Skessuhorn - 03.12.1998, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1998
3SKSSiiHaiBH
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI
BORGARBRAUT 57, 310 BORGARNES - SÍMI 437 2262
FAX: 437 2263 - NETFANG: skessuh@aknet.is
Afgreiðsla á Akranesi er á Suðurgötu 62, sími 431 4222 fax 431 2261
Útgefandi: Skessuhorn ehf.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gísli Einarsson, sími 852 4098
Framkvæmdastjóri og blaðamaður:
Arinbjörn Kúld, sími 899 6165
Auglýsingar:
Guðrún Björk Friðriksdóttir, Borgamesi sími 437 2262
Arinbjörn Kúid, Akranesi, sími 431 4222
Prófarkalestur: Ágústa Þorvaidsdóttir og fleiri.
Hönnun og umbrot: Frétta- og útgáfuþjónustan.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf.
Aðalskrifstofa blaðsins er opin alla virka daga frá kl. 9:00 -16:30
Skrifstofan að Suðurgötu 62 á Akranesi er opin mán.&þri: kl. 09-18.
mið: 9-12, fi.& fö: 13-15.
Skessuhorn-Pésinn kemur út alla fimmtudaga. Skilafrestur
auglýsinga og efnis er kl. 15.00 á mánudögum. Litaauglýsingar
sem krefjast mikillar hönnunarvinnu þurfa þó að berast blaðinu í
síðasta lagi á hádegi á mánudögum. Auglýsendum er bent á að
panta auglýsingapláss tímanlega.
Biaðið er gefið út í 6.000 eintökum og dreift ókeypis inn á öli
heimili og fyrirtæki á Vesturlandi auk Kjalarness, Kjósar og
Reykhóla.
§rín,
mikib
gaman
Þessi fleygu orð notaði spéfuglinn Laddi eitt sinn óspart í túfkun
sinni á persónu af asískum uppruna. Ef ég man rétt hefur þessi gulleyti
gleðigjafi aðallega starfað við að auglýsa flugelda í kringum áramót.
Hann kemur samt sem áður ekki nálægt þeim flugeldasýningum og því
mikia gríni sem einkenna íslensk stjómmál í dag. I hans stað er kom-
inn annar spéfugl, Sverrir Hermannsson laxveiðibóndi og fyrrum
bankastjóri í hlutastarfi. Og grínið virkar. Mönnum er skemmt.
Hvem skyldi hafa órað fyrir því að þessi margsjóaða Austfjarða-
þokuhetja og stórlaxaveiðimaður gæti brennt sig svo illa á flugeldun-
um. Hveijum hefur svosem tekist að klúðra jafn miklu á jafn stuttum
tíma í íslenskum stjómmálum og Sverri blessuðum?
Ekki var laust við að farið hefði um ýmsa á liðnu hausti þegar Sverr-
ir kynnti þá fyrirætlun sína að stofna nýtt stjómmálaafl og mældist ó-
stofnaður flokkur hans jafnharðan með merkilega mikið fylgi. Húskar-
lar gömlu flokkanna byrjuðu að skjálfa á beinunum útaf yfirvofandi
harðindum, væntanlegum fylgismissi og háðung. Sjálfstæðismenn
töldu sig geta misst nokkur þingsæti af þeirri ástæðu að Sverrir var
mjög nýlega Sjálfstæðismaður. Framsóknarmenn töldu að laxveiði-
bóndinn mikli myndi höggva stór skörð í ömggt landsbyggðarfylgið.
Vinstri flokkamir töldu Sverri stela málstað sínum frammi fyrir augun-
um á þeim. Kvennalistinn einn hélt sínum hlut þar sem ekki var af
neinu að taka.
Allir vora því að tapa fjölda þingsæta fyrirfram og Sverri óx ásmeg-
in dag frá degi. Hann fékk til liðs við sig fólk sem á einni hélunóttu náði
að tortíma glæstum draumum veiðimannsins. Aldrei á þessari öld hef-
ur „langar-að-verða pólitfkusum" tekist jafn hrapalega upp og fylgis-
mönnum væntanlegs Lýðræðisflokks, sem fékk ekki einu sinni að nota
nafnið sitt.
