Skessuhorn - 30.12.1998, Blaðsíða 3
MlfíVIKtJDAfiiJR 30. DFRFMRFR IflQfi
3
skessuh @ aknet.is
Davíb Oddsson klippir á bor&a vi& opnun Hvalfjar&arganganna 11. júlí í sumar. Halldór Blöndal samgöngurá&herra
og Císli Gíslason forma&ur stjórnar Spalar fylgjast spenntir me&.
Vibburðaríkt ár
á Vesturlandi
Litib um öxl og atburöir líöandi árs rifjaöir upp
Árið sem senn rennur sitt skeið hefur um margt verið viðburðaríkt fyrir
Vesturland og íbúa þess. Ástand í atvinnumálum hefur verið með besta
móti, framkvæmdasemi sveitarfélaga og fyrirtækja hefur verið mikil og
menningarlíf hefur staðið með blóma. Stærstu viðburðir ársins má þó
segja að hafi orðið á samgöngusviðinu fyrst með opnun jarðganga undir
Hvalfjörð og síðan með formlegri opnun vegar og brúar yfir Gilsfjörð
undir lok ársins. Þannig hefur kjördæmið tengst Vestfjörðum og Suðvest-
urlandi mun betur en áður með nýjum og glæsilegum samgöngumann-
virkjum. Meðal annarra merkra viðburða má nefna sveitarstjórnarkosn-
ingar á liðnu sumri, opnun álvers á Grundartanga, íþróttaviðburði,
ákvörðun um uppgröft á bæ Eiríks rauða í Haukadal og áfram mætti
lengi telja. Héraðsfréttablaðið Skessuhorn hóf göngu sína um miðjan
febrúar og hefur síðan verið dreift vikulega inn á öll heimili og fyrirtæki
í kjördæminu. Blaðið hefur flutt fréttir af mannlífi og atburðum vítt og
breitt af Vesturlandi. Verður í þessum stutta annál gluggað í gömul
Skessuhornsblöð og sagt frá ýmsu sem þar hefur fram komið.
Göngin opna
Ellefti júlí í sumar verður að teljast
merkasti dagur okkar Vestlendinga á
líðandi ári. Þá voru Hvalfjarðargöng
opnuð með viðhöfn að viðstöddum
ráðherrum og fjölda annarra góðra
gesta. Þjóðleiðin til Suðvesturhoms-
ins styttist við þessa framkvæmd um
tugi kílómetra og aðstæður atvinnu-
lífs og íbúa hér á Vesturlandi, sem og
annarra kjördæma, hafa breyst ótrú-
lega mikið á því hálfa ári sem liðið er
frá opnuninni. Reynslan hefur auk
þess sýnt að umferð um göngin hefur
verið mun meiri en áætlanir gerðu
ráð fyrir þannig að á aðalfundi Spal-
ar sem haldinn var í nóvember sl. var
ákveðið að stefna að lækkun
veggjaldsins næsta vor. Verðskráin í
göngin varð mörgum að umtalsefni í
Skessuhomi og í öðram fjölmiðlum
fyrir opnun þeirra. Mörgum fannst
sem gjaldið væri of hátt en reynslan
hefur þó sýnt að margir nýta sér af-
sláttarkjör með kaupum á veglyklum.
Fyrstu neikvæðu áhrif ganganna voru
e.t.v. þau að verslun dróst saman í
Hvalftrði og ekki síst að Akraborgin
hætti siglingum milli Reykjavíkur og
Akraness kvöldið fyrir opnun Hval-
fjarðarganganna. Með því lauk löng-
um og farsælum kafla í samgöngu-
sögunni og víst er að margir Skaga-
menn og ýmsir fleiri hugsa til “Bogg-
unnar” með sáram söknuði. Afdrif
skipsins urðu þau að Slysavamaskóla
sjómanna var fært skipið og sinnir
það því þörfum verkefnum framveg-
is sem hingað til.
í byrjun nóvember var Gilsljarðar-
brúin vígð. Fyrir íbúa Vestljarða og
Dala er ekki síður um mikilvæga
samgöngubót að ræða en göngin
vora fyrir íbúa sunnanverðs kjör-
dæmisins. Þjóðleiðin til Vestfjarða
styttist þannig um rúmlega 17 erfiða
kílómetra eins og vegamálastjóri
komst að orði við vígsluathöfnina.
