Skessuhorn


Skessuhorn - 17.09.1998, Síða 11

Skessuhorn - 17.09.1998, Síða 11
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998 11 SgBSSglHQBKI Viljayfirlýsingin undirritub. F.v. Jónas Guömundsson, Guðjón Ingvi Stefánsson, Þórir Ólafsson og Magnús B Jóns- son. Símenntunarmib- stöb á Vesturlandi Viljayfirlýsing um stofnun sjálfseignarstofnunar undirrituð í síðustu viku Páll Pálsson (t.v.) og Erling Vignisson. Myndin er tekin þegar þeir voru í Ó- lafsvík ab kynna starfsemi sína nú fyrir skömmu. Ungir menn í upplýsingatækni Tveir ungir Skagamenn, þeir Erling Vignisson 19 ára og Páll Pálsson 18 ára hafa stofnað fyrirtæki á Akranesi sem sérhæfir sig í upplýsingatækni og tölvu- vinnslu. Fyrirtækið heitir íslensk Upplýsingatækni. í kynningarbæklingi frá þeim félögum kemur fram að þeir taka að sér hönnun og gerð vefsíðna, gerð nafnspjalda, auglýsingagerð ofl. sem viðkemur tölvuvinnslu. í síðustu viku var undirrituð vilja- yfirlýsing um stofnun sjálfseignar- stofnunar um Símenntunarmiðstöð á Vesturlandi. Undirritunin fór fram í Hymunni í Borgamesi og við það tækifæri var viðskiptahugmyndin kynnt fyrir blaðamönnum. Að símenntunarmiðstöðinni standa Bændaskólinn á Hvanneyri, Fjölbrautarskóli Vesturlands, Sam- vinnuháskólinn á Bifröst og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Upphafið að stofnun Símenntunarmiðstöðvar- innar má rekja til ráðstefnu um sí- menntun sem haldin var á Bifröst í júní 1996. Þar kom fram eindreginn vilji aðila í atvinnulífinu, sveitarfé- lögunum og menntakerfmu til að standa að stofnun miðstöðvar sí- menntunar á Vesturlandi. I framhaldi af því var verkefnið símenntunardag- ar á Vesturlandi sett á stofn og var boðið upp á ýmiskonar námsskeið víðs vegar um kjördæmið. Markmið- ið var að kanna þörfina fyrir nám- skeið á ýmsum sviðum. Niðurstaðan varð sú að vinna að stofnun áður- nefndrar miðstöðvar. Undirbúnings- hópinn skipuðu þau Hrefna B. Jóns- dóttir atvinnuráðgjafi, Þórir Ólafsson skólameistari FVA, Haukur Gunn- arsson endurmenntunarstjóri Bænda- skólans á Hvanneyri og Runólfur A- gústsson aðstoðarrektor Samvinnu- háskólans á Bifröst. Allt á einum staö í skýrslu hópsins segir m.a. að fjarkennsla, símenntun og endur- menntun séu ein mikilvægustu mál byggðaþróunar á Islandi í dag og allt bendi til að umfangið muni aukast á næstu árum. Þar segir og að það muni verða kostur fyrir fyrirtæki og einstaklinga að geta leitað eftir upp- lýsingum og framboði símenntunar á einum stað. Á blaðamannafundinum í Hym- unni kom fram að stofnendumir hafi allir mikla reynslu á sviði endur- menntunar. Bændaskólinn á Hvann- eyri hefur um árabil boðið upp á námskeið fyrir bændur og fólk í störfum tengdum landbúnaði. Fjölbrautarskóli Vesturlands hefur sinnt símenntun fyrir iðnaðarmenn og fjölbreyttu námskeiðahaldi fyrir almenning. Samvinnuháskólinn hef- ur staðið fyrir símenntun fyrir fyrir- tæki og stofnanir á sviði reksturs og stjómunar og einnig fyrir almenning. Samtals fengu þessir skólar hátt í tvö þúsund nemendur á sín námskeið á sl. ári. Ætlunin er að fá fleiri aðila til samstarfs og verður m.a. leitað til stærri fyrirtækja á Vesturlandi, sam- taka launafólks og opinberra