Aldrei á þessari öld hafa fylgismenn núverandi kvótakerfis í fisk-
veiðum grætt jafn mikið og þegar Bárður nokkur Halldórsson ákvað að
kljúfa flokkinn áður en hann var stofnaður. Aldrei hafa A flokkamir og
Kvennalistinn heldur grætt eins mikið á því að fréttamenn höfðu öðr-
um hnöppum að hneppa, en þeirra eigin.
Ymsir hafa spurt þeirrar spumingar í kjölfar þessara hrakfara, hvort
samsúða ólíkra stjómmálaafla geti nokkum tímann gengið upp án stór-
slysa?
Fólk með ólíkan bakgmnn og lífsskoðanir þarf vafalaust að gefa
núkið eftir til að slíkt sé hægt. Sameiningartilraunir vinstri aflanna hafa
e.t.v. þess vegna ekki gengið eins og fylgismenn þeirra vonuðu og
helsta niðurstaðan er sú að stjómarflokkamir hafa innbyrðis orðið enn
meira sammála því að vera sammála á hverju sem gengur. Þannig
ganga prófkjör þessara flokka ákaflega smurt fyrir sig þessa dagana og
einhugúr og bræðralag ríkir sem aldrei fyrr. Þingmenn Framsóknar á
Suðumesjum og Vestfjörðum hamast við að gefa sæti sín eftir og helst
er að skilja á Sjálfstæðismönnum að þeir geti vel sætt sig við kartöflu-
bóndann á Stórhöfða, Áma Johnsen í ráðherrasæti. Þannig cru allir að
verða vinir í stjómarflokkunum meðan núverandi og væntanlegir
stjómarandstæðuflokkar grafa að því er virðist gröf hvers ánnars.
Eftir stendur þó það sem skiptir öllu máli: Mikið grín, mikið grín.
Gísli Einarsson, stjómmálafrœðingur.
rw m m m ar-mm mmrm-mm tmm m.
Arinbjörn
Kúld
Cu&rún
Björk
Sigurgeir Erlendsson bakari vib einn af ofnunum í Geirabakaríi.
Geirabakarí
stækkar
-kaupir Brauðgerð KB
Geirabakarí í Borgamesi hefur fest
kaup á Brauðgerð KB í Borgamesi
og er þar með orðið stærsta brauð-
gerð á Vesturlandi samkvæmt upp-
lýsingum Skessuhoms. Geirabakarí
kaupir hús, vélar og tæki Brauðgerð-
ar KB og tók við rekstrinum 1. des-
ember. Að sögn Sigurgeirs Erlends-
sonar, eiganda Geirabakarís ætlar
hann að reka fyrirtækið á báðum
stöðunum út þetta ár, þ.e. að Borgar-
braut 57 og við Egilsgötu. „Eftir það
verður tekin ákvörðun um framtíðar-
fyrirkomulag“, sagði Sigurgeir.
Samhliða kaupunum var gerður
viðskiptasamningur milli KB og
Geirabakarís um bakstur fyrir versl-
anir KB. Að sögn Sigurgeirs verður
öll framleiðslan undir vömmerkjum
Geirabakarís. „Ég mun nota desem-
ber til að búa til einhvem góðan
pakka en síðan ræðst vöruúrvalið
náttúmlega af því sem markaðurinn
vill“, sagði Sigurgeir.
Aðspurður um aðdragandann að
kaupunum sagði Sigurgeir. „Ég
ræddi einfaldlega við kaupfélags-
stjórann og athugaði hvort þessi
möguleiki væri inni í myndinni og
það fór svo að lokum að samkomu-
lag tókst“, sagði Sigurgerir og bætti
því við að hann væri mjög sáttur við
vinnubrögð Kaupfélagsins í þessu
máli.
írskir dagar
á Akranesi
Fyrirhugað er að halda írska
daga á Akranesi næsta vor að sögn
Bjöms S. Lárassonar, markaðs- og
kynningarfulltrúa Akraneskaup-
staðar. Bjöm er nýkominn af fundi
með ferðamálaráði íra þar sem rætt
var um fyrirhugaða dagskrá. Að
sögn Bjöms verður um að ræða
mikla hátið þar sem lögð verður á-
hersla á írska menningu og írskar
vömr.