Meðal annarra vegaframkvæmda á
árinu má nefna nýja vegtengingu
Hvalfjarðarganganna við þjóðveg 1
og nýjan veg sem unnið er að fyrir
Búlandshöfða á Snæfellsnesi.
Framundan í vegamálum í kjördæm-
inu era framkvæmdir við Borgar-
fjarðarbraut, sem mikið hefur verið
deilt um og í umræðunni er viðgerð á
vegi um Bröttubrekku, Kerlingaskarð
auk áætlana um þveran Kolgrafar-
fjarðar. Síðast nefndu framkvæmd-
imar era þó meira á umræðustigi en
framkvæmdastigi enn sem komið er.
Úrslit kosninga
Kosið var til sveitarstjórna á Is-
landi í maí í vor. Urslit hér á Vestur-
landi urðu á margan hátt óvænt. I
Snæfellsbæ unnu Sjálfstæðismenn
stærsta kosningasigurinn. Bætti
flokkurinn við sig um 20% fylgi frá
síðustu kosningum og myndar
þannig hreinan meirihluta á yfir-
standandi kjörtímabili.
I Borgarbyggð vann vinstri sam-
fylking, Borgarbyggðarlistinn, einnig
stóran sigur þó framboðinu hafi ekki
Frh. á næstu síðu
VELSLEÐAMENN ATHUGIÐ!
Að gefnu tilefni vill Lögreglan í
Borgamesi vekja athygli á að
óheimilt er með öllu að aka vélsleða
um götur Borgamess.
Lögreglan í Borgamesi
'Tf
FRA HROSSARÆKTARSAMBANDI
VESTURLANDS.
Stóðhestar til notkunar 1999:
Hestur: Húsnot: Fyrra tímab.: Síðara tímí
Kolfinnur f. Kjamholtum V-Leirárgarðar Suðurland Stóra Fellsöxl
Dagur f. Kjamholtum Vesturland Vesturland Vesturland
Stígandi f. Sauðárkróki A-Skaftafellssýsla Suðurland Stóra Fellsöxl
Oddur f. Selfossi XX XX Hestur
Gustur f. Hóli XX XX Vestfirðir
Hamur f. Þóroddsstöðum X Stóra Fellsöxl XX
Skorri f. Gunnarsholti V-Húnavatnss. Hólsland Dalasýsla
Eiður f. Oddhóli XX XX Hólsland
Feykir f. Hafsteinsstöðum X Hjarðarholt, Stafh. XX
Kjarval f. Sauðárkróki XX Reykhólar XX
Galdur f. Laugarvatni XX Álftanes XX
Markús f. Langholtsparti Skáney XX XX
x= hesturinn er ekki til notkunar hér.
Kjarval og Feykir kosta kr. 23.000,- pr. hryssu.
Óvíst er enn um verð á Markúsi. Aðrir hestar kosta kr. 17.000,-
Innifalið í verði er folatollur, girðing og sónarskoðun.
Til athugunar vegna pantana:
1. Hryssueigendur á sambandssvæðinu ganga fyrir. 2. Hryssur séu skráðar í „Feng“ og
folaldaskýrslum sé skilað. 3. Takmarkaður fjöldi hryssna frá einstakling ef aðsókn er mikil.
4. Pantanir berist á tímabilinu lO.janúar til 28. febrúar 1999. 5. Tekið er við öllum
pöntunum á sama stað. Staðfestingargjald á pönmn skal greiðast fyrir 15. apríl og er
ákveðið kr. 6.000,- Gjaldið er óafturkræft (sendur verður gíróseðill). Ef gjald þetta er ekki
| greitt fellur pöntunin sjálfkrafa niður. Þegar komið er með hryssu í girðingu verður nafn
I hennar og númer að vera til staðar vegna gæðaskýrsluhaldsins.
Pantanir berist til formanns í síma/fax 435 1143
F.h. Hrossaræktarsambands Vesturlands, Bjami Marinósson.