aðila. Hærra menntunarstig Runólfur Ágússtsson kynnti við- skiptahugmyndina að baki símennt- unarmiðstöðvarinnar. Sagði hann m.a. að mikil hagkvæmni væri í því að hafa breytt úrval endurmenntunar og símenntunar á einum stað og það myndi einnig gera gæðaeftirlit virkara. Hann sagði markmiðin vera að mæta þörfum einstaklinga og fyr- irtækja fyrir aukna fræðslu og hækka menntunarstigið. Einnig að skapa störf fyrir leiðbeinendur og laða fólk með fagmenntun til Vesturlands. Að sögn Guðjóns Ingva Stefáns- sonar framkvæmdastjóra Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi hafa sam- tökin í sextán ár sinnt iðnráðgjöf og BORGARBYGGÐ Borgarbyggð -Atvinna- Við grunnskólann á Varmalandi vantar starfskraft sem fyrst til að sinna fötluðum nemanda. Um er að ræða 75% starfshlutfall. Upplýsingar gefur Karl Eiríksson í síma 437 1224, kl. 10- 16, I mánudaga til föstudaga. Félagsmálastjóri atvinnuráðgjöf. „Þar hefur endur- menntun og fræðslustörf verið geysi- lega stór þáttur. Það eru því hags- munir Atvinnuráðgjafarinnar og SSV að efla þennan þátt,“ sagði Guðjón. Ætlunin er að símenntunarmið- stöðin taki til starfa um næstu ára- mót. Skólamir þrír munu þá smám saman flytja sitt námsskeiðahald yfrr til hennar. Magnús B. Jónsson skóla- stjóri Bændaskólans á Hvanneyri sagði markaðssvæði miðstöðvarinn- ar vera allt landið enda myndi Bændaskólinn ekki breyta sínum markmiðum, þ.e. að þjóna öllu land- inu, „Við erum með þáttöku í þessu saijhstarfi að víkka út það fræðasvið sem við getum boðið okkar neytend- urþ um allt land,“ sagði Magnús. I Fjögur þúsund nem- endur Fulltrúar stofnaðilanna fjögurra undirrituðu viljayfirlýsingu um stofnun sjálfseignarstofnunar um sí- menntunarmiðstöð á Vesturlandi, /þeir Magnús B. Jónsson skólastjóri Bændaskólans á Hvanneyri, Þórir O- lafsson skólameistari FVA, Jónas Guðmundsson rektor Samvinnuhá- skólans á Bifröst og Guðjón Ingvi Stefánsson framkvæmdastjóri SSV. I máli þeirra kom fram að símenntun- armiðstöðin yrði ein af stærstu end- unarmenntunarstofnunum landsins og töldu þeir ekki óraunhæft að nem- endafjöldi myndi tvöfaldast frá því sem verið hefur á námskeiðum skól- anna, þ.e. aukast úr um 2000 í um 4000. G.E. FRAMTÍÐARBÖRN Síöasta innrltunarhelgin Byrjum á fullu á mánudaginn Sími 431 3350 Borghildur Jósúadóttir * ^é\og AkrQ Haustmót Skotfélags Akraness í % -7 ^ leirdúfuskotfimi m </» Laugardaginn 19. sept. n.k. kl. 11.00 Skotnir verða 4 hringir og fimm efstu í flTléil Skráning á staðnum kl. 10-10.45 Þátttökugjald kr. 2000 (skot ekki innifalin) Breyttur opnunartími æfingasvæóis: Opið laugard. og sunnud. kl. 11-15 15. okt. verður svæðinu lokað fram til vors l! Skemmtir á EFRI BARISIUM LANGASANDI föstudaginn 18. september kl. 22.00 Það er aðeins einn tvíhöfði „alias“ Jón Gnarr og Sigurjón. Missið ekki af þessu einstæða tækifæri!!! Þar á eftir leikur hljómsveitin ÚLRIK Aðgangseyrir kr. 1000,- Lítill úr krana kr. 300.- Stór úr krana kr. 400,- Nýr matseðill í veitingasalnum Hljómsveitin O.FL. leikur laugardagskvöld Aðgangseyrir kr. 500,- Langasandspizzur hafa heldur betur vakið eftirtekt. Pöntunarsími: 431 3191

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.