Skessuhorn - 17.09.1998, Side 9
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998
9
Gott „túristasumar '
Nú er aðal vertíðinni nánast lokið
hjá flestum ferðaþjónustuaðilum á
Vesturlandi. Það er að heyra á fólki í
greininni að viðskiptin hafi verið
með betra móti í sumar, veðrið var ó-
venju hagstætt og það er mál manna
að tilkoma Hvalfjarðarganga hafi
haft sitt að segja.
Enn má sjá einstaka „túrista“ á
ferli þrátt fyrir að sumarið sé á för-
um, eins og þessa tvo sem spókuðu
sig í norðanáttinni í Olafsvík í síð-
ustu viku.
G.E.
Fram-
kvæmdir
hafnar viö í-
þróttahúsiö
Byijað er að grafa fyrir grunni
nýja íþróttahússins í Ólafsvík. Þegar
ljósmyndari Skessuhoms var á ferð-
inni í Ólafsvík í síðustu viku vom
starfsmenn Snæfellsbæjar að rífa
girðingu við lóð gmnnskólans en
hún varð að víkja fyrir húsinu góða.
Mynd: G.E.
Ert þú umhverfisvæn(n)?
Vissir þú að glanspappír er a.m.k. 1-2 ár að
eyðast úti í náttúrunni en venjulegur dagblaða-
pappír ekki nema 9 vikur?
„Og svo þegar kartaflan er sprottin..." Þóra og Helgi í Hraunsmúla vib upp-
töku í Hraunsmúla. Mynd: G.E.
Kartöfluuppskeran
meö betra móti
„Þetta er bölvað puð,“ sögðu hús-
bændur og hjú á Hraunsmúla í Stað-
arsveit þegar blaðamaður Skessu-
homs leit við í kartöflugarðinum þar
á bæ í síðustu viku. Þau Þóra Krist-
jánsdóttir og Helgi Sigurmonsson
vom ásamt vinnufólki að grafa upp
jarðeplin í hávaðaroki en létu það
ekki á sig fá þótt varla væri stætt í í
garðinum.
Þau Þóra og Helgi hafa stundað
kartöflurækt í Hraunsmúla síðustu 25
ár og selja m.a. í Borgames. „Þetta
em nokkrir hektarar,“ sagði Þóra
þega hún var spurð um umfangið.
„Uppskeran er nokkuð góð í ár, eða
fimmtán föld. Það mesta sem ég man
eftir er þó 1991 en þá var hún átján-
föld,“ sagði Þóra.
Veg a m ót
opin í vetur
Þetta hefur verið mjög gott í sumar,“
sagði Erla Guðjónsdóttir einn eig-
enda verslunarinnar Vegamóta á
Snæfellsnesi. Verslunin Vegamót
hefur síðustu árin aðeins verið opin
á sumrin en í vor tóku nýir aðilar við
rekstrinum og ætla þau að hafa opið
allt árið um kring. Opnunartíminn í
vetur verður frá kl. 11.00 til 21.00
og sagði Erla að það yrði bara að
koma í ljós hvemig gengi. Hún sagði
að fólk í sveitunum í kring kynni vel
að meta þessa auknu þjónustu.
G.E.
Glitnir - verslun
Borgarnesi
Heimilis- og raftæki
í miklu úrvali
Allar tegundir af Osram perum
Opið mánudaga til fimmtu-
---tfaga frá kl. 10 til 18
föstudaga frá kl. 10 til 19 og
laugardaga frá kl. 10 til 14
LITNIR
VERSLUN
Brákarbraut 7 - Sími 437 1372
Byggt í Leynishverfi
Nokkur hús em í byggingu í hinu nýja Leynishverfi í útjaðri Akraneskaup-
staðar. Blaðamaður Skessuhoms hitti einn húsbyggjandann, Gunnar Ragnars-
son í síðustu viku. Gunnar er smiður og því lá nokkuð beint við að hann réði
sjálfan sig til verksins.
Á myndinni em Gunnar Ragnarsson (t.h.) og Einar Halldórsson að vinna
við grind hússins sem ætlunin er að gera íbúðarhæft fyrir jól.
Mynd: G.E.
HamftBmkank ; Mikið ún/aí\ , em komnk |P£3nrvðl pottablóm | ÍOpið virka daga 13 -19^\ Akranes i ÚrVall | l Laugardaga 13-15 ) * I ' s Guðbjörn Oddur Bjarnason, skrúðgarðyrkjumeistari. v^(Ath. Lokað vegna sumarleyfa 30. sept. - 8. okt.) Símar: 431 3392 og 893 8200. J
iiSi VmmjK , * j # NAVisiotf Financials Wl&' Aldamótin 2000 nálgast nú óðfluga. Er þitt fyrirtæki í stakk búið fyrir nýja öid? Navision Financiais er Windows viðskipta- hugbúnaður sem að sjálfsögðu er reiðubúínn til að takast á við framtíðina með þér.
DcsigneJ for m? * aM — wmauræ Vesturgötu 48 - 300 Akranesi -431-4311