Skessuhorn - 30.12.1998, Blaðsíða 5
^unuw
MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1998
5
góður bæjarbragur sem litið er til.
íbúar sveitarfélagsins eru að meðal-
tali yngri en víða á landsbyggðinni og
böm því hlutfallslega stór hluti íbúa
og atvinnulíf er í blóma. Stofnuð var
ný verslun og hótel staðarins var opn-
að eftir gagngerar endurbætur. At-
hafnasvæði hafnarinnar var fegrað,
svo fátt eitt sé nefnt.
í Grundarfir&i er mikiö og gott
mannlíf. Sveitarfélagib hlaut vibur-
kenningu á árinu sem snyrtilegasta
sveitarfélagib á Vesturlandi.
Hreinna og vænna
Vesturland
I kjölfar umhverfisátaks Skessu-
homs var Eyrarsveit valin snyrtileg-
asta sveitarfélagið á Vesmrlandi. Því
vali réði nefnd sem samanstóð af full-
trúum þeirra fyrirtækja og stofnana
sem átakið studdu. Eyrarsveit er talin
skara fram úr öðmm sveitarfélögum
hvað almenna umhirðu mannvirkja
og umhverfis varðar og heildarsýn
séð með gests auga. Umhverfisverð-
laun blaðsins vom, í samráði við
Búnaðarsamtök Vesturlands, Sorp-
urðun Vesturlands og Vegagerð ríkis-
ins, einnig veitt snyrtilegustu bónda-
bæjunum, fyrirtækjum og görðum í
einkaeign. Snyrtilegasta sveitabýlið
var valið Lyngholt í Melasveit.
Snyrtilegasti garðurinn var að Fum-
gmnd 29 á Akranesi og það fyrirtæki
sem þótti skara framúr í fegmn og
viðhaldi utanhúss var Mjólkursam-
lagið í Búðardal. Verðlaunagripi
átaksins gerði listamaðurinn Bjami
Þór og vom þeir veittir við athöfn í
gamla veiðihúsinu við Langá sl. sum-
ar.
Mikil þensla í
Hólminum
Eins og áður er getið um fannst
heitt vatn í nágrenni Stykkishólms og
er nú unnið hörðum höndum að virkj-
un vatnsins með tilheyrandi lögnum
og mannvirkjagerð á staðnum. Áætl-
að er að taka nýju hitaveituna í gagn-
ið nk. haust. í byggingu er ný sund-
laug í Hólminum og áhorfendastúka
við íþróttasvæðið sem einnig hýsir
varmaskiptistöð nýju hitaveitunnar.
Gamla löndunarbryggja staðarins var
einnig endurgerð á árinu. Lokið var
við að gera upp gamla kaupfélagshús
staðarins í lok ársins og þangað fluttu
bæjarskrifstofumar í stórbætta að-
stöðu.
Margt jákvætt
Af öðmm verkefnum í atvinnumál-
um landshlutans má nefna ýmislegt
sem skjalfest var á síðum Skessu-
homs á árinu. Kombændur stórauka
með hveiju árinu ræktun koms á
ákveðnum svæðum. Byijað var að
þreskja kom í Borgarfirði í lok ágúst
og af því tilefni var rætt við formann
félags kombænda, Magnús Eggerts-
son í Ásgarði. Sagði hann að sáð hafi
verið komi í um 170 hektara sl. vor.
Uppskera bænda var víða allgóð og
ljóst er að veruleg búdrýgindi em af
komrækt á Vesturlandi enda mörg
svæði veðurfarslega vel fallin til
komræktar.
Sementsverksmiðjunni á Akranesi
var snemma árs veitt vottorð fyrir
nýtt gæðakerfi, ISO 9002, og er nú
unnið eftir því kerfi hjá verksmiðj-
unni.
Sementssala ársins stefnir í að
verða sú mesta í tíu ár og komið hef-
ur fram í blaðinu að vel horfi með
sölu næsta árs, þó ekki sé áætlað að
hún verði eins mikil og á líðandi ári.
Mikið hefur verið deilt um flutning
Landmælinga íslands til Akraness.
Nú rétt fyrir jólin var flutningur
stofnunarinnar staðfestur með lögum
frá Alþingi eftir að Hæstiréttur hafði
dæmt aðgerðina ólöglega. Landmæl-
ingar Islands verða til húsa í Stjóm-
sýsluhúsinu á Akranesi og hefur þar
verið útbúin glæsileg skrifstofa fyrir
starfsemina, svo ekki ætti að væsa
um starfsfólkið.
Eðalfiskur í Borgamesi fékk nú í
lok ársins viðurkenningu frá Þroska-
hjálp fyrir atvinnusköpun fyrir fatl-
aða einstaklinga. Ragnar Hjörleifsson
framkvæmdastjóri sagði þegar hann
móttók viðurkenninguna að hann liti
á hana sem staðfestingu á því að fatl-
aðir væm góðir starfskraftar og gott
væri að hafa þá í vinnu. Ekki horfir
eins vel með störf hjá vinnu- og hæf-
ingarstaðnum Fjöliðjunni á Akranesi
og í Borgamesi. Segja varð fólki upp
þann 1. nóvember í haust vegna sam-
dráttar í fyrri verkefnum og taka upp-
sagnimar gildi 1. febrúar í vetur tak-
ist ekki að skapa fleiri verkefni fyrir
vinnustaðinn.