írskir dagar á Akranesi heflast á
degi heilags Patreks þann 17. mars
en þeir verða haldnir í samvinnu
Akraneskaupstaðar, Ferðamála-
ráðs frlands og Samvinnuferða
Landsýn.
Æbri máttarvöld
gripu í taumana
Segir farþegi í rútu sem fór útaf veginum í Borgarfirði um helgina
Það mátti litlu muna að stórslys
yrði s.l. föstudagskvöld þegar rúta frá
Teiti Jónassyni, með um 50 manns,
fór út af veginum við bæinn Síðu-
múlaveggi neðst í Hvítársíðu. Ein-
ungis tvo farþega þurfti að flytja á
sjúkrahús eftir slysið. Það vom tvær
ungar stúlkur sem hlutu bakmeiðsl,
en þó ekki alvarleg. Það var laust fyr-
ir klukkan 23 sem lögreglu og björg-
unarsveitinni OK barst tilkynning um
að stórslys hafi orðið þar sem rúta
hafi farið út af vegi.
Þegar slíkar tilkynningar berast em
menn jafnan fljótir að bregðast við og
hraðatakmarkanir í umferð em að
engu hafðar til að komast sem fyrst á
vettvang. Það var því mikill léttir
þegar björgunarmenn komu á slys-
stað og sáu að rútan hafði ekki oltið,
heldur stungist niður í rnýri utan veg-
ar * . ' !
Rútan hafði, að sögii bflsljóra. lcnt
í snarpri vindhviðu með þeim afleið-
ingum að hún fór útaf veginum. Með
ólíkindum þótti að hún skyldi ekki
hafa oltið því þarna var allhár kantur
á veginum.
Farþegamir vom ungt fólk frá trú-
félaginu Krossinum í Reykjavík á
leið í Reykholt þar sem þau héldu
mót um s.l. helgi. Farþegum og far-
angri var bjargað í rútu frá Sæmundi
Sigmundssyni og var þeim ekið í á-
fangastað í Hótel Reykholt. í viðtali
við Skessuhom sagði Eiður Einars-
son aldursforseti hópsins að þama
hafi æðri máttarvöld gripið í taumana
og forðað stórslysi. „Það er með ólík-
indum hversu vel þetta fór, miðað við
aðdraganda slyssins. Ég var farþegi í
framsæti rútunnar og varð því ekki
um sel þegar snörp vindhviða rífur í
bffinirmeð'þtíín afleiðfn'gTim að'þsg-
ar bílstjórinn beygir á
móti vindinum, lendir
bíllinn utan malbiksins
og fer strax að hallast
ískyggilega mikið.
Hraðinn var mikill á
bílnum þegar þetta
gerðist og það var
guðsmildi að aðstæður
vom afar heppilegar til
útafaksturs", sagði
Eiður og bætir við;
„Ég var búinn að finna
það áður að rútan var
ekki í lagi, því hreyf-
ingar hennar vom ó-
eðlilegar. Það var eins Frá slysstab vi& bæinn Sí&umúlaveggi í Hvítársíðu.
og hún væri of svög í
hreyfingum og það var greinilega
eitthvað í ólagi, engu líkara en að
jafnvægisstöng bflsins virkaði ekki.
• Þetta er greinilega gömul rúta og hún
var'hreinlega ekki í lagi“, sagði Éið- -
ur Éinarsson að lokum, eilítið
„sjokkeraðúr“ én feginn því að vera
komihn í hús heill á húfi.
Lqgregla flutti ökumann bflsins í
nánari yfirheyrslu í Borgames eftir ó-
happið. Bílnum var bjargað til
byggða næsta dag., :
Farþegarnir, sem sluppu án mei&sia, komnir um borð í rútu frá Sæmundi
'IsfihTTluffFþaTReýkhoítr.. -”7 ~ ~ "~ZZ~ZZZZZZ~Z~ZZ 1