýmis önnur farartæki voru líka
notuð.
í fyrsta og eina skiptið. Þátttakendur í Hvalfjarðargangahlaupinu koma
móðir og másandi á Vesturland.
Hlátrasköllin hafa vafalaust heyrst alla leið í gegnum
göngin þegar Anton Ottesen bóndi á Ytra Hólmi og
oddviti Innri-Akraneshrepp sló á létta strengi í ávarpi
sínu við norðurenda ganganna.
Gísli Gíslason formaður Spalar hf. stýrði hátíðahöldun-
um sem voru með miklum glæsibrag.