Á árinu fékk eitt minnsta pósthús
landsins viðurkenningu fslandspósts
fyrir besta þjónustu pósthúsa á land-
inu. Hér er átt við Pósthúsið í Reyk-
holti í Borgarfirði og starfsfólk þess.
Fyrir nokkmm ámm hlaut Pósthúsið
á Akranesi samskonar viðurkenn-
ingu.
sig á landinu í febrúarmánuði. Sóttin
kom fljótt upp á Akranesi og breidd-
ist síðan hægt um héraðið og Vestur-
land allt þegar leið að vori. Læknar
vom ráðalausir gagnvart eðli þessa
sjúkdóms og smitleiðum hans. Mörg
hross drápust úr þessari veiki um allt
Vesturland og hjó hún víða skörð í
hrossahópa bænda og frístundahesta-
manna.
Vibburbaár
Það færist í vöxt að sveitarfélög
standi fyrir viðburðahelgum eða -vik-
um á hverjum ári. Snæfellingar héldu
í sumar færeyska daga, Gmndfirðing-
ar franska daga og kunnir em dönsku
dagamir í Stykkishólmi sem hafa
hvað lengsta sögu að baki. Þessar há-
tíðir vom allar haldnar með miklum
“stæl” í sumar og gengu vel. Nú hafa
Akumesingar ákveðið að haldnir
verði írskir dagar á Skaganum í byrj-
un ársins. Viðburðir sem þessir hafa
sýnt sig að styrkja verslun og þjón-
ustu á svæðunum. Mikil dagskrá og
hátíðahöld vom á Akranesi í kjölfar
opnunar Hvalfjarðarganganna.
Skipulögð var mikil dagskrá dagana
eftir opnun þar sem þjónustuaðilar og
verslanir bættu við opnunartímann,
skemmtanir vom haldnar og bærinn
skreyttur. Spölur ákvað að gefa frítt í
göngin fyrstu dagana eftir opnun
þeirra og urðu margir til að notfæra
sér það og skreppa í bfltúr á Vestur-
land.
í ágústmánuði stóðu Hvanneyring-
ar fyrir glæsilegri hátíð til heiðurs
dráttarvélunum á íslandi. Þann 15. á-
gúst var svokallaður D dagur haldinn
hátíðlegur í blíðskapar veðri og þess
minnst að 80 ár em liðin frá því fyrsta
Frh. á næstu síðu
Myndarlegur hópur nemenda sem útskrifabist í vor úr námsbraut fullorb-
insfræbslu fatlabra í Fjölbraut á Vesturlandi. Skólameistari og leibbeinend-
ur eru meb þeim á myndinni.
HBYOtaO
0$
C3^f(z%an£±i
deetx
PiýýU'if
.m..
9 9;
Öskum íbúum BorgarbyggÖar
svo og Vestlendingum ollum
árs ogfrukur.
Þökkum samskiptm
á tíðnu ári.
Bæjarstjóm og staxfsfólk
Borgarbyggðar
Óskiiiu Vestlendmgum
Vesturgötu 48 - 300 Akranes - 431 4311
,4. ' . x. ■ . .
Heilbrigöi manna og dýra
Nú hefur verið leyst úr læknaskorti
þeim sem ríkti sl. sumar í Borgamesi.
í kjölfar gríðarlegrar aukningar
sumarhúsa í Borgarfirði má segja að
íbúatala svæðisins margfaldist þegar
mest er um helgar. Þetta olli miklu á-
lagi á lækna Heilsugæslustöðvarinnar
eins og fram kom í viðtali við einn
þeirra sl. sumar.
Fyrsta vatnsfæðingin fór fram á
Sjúkrahúsi Akraness í apnlbyrjun um
sama leyti og fæðingardeild Sjúkra-
hússins varð 20 ára. Vatnsfæðingin
fór fram í “kvótalausu” fiskikari eins
og hressar ljósmæðumar kölluðu það
og bættu við að slíkt væri vel viðeig-
andi í fiskibænum Akranesi.
Það voru víðar vandamál innan
heilbrigðisgeirans á árinu. Bráðsmit-
andi hitasótt í hrossum gerði yart við
VliRSLIJININ IIÆTTIR!
LOKAAFSLÁTIUR!
15% AFSLÁTTUR AF \\ .11AI VÖItl M!
50% AFSLÁTTUR AF ÖÐRIIM \ Öltl M
Þökkum vidskiptavinum okkar viðskiptin
á liðnum árum.
KONNÝ s/f Kirkjubraut 14
rs Tf-iji' Akranesi
Knstm og Kiddy Sími: 431-2014